Fjölgun umsókna um endurgreiðslu virðisaukaskatts

stækka

Júlíus Sigurjónsson

Fjármálaráðuneytið hefur í dag gefið út reglugerðir um endurgreiðslu virðisaukaskatts af vinnu manna við íbúðarhúsnæði o.fl. Hægt er tímabundið að fá endurgreiddan virðisaukaskatt af vinnu við íbúðahúsnæði að fullu í stað 60% áður. Lög þar að lútandi voru samþykkt á Alþingi í byrjun mars en þrátt fyrir tafir á útgáfu reglugerðar er þegar byrjað að endurgreiða slíkan virðisaukaskatt. Hefur slíkum beiðnum fjölgað að undanförnu hjá skattstjórum.

Annars vegar er um að ræða reglugerð um tímabundna aukna endurgreiðslu virðisaukaskatts af vinnu manna við tiltekið húsnæði. Sú reglugerð er sett með vísan til laga sem samþykkt voru á Alþingi í byrjun mars um að endurgreiðsla virðisaukaskatts af vinnu við íbúðarhúsnæði skuli nema 100% í stað 60% af vinnu sem fram fer á tímabilinu 1. mars 2009 til 1. janúar 2011. Samkvæmt lögunum nær þessi heimild jafnframt til vinnu við frístundahúsnæði og húsnæði í eigu sveitarfélaga.

„Markmiðið með breytingunum er að hvetja til aukinnar starfsemi á byggingarmarkaði samhliða því að koma til móts við húsbyggjendur sem eiga í erfiðleikum vegna yfirstandandi efnahagsþrenginga. Með reglugerðinni er kveðið nánar á um framkvæmd endurgreiðslunnar, m.a. með nánari afmörkun á frístundahúsnæði og húsnæði sem er alfarið í eigu sveitarfélaga, en undir það síðarnefnda fellur t.d. skrifstofuhúsnæði, íþróttahús, áhaldahús o.fl. Þrátt fyrir tafir á útgáfu reglugerðarinnar er endurgreiðsla virðisaukaskatt á grundvelli lagabreytingarinnar sem tók gildi 1. mars þegar hafin og er nú þegar komin fram merkjanleg aukning í umræddum endurgreiðslubeiðnum hjá skattstjórum," að því er segir í tilkynningu.

Hins vegar eru breytingar á reglugerð nr. 449/1990, um endurgreiðslu virðisaukaskatts af vinnu manna við íbúðarhúsnæði, en þar er m.a. mælt fyrir um endurgreiðslu ákveðins hlutfalls virðisaukaskatts af verksmiðjuframleiddum húseiningum til viðbótar við verksmiðjuframleidd íbúðarhús.

Sú þróun hefur átt sér stað á undanförnum árum að bygging íbúðarhúsnæðis fer í auknum mæli fram annars staðar en á eiginlegum byggingarstað og er breytingin gerð til þess að koma á jafnræði milli byggingaraðferða, samkvæmt tilkynningu.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Lét dólgslega og stökk í sjóinn

08:21 Karlmaður á þrítugsaldri gisti fangageymslur lögreglunnar á Akureyri í nótt, eftir að hafa látið dólgslega í miðbæ bæjarins og lagst að því búnu til sunds í sjónum. Maðurinn var afar ölvaður að sögn lögreglu. Meira »
Velta á fasteignamarkaði frá janúar til febrúar í ár var 46,335 milljarðar kr. en var ...

Lántakendur varaðir við

05:30 Grípi Seðlabankinn til þess ráðs að hækka vexti frekar gæti það haft veruleg áhrif á mánaðarlega greiðslubyrði af óverðtryggðum fasteignalánum. Meira »

Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti

07:43 Reykjavíkurborg hyggst auka útgjöld til hreinsunar á veggjakroti á þessu ári. Undanfarin ár hefur hreinsun að mestu verið innan miðborgarinnar en úthverfin hafa setið á hakanum. Meira »

Flugfarþegi lak plötu á netið

Umslag plötunnar Valtari.
05:30 Áttunda og nýjasta plata Sigur Rósar, Valtari , kom út í gær en hún er fyrsta breiðskífa sveitarinnar frá því Með suð í eyrum við spilum endalaust kom út fyrir fjórum árum. Meira »

Störfum í bönkum fækkað um 2.000

Friðbert Traustason. Formaður Sambands íslenskra bankamanna .
05:30 Störfum hjá fjármálafyrirtækjum hefur fækkað um 2.000 frá því vorið 2008. Útibúum bankanna hefur fækkað um helming á sama tíma. „Þetta hefur verið hreint hörmungarástand,“ segir Friðbert Traustason, formaður Samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja. Meira »

Athugasemdir við Rússa

Rússnesk skip umskipa afla í Hafnarfjarðarhöfn eftir veiðar á Reykjaneshrygg.
05:30 Íslensk stjórnvöld hafa komið alvarlegum athugasemdum á framfæri við sendiherra Rússlands á Íslandi vegna karfaveiða Rússa á Reykjaneshrygg. Meira »

Kostnaður við komu 4 milljónir

Wen Jiabao og Jóhanna Sigurðardóttir á Geysi
05:30 Ekki hefur verið sótt um aukafjárveitingu vegna kostnaðar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu við heimsókn kínverska forsætisráðherrans Wens Jiabaos. Meira »

Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi

Með batnandi veðri gefst færi til útileikja.
05:30 Vel lítur út með veður víðast hvar á landinu um hvítasunnuhelgina. Reyndar má búast við að rigni á Vestfjörðum í dag, en svo stytti upp og víða verði sólríkt. Hitastig hefur stigið verulega síðustu daga og í dag er búist við að hiti klifri yfir 20 stig á norðaustanverðu landinu. Meira »

Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi

04:53 Sunnan- og suðvestanátt verður á landinu í dag, yfirleitt 5-15 m/s, hvassast norðan- og vestanlands. Rigning við Breiðafjörð og á Vestfjörðum, léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi, en skýjað og súld með köflum syðra. Meira »

Brotist inn meðan íbúar skruppu frá

Í gær, 21:09 Tilkynnt var um innbrot í heimahús í Grafarvogi klukkan sjö í kvöld og söknuðu húsráðendur sjónvarps og ýmissa raftækja. Þeir brugðu sér af bæ í rúma klukkustund og þegar þeir komu heim var búið að brjóta rúðu og komust þjófarnir þannig inn. Meira »

Segir stuðning við Kanadadollar

Kanadadollari. Úr myndasafni.
Í gær, 22:15 „Þetta er rætt í alvöru á Íslandi. Efnahagsráðherrann fór til Kanada fyrir sex vikum og fundaði með kanadíska seðlabankanum og með þingmönnum og að ég tel fjármálaráðuneytinu líka. Hann kom síðan aftur til Íslands og sagði opinberlega að þetta væri möguleiki sem væri ekki hægt að útiloka.“ Meira »

Stefnan áframhaldandi lágt gengi

Einar K. Guðfinnsson, alþingismaður.
Í gær, 20:11 „Það er alveg ljóst mál að þetta kosningaplagg ríkisstjórnarinnar sem kallað hefur verið framkvæmdaáætlun er byggð á þeirri forsendu að gengi íslensku krónunnar haldist álíka veikt og það er í dag,“ segir Einar Kr. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, í samtali við mbl.is. Meira »

Meintar falsanir til lögreglunnar

Ástþór Magnússon, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 19:39 Tekin var ákvörðun um það í dag af yfirkjörstjórnum í Reykjavík að vísa meintum fölsunum á undirskriftum á meðmælendalistum Ástþórs Magnússonar, forsetaframbjóðanda, til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Meira »

Gæsluvarðhaldið staðfest

Í gær, 18:29 Hæstiréttur hefur staðfest gæsluvarðhaldsúrskurð yfir tveimur karlmönnum sem grunaðir eru um að hafa valdið dauða samfanga síns í fangelsinu á Litla-Hrauni fyrir rúmri viku. Héraðsdómur hafði áður úrskurðað mennina í gæsluvarðhald til 13. júní. Meira »

Húsbíll fauk af vegi

Í gær, 18:09 Húsbíll fauk í Fljótum, skammt frá Ketilási um hádegisbilið í dag. Tvennt var í bílnum og voru þau flutt á heilsugæsluna á Siglufirði til aðhlynningar. Meira »

Tryggja að allir komist heilir heim

Í gær, 18:59 Haldið verður úti auknu umferðareftirliti í sumar á Vesturlandsvegi, Suðurlandsvegi og Reykjanesbraut af hálfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í samvinnu við embætti ríkislögreglustjóra. Meira »

Fundur Háskólalestarinnar fellur niður

Frá Ísafirði. Úr myndasafni.
Í gær, 18:22 Fram kemur í tilkynningu frá Háskólalestinni að fyrirlestur um forsetaframboðið sem fara átti fram á Ísafirði í kvöld klukkan 20:00 falli niður vegna þess að öllu flugi frá Reykjavíkur til Ísafjarðar í dag hafi verið aflýst. Meira »

Ólafur mælist með mest fylgi

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands.
Í gær, 18:09 Mikill viðsnúningur hefur orðið í fylgi við forsetaframbjóðendurna Ólaf Ragnar Grímsson og Þóru Arnórsdóttur ef marka niðurstöður nýrrar skoðanakönnunar Capacent Gallup sem greint var frá í fréttum Ríkisútvarpsins. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
FÁÐU RÁÐGJAFA Í HEIMSÓKN - FRÍTT
BETRI REKSTUR. Bókhald og rekstrarráðgjöf. Sími 77 50 200 og 519 7585. www.be...
JEEP GRAND CHEROKEE
Jeep Grand Cherokee Overland 4.7 , 06/2004, ekinn 139 þús. Ssk., le...
Til sölu Nissan Almera - árgerð 2005
Til sölu Nissan Almera 1.8l, árgerð 2005. Sjálfskiptur. Dráttarkúla. Ekinn 110....
PARSUN - UTANBORÐSMÓTORAR - GÆÐI Í GEGN
Eigum á lager á góðu verði eftirfarandi stærðir: 2,6 hp kr. 179.000 5 hp kr. ...
 
Starfsleyfisauglýsing
Tilkynningar
Mynd af auglýsingu ...
Samauglýsing ríkiskaup
Tilboð - útboð
* Nýtt í augl...
Administrative assistant
Sérfræðistörf
Icelandic Institute for Intelligent Mac...
Aðstoðarskólastjóri
Leikskólakennsla
Aðstoðarskólastj...