Tími fyrir móttöku sjúklinga styttist
Heilsugæslustöð í Reykjavík. mbl.is
Reiknað er með, að heilsugæslulæknar á höfuðborgarsvæðinu hætti almennt að taka á móti sjúklingum klukkan 15 á daginn frá og með 1. maí en þá koma til framkvæmda sparnaðarráðstafanir yfirstjórnar Heilsugæslunnar á höfuðborgarsvæðinu. Á öllum heilsugæslustöðvum borgarinnar verður þó áfram síðdegisvakt frá klukkan 16 til 18 og neyðartilvikum, sem koma upp að deginum, verður sinnt eins og áður.
Læknaráð heilsugæslulækna á höfuðborgarsvæðinu sendi frá sér tilkynningu í morgun þar sem bent var á að þjónusta heilsugæslunnar muni skerðast vegna minnkaðs tímaframboðs hjá heilsugæslulæknum. Eru í tilkynningunni hörmuð þau óþægindi, sem þetta kunni að valda skjólstæðingum heilsugæslunnar.
Að sögn Baldurs P. Thorstensen, formanns læknaráðsins, felst í sparnaðaráastöfnunum, að ýmsum sérkjörum lækna var sagt upp, þar á meðal fastri yfirvinnu. Þetta hafi í för með sér, að læknar verði nú að hætta móttöku fyrr á daginn til að geta lokið skýrsluvinnu í dagvinnutíma.
Spara á um 370 milljónir króna með þeim ráðstöfnunum, sem gripið verður til í heilsugæslunni um mánaðamótin. Er m.a. gert ráð fyrir að laun starfsmanna sem hafa yfir 300 þúsund krónur á mánuði, skerðist um 6-10%. Baldur sagði, að um helmingur þeirrar upphæðar sem á að sparast, eða 168 milljónir, komi niður á læknum, enda séu þeir launahæsti hópurinn. Áætla megi, að laun læknanna skerðist að jafnaði um 12-14%. Um 130 stöðugildi læknastarfa eru hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins.
Þegar Baldur var spurður hvort komið hafi til greina að læknar tækju á sig skerðinguna tímabundið án þess að draga úr vinnuframlagi svaraði hann, að læknar eins og aðrir tækju á sig kjaraskerðingu. Hins vegar hefði lítið sem ekkert samráð verið haft við þá varðandi þessar ráðstafanir.
Baldur sagði, að áhrif þeirrar þjónustuskerðingar, sem nú er yfirvofandi, verði væntanlega þau að fólk muni í auknum mæli leita til dýrari þjónustu, svo sem á læknavaktir eða til sérfræðinga þar sem biðtími hjá heimilislæknum muni lengjast. Læknar hafi lagt áherslu á að verja eigi grunnþjónustuna en ekki hafi verið tekið tillit til þess.
Innlent »
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 30. apríl 2009, Innlent Þjónusta heilsugæslu skerðist
- Fimmtudagur, 30. apríl 2009, Innlent Skerðing þjónustu óhjákvæmileg
- Fimmtudagur, 22. október 2009, Innlent Hægt að panta bólusetningu við svínaflensu
- Föstudagur, 17. apríl 2009, Innlent Óttast áhrif sparnaðar í heilsugæslunni
- Föstudagur, 23. maí 2008, Innlent Rannsakað hvort húsnæði heilsugæslu sé heilsuspillandi
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli


































