Ætlað að auka framboð norrænna mynda

Ólafur Darri Ólafsson og Þröstur Leó Gunnarsson í hlutverkum sínum í Brúðguma Baltasars Kormáks. stækka

Ólafur Darri Ólafsson og Þröstur Leó Gunnarsson í hlutverkum sínum í Brúðguma Baltasars Kormáks. mbl.is/úr Brúðgumanum

Norræni kvikmynda- og sjónvarpssjóðurinn (Nordisk Film & TV Fond) mun 1. júlí nk. koma á fót nýju styrkja- og hvatakerfi, undir nafninu Nordic High Five, sem ætlað er að auka framboð og markaðshlutdeild norrænna kvikmynda í kvikmyndahúsum Norðurlandanna, auðvelda dreifingu þeirra á Norðurlöndunum og bæta rekstrarumhverfi rétthafa og dreifingaraðila norrænna mynda. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Norræna kvikmynda- og sjónvarssjóðnum.


Þar er bent á að á undanförnum árum hafi  kvikmyndamarkaðurinn gert útgáfu á norrænum myndum æ erfiðari á Norðurlöndunum. Sjóðurinn hafi nú fundið leið til að sporna við þessari þróun.

Nordic High Five býður upp á styrki sem er beinlínis ætlað til dreifingar á „erlendum“ norrænum kvikmyndum til kvikmyndahúsa á Norðurlöndunum. Það mun jafnframt þýða að fleiri norrænar kvikmyndir verða gefnar út á DVD diskum, á VOD leigum og sýndar í sjónvarpi viðkomandi landa.

Nordic High Five er til að byrja með þriggja ára áætlun og eftir tvö ár verður lagt mat á þann árangur sem náðst hefur. Þeir fimm dreifingaraðilar sem hafa verið valdir til verkefnisins eru Camera Film í Danmörku, BioRex í Finnlandi, Græna ljósið á Íslandi, Arthaus í Noregi og NonStop í Svíþjóð.

„Allir þessir dreifingaraðilar sérhæfa sig í listrænni kvikmyndum og búa því yfir sérþekkingu í að dreifa minni gæðamyndum. Í dreifingu slíkra mynda þarf oft að fara ótroðnar slóðir og leggja á sig mikla vinnu þó að tekjumöguleikunum hætti til að vera minni. Þrátt fyrir listrænt gildi og gæði myndanna er ólíklegt að stærri dreifingarfyrirtækin sýni þeim áhuga. Dreifingaraðilarnir sem hafa orðið fyrir valinu eru allir frekar litlir á sínum heimamarkaði og deila með sér áhuga og metnaði fyrir að kynna norræna kvikmyndagerð,“ segir m.a. í tilkynningunni.

Rifjað er upp að fyrirtækin hafi öll unnið saman við kynningu og sýningar á myndum sem kepptu um Kvikmyndaverðlaun Norðurlandaráðs árið 2008 og munu halda því samstarfi áfram á þessu ári. 

Fyrstu kvikmyndirnar sem dreift verður undir hatti Nordic High Five eru sænska myndin De Ufrivillige eftir Ruben Østlund í Danmörku, sænska myndin Kenny Starfighter eftir Calle Åstrand og Mats Lindberg í Finnlandi, danska myndin Valhalla Rising  eftir Nicolas Winding Refn á Íslandi, finnska myndin Letters to Pastor Jacob eftir Klaus Härö í Noregi og íslenska myndin Brúðguminn eftir Baltasar Kormák í Svíþjóð.
 

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Bryan Ferry í grænum bjarma á tónleikunum í Hörpu í gærkvöldi.

Ferry heillaði í Hörpu

00:43 Bryan Ferry vakti stormandi lukku þegar hann kom fram í Hörpu í gærkvöldi. Ferry lék mörg af sínum þekktustu lögum, jafnt frá sólóferli sínum sem af plötum sínum með hljómsveitinni Roxy Music. Ferry kemur aftur fram í Hörpu í kvöld. Meira »

Átta umferðarslys á tíu dögum í og við Búðardal

Í gær, 19:40 Hvítasunnuhelgin virðist almennt ganga vel fyrir sig að sögn lögreglunnar um land allt enda sól og blíða víðast hvar og tíðindalítið ef frá er talið í Búðardal. Meira »

