Verkefninu breytt án útboðs
eftir Magnús Halldórsson magnush@mbl.is
Frá því Fjarskiptasjóður og Síminn gengu frá samningi um uppbyggingu háhraðanets á landsbyggðinni hafa óánægjuraddir orðið háværar hjá samkeppnisaðilum Símans, þar á meðal Vodafone, en einnig hjá smærri fjarskiptafyrirtækjum sem boðið hafa upp á netþjónustu á landsbyggðinni.
Óánægjan snýr einkum að því að samningurinn sem gerður var 25. febrúar sl. skuli ekki hafa verið gerður á þeim forsendum sem útboð vegna verkefnisins hafði kveðið á um.
Síminn bauð um 390 milljónir í verkefnið í útboði sl. haust. Mikill verðmunur var á tilboðum í það sem skýrðist m.a. af því að fyrirtækin lögðu til ólíkar, tæknilegar lausnir við uppbyggingu háhraðanetsins, skv. upplýsingum frá Gunnari Svavarssyni, formanni Fjarskiptasjóðs.
Eins og greint var frá í Morgunblaðinu í gær vildu forsvarsmenn Símans hætta við þátttöku í verkefninu, m.a. annars vegna þess að tilboð fyrirtækisins í verkefnið væri of lágt.
Kristján Möller, samgönguráðherra og ráðherra fjarskiptamála, hefur sjálfur lýst því þannig í útvarpsviðtali við Ísland í bítið á Bylgjunni að forstjóri Símans hafi komið til hans 4-5 sinnum og sagt að fyrirtækið gæti ekki staðið við tilboðið. „En alltaf hefur okkur tekist að blása lífi í það [verkefnið innsk. blm.],“ sagði Kristján í viðtalinu 27. febrúar sl. Viðræður Kristjáns og forstjóra Símans, Sævars Freys Þráinssonar, báru árangur og settu verkefnið í annan farveg.
Nánar er fjallað um málið í Morgunblaðinu í dag.
Innlent »
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 30. apríl 2009, Innlent Háhraðanetið tvöfalt dýrara
- Miðvikudagur, 25. febrúar 2009, Innlent Háhraðanet til allra landsmanna
- Föstudagur, 16. janúar 2009, Innlent Síminn harmar aðgerðir Vodafone
- Föstudagur, 1. ágúst 2008, Innlent Hringvegurinn kominn í samband
- Föstudagur, 16. janúar 2009, Innlent Loka á Sjónvarp Símans á höfuðborgarsvæðinu
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli



































