Ekki útilokað að hæstu laun ríkisstarfsmanna lækki

Þingflokkur Samfylkingarinnar á fundi.
Þingflokkur Samfylkingarinnar á fundi. mbl.is/Ómar

Dagur B. Eggertsson, varaformaður Samfylkingarinnar, sagði í fréttum Ríkisútvarpsins í kvöld, að ekki sé útilokað að laun forstjóra ríkisfyrirtækja verði lækkuð þannig að þau verði ekki hærri en laun forsætisráðherra. 

Þingflokkar stjórnarflokkanna tveggja sátu á fundi síðdegis og fjölluðu um drög að stjórnarsáttmála.

Fram kom í fréttum Útvarpsins að ekki sé útilokað að nýir skattar verði lagðir á munað, svo sem áfengi og tóbak og olíu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert