Lög um greiðsluaðlögun taka gildi 15. maí
Þann 15. maí taka gildi ný lög um tímabundna greiðsluaðlögun
fasteignaveðkrafna. Með lögunum getur eigandi íbúðarhúsnæðis leitað
eftir greiðsluaðlögun vegna skulda sem tryggðar eru með veði í húsnæði
hans ef hann sýnir fram á að hann sé og verði um einhvern tíma ófær um
að standa í fullum skilum á greiðslum veðskulda. Þetta kemur fram í tilkynningu frá dóms- og kirkjumálaráðherra vegna misvísandi fréttaflutnings um útgáfu reglugerðar í tengslum við greiðsluaðlögun.
„Miðað er við að um sé að ræða húsnæði sem telst hóflegt miðað við þarfir skuldara og fjölskyldu hans. Einstaklingur leitar greiðsluaðlögunar með skriflegri beiðni til héraðsdómstóls í því umdæmi þar sem hann á lögheimili. Taki héraðsdómari beiðnina til greina skal hann skipa umsjónarmann með greiðsluaðlöguninni.
Með lögum nr. 24/2009 um breyting á lögum um gjaldþrotaskipti o.fl. nr. 21/1991, sem tóku gildi 1. apríl sl., var einstaklingum gert kleift að leita nauðasamnings til greiðsluaðlögunar við kröfuhafa sína með aðstoð umsjónarmanns. Þau lög taka til annarra krafna en veðskulda. Reglugerð nr. 335/2009, sem sett var á grundvelli laganna, var gefin út sama dag. Þar er Ráðgjafarstofu um fjármál heimilanna falið að annast endurgjaldslausa aðstoð við gerð beiðna um greiðsluaðlögun. Nú þegar hafa nokkrir einstaklingar leitað eftir þessu úrræði hjá héraðsdómstólum.
Það er því ekki rétt sem haldið hefur verið fram að greiðsluaðlögun sé ekki raunhæfur valkostur vegna þess að eftir eigi að setja reglugerð sem kveði nánar á um framkvæmd laganna. Annars vegar er um að ræða úrræði sem komið er til framkvæmda, þ.e. greiðsluaðlögunarúrræði vegna annarra krafna en veðskulda, og hins vegar lög um tímabundna greiðsluaðlögun fasteignaveðkrafna sem taka gildi 15. maí nk. og geta þau lög komið að fullu til framkvæmda án þess að sett sé reglugerð á grundvelli þeirra," að því er segir í tilkynningu.
Bloggað um fréttina
-
Héðinn Björnsson Gefum fólki færi á að skila inn veði og skuldabréfi -
Konráð Ragnarsson Gjaldþrotaaðlögun!!!!!!
Innlent »
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 13. maí 2009, Innlent Lög um tímabundna greiðsluaðlögun taka gildi
- Föstudagur, 15. maí 2009, Innlent Lög um tímabundna greiðsluaðlögun taka gildi
- Þriðjudagur, 31. mars 2009, Innlent Sérstakt mál um aðlögun vegna veðlána
- Þriðjudagur, 5. maí 2009, Innlent Meta þarf hvert tilfelli
- Fimmtudagur, 24. september 2009, Innlent Mæta vanda 10.000 fjölskyldna
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli


































