Hæstiréttur staðfesti gæsluvarðhald

Hæstiréttur Íslands. stækka

Hæstiréttur Íslands. mbl.is/Brynjar Gauti

Hæstiréttur hefur staðfest gæsluvarðhalds úrskurð yfir karlmanni sem  ásamt öðrum ruddist inn á heimili eldri hjóna á Arnarnesi. Maðurinn sem hefur játað aðild sína sætir varðhaldi allt til 19. maí nk.

Í úrskurði héraðsdóms er vitnað orðrétt í ummæli hjónanna þegar þau gáfu skýrslu um málið. Konan sagðist hafa verið heima að fylgjast með kosningasjónvarpinu ásamt eiginmanni sínum þegar barið var á útidyrahurð. Konan opnaði hurðina og þá ruddust tveir menn inn. Annar tók fyrir vit hennar og snéri hana niður í gólfið og skipaði henni að liggja kyrri en ella færi illa fyrir henni. Hún sagðist hafa hrópað af hræðslu og þá hafi maðurinn sagt: „Ég bara rota hana.” 

Í kjölfarið fékk konan þrjú þung högg í höfuðið. Maðurinn skipaði henni að losa hringa af fingrum sér og hún sagðist ekki hafa þorað annað en að hlýða. Sagði hún þau hjónin hafa verið undir stöðugum hótunum um líflát á meðan ráninu stóð, þ.e. að þau yrðu stungin ef þau ekki hlýddu.

Eiginmaðurinn sagði að bankað hefði verið á útidyrahurðina og kona hans fór fram. Hann heyrði síðan tvö óp og stuttu síðar kom maður, sem hafði hlið andlit sitt að hluta, vopnaður flökunarhníf með um 18 cm löngu hnífsblaði. Maðurinn sagði: „Við viljum peningaskápinn, við erum komnir til að taka peningana þína. Persónulega hef ég engu að tapa og ef þú gerir ekki allt sem ég segi þá sting ég þig.” 

Árásarmaðurinn lagði hnífinn að brjóstkassa húsráðandans og fylgdi honum þannig upp á jarðhæð og skipaði honum að leggjast niður við hlið konu sinnar. Hafi annar ræningjanna gætt þeirra, þar sem þau lágu, á meðan hinn fór ránshendi um heimilið. Tóku mennirnir m.a.  seðlaveski með um 50.000 krónum, gsm síma, tölvu og skartgripi.

Í greinargerð lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu segir að brot mannsins sé svo svívirðilegt að það myndi valda hneykslan í samfélaginu og særa réttarvitund almennings fái hann að ganga frjáls á meðan mál hans er til meðferðar hjá dómstólum.

Í skýrslutöku hjá lögreglu kom fram að maðurinn hafi ásamt öðrum og tveimur stúlkum komið að heimili hjónanna. Stúlkurnar hafi beðið í bílnum á meðan mennirnir ruddust inn. Þeir voru vopnaðir hníf og hótuðu að stinga hjónin ef þau bentu ekki á fjármuni sína. Maðurinn hafi þá staðið yfir hjónunum á meðan hinn leitaði að verðmætum í húsinu. Þeir skiptu svo verðmætunum á milli sín.

Mennirnir eiga yfir höfði sér allt að sextán ára fangelsi.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Lét dólgslega og stökk í sjóinn

08:21 Karlmaður á þrítugsaldri gisti fangageymslur lögreglunnar á Akureyri í nótt, eftir að hafa látið dólgslega í miðbæ bæjarins og lagst að því búnu til sunds í sjónum. Maðurinn var afar ölvaður að sögn lögreglu. Meira »
Velta á fasteignamarkaði frá janúar til febrúar í ár var 46,335 milljarðar kr. en var ...

Lántakendur varaðir við

05:30 Grípi Seðlabankinn til þess ráðs að hækka vexti frekar gæti það haft veruleg áhrif á mánaðarlega greiðslubyrði af óverðtryggðum fasteignalánum. Meira »

Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti

07:43 Reykjavíkurborg hyggst auka útgjöld til hreinsunar á veggjakroti á þessu ári. Undanfarin ár hefur hreinsun að mestu verið innan miðborgarinnar en úthverfin hafa setið á hakanum. Meira »

Flugfarþegi lak plötu á netið

Umslag plötunnar Valtari.
05:30 Áttunda og nýjasta plata Sigur Rósar, Valtari , kom út í gær en hún er fyrsta breiðskífa sveitarinnar frá því Með suð í eyrum við spilum endalaust kom út fyrir fjórum árum. Meira »

Störfum í bönkum fækkað um 2.000

Friðbert Traustason. Formaður Sambands íslenskra bankamanna .
05:30 Störfum hjá fjármálafyrirtækjum hefur fækkað um 2.000 frá því vorið 2008. Útibúum bankanna hefur fækkað um helming á sama tíma. „Þetta hefur verið hreint hörmungarástand,“ segir Friðbert Traustason, formaður Samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja. Meira »

Athugasemdir við Rússa

Rússnesk skip umskipa afla í Hafnarfjarðarhöfn eftir veiðar á Reykjaneshrygg.
05:30 Íslensk stjórnvöld hafa komið alvarlegum athugasemdum á framfæri við sendiherra Rússlands á Íslandi vegna karfaveiða Rússa á Reykjaneshrygg. Meira »

