Tveggja mánaða skilorð fyrir röð brota

stækka

mbl.is/Ómar

Tæplega fertugur karlmaður var í héraðsdómi Reykjavíkur dæmdur í tveggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir ýmis hegningar- og umferðarlagabrot. Maðurinn var einnig sviptur ökurétti í 4 ár.

Ákæra á hendur manninum var í níu liðum en brotin framdi hann á tímabilinu mars til október 2008. Maðurinn ók nokkrum sinnum undir áhrifum fíkniefna, sviptur ökurétti og í eitt skiptið ók hann aftan á bifreið. Þá stal maðurinn vörum úr verslun Bónuss, olli eignaspjöllum á íbúð Bændasamtakanna í Sólheimum og var tekinn með hass og amfetamín í fórum sínum.

Maðurinn játaði skýlaust brot sín.

Geðlæknir sem framkvæmdi geðrannsókn á manninum taldi manninn sakhæfan. Í skýrslu læknisins kemur meðal annars fram að hegðun mannsins á undanförnum árum hafi einkennst af gríðarlegri eiturlyfjaneyslu hans. Í skýrslunni segir meðal annars að maðurinn sé gríðarlegur fjölfíkill, á tímabilum hafi hann fengið aðsóknarsturlun tengda neyslu eiturlyfja en engin alvarleg merki séu um sturlun hjá manninum, hætti hann í fíkniefnum í 6-8 vikur. Þá sýni maðurinn alvarlega andfélagslega hegðun þegar hann er í neyslu en hann sé eðlilegur sé hann alsgáður. Hingað til hafi hann hins vegar hvorki sýnt kjark né vilja til að hætta í neyslu.

Þá segir að maðurinn hafi hingað til ekki skaðast varanlega af sinni neyslu.

Maðurinn er fæddur árið 1969. Samkvæmt sakavottorði hefur honum margoft verið gerð refsing fyrir brot á lögum um ávana- og fíkniefni. Í janúar 2005 var honum gerð refsing vegna lyfjaaksturs og hann sviptur ökurétti í 6 mánuði. Í apríl 2007 var hann dæmdur í eins mánaðar skilorðsbundið fangelsi og sviptur ökurétti í 6 mánuði fyrir brot á lögum um ávana- og fíkniefni og akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Í september 2007 var maðurinn í tvígang dæmdur til greiðslu sektar og til að vera sviptur ökurétti samanlagt í 5 mánuði fyrir akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna, en í báðum tilvikum var um að ræða hegningarauka við dóminn frá í apríl 2007.

Dómara þótti refsing mannsins hæfilega ákveðin fangelsi í 60 daga. Refsingin er skilorðsbundin til tveggja ára. Þá var maðurinn sviptur ökurétti í 4 ár.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Lét dólgslega og stökk í sjóinn

08:21 Karlmaður á þrítugsaldri gisti fangageymslur lögreglunnar á Akureyri í nótt, eftir að hafa látið dólgslega í miðbæ bæjarins og lagst að því búnu til sunds í sjónum. Maðurinn var afar ölvaður að sögn lögreglu. Meira »
Velta á fasteignamarkaði frá janúar til febrúar í ár var 46,335 milljarðar kr. en var ...

Lántakendur varaðir við

05:30 Grípi Seðlabankinn til þess ráðs að hækka vexti frekar gæti það haft veruleg áhrif á mánaðarlega greiðslubyrði af óverðtryggðum fasteignalánum. Meira »

Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti

07:43 Reykjavíkurborg hyggst auka útgjöld til hreinsunar á veggjakroti á þessu ári. Undanfarin ár hefur hreinsun að mestu verið innan miðborgarinnar en úthverfin hafa setið á hakanum. Meira »

Flugfarþegi lak plötu á netið

Umslag plötunnar Valtari.
05:30 Áttunda og nýjasta plata Sigur Rósar, Valtari , kom út í gær en hún er fyrsta breiðskífa sveitarinnar frá því Með suð í eyrum við spilum endalaust kom út fyrir fjórum árum. Meira »

Störfum í bönkum fækkað um 2.000

Friðbert Traustason. Formaður Sambands íslenskra bankamanna .
05:30 Störfum hjá fjármálafyrirtækjum hefur fækkað um 2.000 frá því vorið 2008. Útibúum bankanna hefur fækkað um helming á sama tíma. „Þetta hefur verið hreint hörmungarástand,“ segir Friðbert Traustason, formaður Samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja. Meira »

Athugasemdir við Rússa

Rússnesk skip umskipa afla í Hafnarfjarðarhöfn eftir veiðar á Reykjaneshrygg.
05:30 Íslensk stjórnvöld hafa komið alvarlegum athugasemdum á framfæri við sendiherra Rússlands á Íslandi vegna karfaveiða Rússa á Reykjaneshrygg. Meira »

Kostnaður við komu 4 milljónir

Wen Jiabao og Jóhanna Sigurðardóttir á Geysi
05:30 Ekki hefur verið sótt um aukafjárveitingu vegna kostnaðar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu við heimsókn kínverska forsætisráðherrans Wens Jiabaos. Meira »

Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi

Með batnandi veðri gefst færi til útileikja.
05:30 Vel lítur út með veður víðast hvar á landinu um hvítasunnuhelgina. Reyndar má búast við að rigni á Vestfjörðum í dag, en svo stytti upp og víða verði sólríkt. Hitastig hefur stigið verulega síðustu daga og í dag er búist við að hiti klifri yfir 20 stig á norðaustanverðu landinu. Meira »

Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi

04:53 Sunnan- og suðvestanátt verður á landinu í dag, yfirleitt 5-15 m/s, hvassast norðan- og vestanlands. Rigning við Breiðafjörð og á Vestfjörðum, léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi, en skýjað og súld með köflum syðra. Meira »

Brotist inn meðan íbúar skruppu frá

Í gær, 21:09 Tilkynnt var um innbrot í heimahús í Grafarvogi klukkan sjö í kvöld og söknuðu húsráðendur sjónvarps og ýmissa raftækja. Þeir brugðu sér af bæ í rúma klukkustund og þegar þeir komu heim var búið að brjóta rúðu og komust þjófarnir þannig inn. Meira »

Segir stuðning við Kanadadollar

Kanadadollari. Úr myndasafni.
Í gær, 22:15 „Þetta er rætt í alvöru á Íslandi. Efnahagsráðherrann fór til Kanada fyrir sex vikum og fundaði með kanadíska seðlabankanum og með þingmönnum og að ég tel fjármálaráðuneytinu líka. Hann kom síðan aftur til Íslands og sagði opinberlega að þetta væri möguleiki sem væri ekki hægt að útiloka.“ Meira »

Stefnan áframhaldandi lágt gengi

Einar K. Guðfinnsson, alþingismaður.
Í gær, 20:11 „Það er alveg ljóst mál að þetta kosningaplagg ríkisstjórnarinnar sem kallað hefur verið framkvæmdaáætlun er byggð á þeirri forsendu að gengi íslensku krónunnar haldist álíka veikt og það er í dag,“ segir Einar Kr. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, í samtali við mbl.is. Meira »

Meintar falsanir til lögreglunnar

Ástþór Magnússon, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 19:39 Tekin var ákvörðun um það í dag af yfirkjörstjórnum í Reykjavík að vísa meintum fölsunum á undirskriftum á meðmælendalistum Ástþórs Magnússonar, forsetaframbjóðanda, til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Meira »

Gæsluvarðhaldið staðfest

Í gær, 18:29 Hæstiréttur hefur staðfest gæsluvarðhaldsúrskurð yfir tveimur karlmönnum sem grunaðir eru um að hafa valdið dauða samfanga síns í fangelsinu á Litla-Hrauni fyrir rúmri viku. Héraðsdómur hafði áður úrskurðað mennina í gæsluvarðhald til 13. júní. Meira »

Húsbíll fauk af vegi

Í gær, 18:09 Húsbíll fauk í Fljótum, skammt frá Ketilási um hádegisbilið í dag. Tvennt var í bílnum og voru þau flutt á heilsugæsluna á Siglufirði til aðhlynningar. Meira »

Tryggja að allir komist heilir heim

Í gær, 18:59 Haldið verður úti auknu umferðareftirliti í sumar á Vesturlandsvegi, Suðurlandsvegi og Reykjanesbraut af hálfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í samvinnu við embætti ríkislögreglustjóra. Meira »

Fundur Háskólalestarinnar fellur niður

Frá Ísafirði. Úr myndasafni.
Í gær, 18:22 Fram kemur í tilkynningu frá Háskólalestinni að fyrirlestur um forsetaframboðið sem fara átti fram á Ísafirði í kvöld klukkan 20:00 falli niður vegna þess að öllu flugi frá Reykjavíkur til Ísafjarðar í dag hafi verið aflýst. Meira »

Ólafur mælist með mest fylgi

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands.
Í gær, 18:09 Mikill viðsnúningur hefur orðið í fylgi við forsetaframbjóðendurna Ólaf Ragnar Grímsson og Þóru Arnórsdóttur ef marka niðurstöður nýrrar skoðanakönnunar Capacent Gallup sem greint var frá í fréttum Ríkisútvarpsins. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Fleetwood Bayside 12 fet sem nýtt
Glæsilegt fellihýsi skráð 06/09 lítið notað. 2 gaskútar, sólarsella. grjótgrind,...
NISSAN MICRA
Nissan Micra GX/LX. Nýskr. 1/1999, ekinn 115 þ.km, bensín, 5...
GARÐSKÁLI GEYMSLUR GESTAHÚS
Garðskáli - geymslur - gestahús Vönduð hús ú...
Breyttar felgur 15" 6 gata f. Toyota eða Patrol t.d.
TS 15" breyttar felgur. Þær eru tæplega 18" breiðar með valsaða kanta frá GJJá...
 
Til sölu
Til sölu
Viðskiptatækifæri Sey...
Kynning skipulagsmála í rangárþingi eystra

Kynning skipulagstillöguí Rangárþin...
12834 stofnstígur - reykjavíkurborg

út­boð Reykja­víkur­bor­g Innka­upa­...
Aðalfundur félags háskólakvenna

Félag háskólakvenna og kvenstúdenta Aðal...