Óbreytt viðbúnaðarstig hér
Þótt faraldur inflúensu A (H1N1) hafi hingað til verið vægur utan Mexíkó getur hann orðið alvarlegur þegar frá líður, eins og gerðist með Spánarveikina 1918. Því er ástæða til stjórnvöld haldi óbreyttu viðbúnaðarstigi hér á landi enn um sinn og að þau séu jafnframt við því búin að grípa til frekari aðgerða ef þörf krefur, samkvæmt upplýsingum frá embætti sóttvarnalæknis og almannavarnadeild ríkislögreglustjóra.
Engin tilfelli hafa verið greind hér á landi og enginn verið lagður inn á Landspítala með alvarleg, inflúensulík einkenni. Inflúensufaraldrinum frá í vetur, sem náði hámarki í febrúar síðastliðnum, er ekki alveg lokið. Þannig hafa fimm tilfelli af inflúensu B greinst á undanförnum dögum.
Fóli ráðlagt að ferðast ekki til Mexíkó
Fari svo að inflúensa A (H1N1) greinist hér á landi á næstunni verður ekki ástæða til róttækra aðgerða þar sem veikin er væg.
Opinberar ráðleggingar til ferðamanna eru óbreyttar. Fólki er ráðlagt að ferðast ekki að nauðsynjalausu til Mexíkó.
Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra átti í gær fund með fulltrúum ráðuneyta í Stjórnarráðinu til undirbúnings samræmdum viðbragðsáætlunum vegna hugsanlegs inflúensufaraldurs.
Viðbúnaðurinn miðar að því að skipuleggja órofna starfsemi Stjórnarráðsins þótt allt að helmingur starfsmanna sé forfallaður á sama tíma vegna veikinda.
Almannavarnadeild átti sömuleiðis fund í utanríkisráðuneytinu með fulltrúum erlendra sendiráða í Reykjavík vegna fyrirspurnar um stöðu erlendra sendimanna ef íslensk stjórnvöld gripu til ráðstafana vegna inflúensufaraldurs.
Sendimennirnir fengu skýr skilaboð um að þeir sætu þar við sama borð og íslenskir ríkisborgarar enda gengi eitt yfir alla þegar veikin væri annars vegar og ráðstafanir til að hefta útbreiðslu hennar tækju að sjálfsögðu mið af því.
Embætti sóttvarnarlæknis hefur sent út dreifirit til lækna og annars heilbrigðisstarfsfólks með fyrirmælum um skráningu og skilgreiningu inflúensutilfella. Þetta er gert til að leggja áherslu á að upplýsinga sé aflað hratt en örugglega svo heilbrigðisyfirvöld hafi sem gleggsta vitneskju um ástandið á hverjum tíma.
1.269 tilfelli staðfest
Staðfest tilfelli inflúensu A (H1N1) voru alls 1.269 í morgun í 22 ríkjum í heiminum samkvæmt upplýsingum Sóttvarnarstofnunar ESB.
Staðfestum tilfellum fjölgar enn. Þannig voru þrettán ný tilfelli staðfest á Spáni á síðastliðnum sólarhring og utan Evrópu fjölgaði staðfestum tilfellum einkum í Mexíkó, Bandaríkjunum og Kanada. Engin ný, alvarleg tilfelli hafa verið tilkynnt nema í Mexíkó. Dauðsföll sem rakin eru til veikinnar eru 27 þar af 26 í Mexíkó og eitt í Bandaríkjunum.
Meðalaldur þeirra sem greinst hafa með inflúensuna í Bandaríkjunum er 16 ár og 62% tilfella þar í landi varða fólk innan 18 ára aldurs. Langflest staðfest og óstaðfest tilvik inflúensunnar á Evrópska efnahagssvæðinu frá 27. apríl til 5. maí varða fólk á aldrinum 20-29 ára.




