Kostnaður við komu 4 milljónir

Wen Jiabao og Jóhanna Sigurðardóttir á Geysi
05:30 Ekki hefur verið sótt um aukafjárveitingu vegna kostnaðar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu við heimsókn kínverska forsætisráðherrans Wens Jiabaos. Meira »

Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi

Með batnandi veðri gefst færi til útileikja.
05:30 Vel lítur út með veður víðast hvar á landinu um hvítasunnuhelgina. Reyndar má búast við að rigni á Vestfjörðum í dag, en svo stytti upp og víða verði sólríkt. Hitastig hefur stigið verulega síðustu daga og í dag er búist við að hiti klifri yfir 20 stig á norðaustanverðu landinu. Meira »

Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi

04:53 Sunnan- og suðvestanátt verður á landinu í dag, yfirleitt 5-15 m/s, hvassast norðan- og vestanlands. Rigning við Breiðafjörð og á Vestfjörðum, léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi, en skýjað og súld með köflum syðra. Meira »

Brotist inn meðan íbúar skruppu frá

Í gær, 21:09 Tilkynnt var um innbrot í heimahús í Grafarvogi klukkan sjö í kvöld og söknuðu húsráðendur sjónvarps og ýmissa raftækja. Þeir brugðu sér af bæ í rúma klukkustund og þegar þeir komu heim var búið að brjóta rúðu og komust þjófarnir þannig inn. Meira »

Segir stuðning við Kanadadollar

Kanadadollari. Úr myndasafni.
Í gær, 22:15 „Þetta er rætt í alvöru á Íslandi. Efnahagsráðherrann fór til Kanada fyrir sex vikum og fundaði með kanadíska seðlabankanum og með þingmönnum og að ég tel fjármálaráðuneytinu líka. Hann kom síðan aftur til Íslands og sagði opinberlega að þetta væri möguleiki sem væri ekki hægt að útiloka.“ Meira »

Stefnan áframhaldandi lágt gengi

Einar K. Guðfinnsson, alþingismaður.
Í gær, 20:11 „Það er alveg ljóst mál að þetta kosningaplagg ríkisstjórnarinnar sem kallað hefur verið framkvæmdaáætlun er byggð á þeirri forsendu að gengi íslensku krónunnar haldist álíka veikt og það er í dag,“ segir Einar Kr. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, í samtali við mbl.is. Meira »

Meintar falsanir til lögreglunnar

Ástþór Magnússon, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 19:39 Tekin var ákvörðun um það í dag af yfirkjörstjórnum í Reykjavík að vísa meintum fölsunum á undirskriftum á meðmælendalistum Ástþórs Magnússonar, forsetaframbjóðanda, til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Meira »

Gæsluvarðhaldið staðfest

Í gær, 18:29 Hæstiréttur hefur staðfest gæsluvarðhaldsúrskurð yfir tveimur karlmönnum sem grunaðir eru um að hafa valdið dauða samfanga síns í fangelsinu á Litla-Hrauni fyrir rúmri viku. Héraðsdómur hafði áður úrskurðað mennina í gæsluvarðhald til 13. júní. Meira »

Húsbíll fauk af vegi

Í gær, 18:09 Húsbíll fauk í Fljótum, skammt frá Ketilási um hádegisbilið í dag. Tvennt var í bílnum og voru þau flutt á heilsugæsluna á Siglufirði til aðhlynningar. Meira »

Tryggja að allir komist heilir heim

Í gær, 18:59 Haldið verður úti auknu umferðareftirliti í sumar á Vesturlandsvegi, Suðurlandsvegi og Reykjanesbraut af hálfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í samvinnu við embætti ríkislögreglustjóra. Meira »

Fundur Háskólalestarinnar fellur niður

Frá Ísafirði. Úr myndasafni.
Í gær, 18:22 Fram kemur í tilkynningu frá Háskólalestinni að fyrirlestur um forsetaframboðið sem fara átti fram á Ísafirði í kvöld klukkan 20:00 falli niður vegna þess að öllu flugi frá Reykjavíkur til Ísafjarðar í dag hafi verið aflýst. Meira »

Ólafur mælist með mest fylgi

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands.
Í gær, 18:09 Mikill viðsnúningur hefur orðið í fylgi við forsetaframbjóðendurna Ólaf Ragnar Grímsson og Þóru Arnórsdóttur ef marka niðurstöður nýrrar skoðanakönnunar Capacent Gallup sem greint var frá í fréttum Ríkisútvarpsins. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Gisting í Eyjafirði
Bjóðum upp á gistingu í íbúð með tveimur tveggja manna herbergjum með uppábúnum ...
Nuddbekkjalök,Andlitslök,Nuddbelti,Nuddolía,Hitateppi,Nuddpúðar,Bekkjabreikkun,
Nuddbelti,Nuddolía,Hitateppi,Nuddpúðar,Bekkjabreikkun,Nuddbekkjalök,Andlitslök,N...
BLEKHYLKI
Blekhylki og tónerar í flestar gerðir prentara, 50-70% ...
RENAULT MEGANE SPORT TOURER
Renault Megane Sport Tourer Nýskr. 3/2004, ekinn 122 þ. km, bens...
 
Samkoma
Félagsstarf
Safnaðarheimilið Grens...
Ársfundur vina vatnajökuls

Ársfundur Vina Vatnajökuls, hollvinasamt...
Atvinnuhúsnæðitil leigu eða sölu
Atvinnuhúsnæði
Atvinnuhúsnæði Til leig...