Peningar ekki rót alls ills myndskeið

Peningar ekki rót alls ills
Í gær, 21:46 Framhaldsskólanemar eyða almennt mestum pening í mat, áfengi og bensín. Þeim gengur misvel að spara og fæstir hafa fengið nokkra fjármálafræðslu, en finnst þörf á því. Þetta kom í ljós þegar mbl.is spjallaði við ungmenni um fjármálalæsi, en í því hafa Íslendingar ítrekað fengið falleinkunn. Meira »

Þriðja árið í röð í 19. - 20. sæti

Jónsi og Gréta á sviðinu í Bakú.
Í gær, 18:47 Íslenski Evróvisjónhópurinn var rúmlega hálfnaður á leiðinni heim þegar mbl.is náði tali af Hrafnhildi Halldórsdóttur nú fyrir stundu. Von er á hópnum til landsins með vél Icelandair í kvöld. Meira »

Catalina er í fullu fjöri

Catalina flugbáturinn sem flaug yfir Reykjavík í dag.
Í gær, 17:26 Flugbátar af Catalinagerð voru í notkun hér á landi á árunum 1944-1963 og var slík vél fyrsta íslenska flugvélin til að fljúga á milli landa og önnur lék stórt hlutverk í þorskastríðinu. 68 ára gömul Catalinavél sveif um loftin blá yfir Reykjavík í dag og verður til sýnis á Flugdeginum á morgun. Meira »

Fyrst til að verða meistari í bílasmíði

Anna Kristín á leið í útskriftina í gær.
Í gær, 21:19 „Áhuginn hafði alltaf blundað í mér,“ segir Anna Kristín Guðnadóttir, sem í gær útskrifaðist með meistarapróf í bílasmíði fyrst íslenskra kvenna. Meira »

Flestir hlynntir staðgöngumæðrun

Í gær, 18:36 Meirihluti Íslendinga er fylgjandi staðgöngumæðrun. Munur er á skoðunum fólks á málefninu eftir stjórnmálaskoðunum og er andstaðan mest hjá kjósendum Vinstri grænna en minnst hjá þeim sem segjast kjósa Sjálfstæðisflokkinn. Meira »

Skjaldborg í skjóli fjalla

Merki Skjaldborgarhátíðarinnar 2012
Í gær, 17:18 „Þetta litar bæjarlífið virkilega skemmtilega,“ segir Alda Davíðsdóttir, Skjaldborgarstjóri í Sjóræningjahúsinu á Patreksfirði. Um helgina hafa í kringum 300 manns sótt heimildamyndahátíðina Skjaldborg í bænum en þetta er í sjötta sinn sem hátíðin fer fram. Meira »

Fisvél brotlenti við Klaustur

Frá vettvangi slyssins á Kirkjubæjarklaustri.
Í gær, 17:04 Fisvél brotlenti við Ásgerði, skammt frá Kirkjubæjarklaustri, um klukkan þrjú í dag. Tveir menn voru í vélinni og sluppu þeir ómeiddir. Meira »

Þóra opnar skrifstofu

Þóra Arnórsdóttir forsetaframbjóðandi.
Í gær, 16:45 Kosningamiðstöð forsetaframboðs Þóru Arnórsdóttur verður opnuð í gömlu Heilsuverndarstöðinni við Barónsstíg á annan í hvítasunnu, mánudaginn 28. maí. Miðstöðin verður opin alla daga klukkan 14-20 fram að kosningum. Meira »

Náttúru, sögu og nytjum gerð skil

Ljósmynd frá Veiðivötnum á sýningunni.
Í gær, 17:00 Ljósmyndasýningin „Í Veiðivötnum“ var opnuð í Heklusetrinu á Leirubakka í gær. Það eru hjónin Sigrún Kristjánsdóttir og Pálmi Bjarnason sem eru höfundar myndanna, og er sýningin afrakstur myndatökuferða þeirra við vötnin undanfarin ár. Meira »

Veðrið leikur við landsmenn

Í Nauthólsvík í dag.
Í gær, 16:38 Veðrið leikur við landsmenn núna um hvítasunnuhelgina og gangi veðurspá eftir verður einmuna veðurblíða og hlýindi næstu daga. Meira »

Lettneska konan enn ófundin

Ligita Solomenceva sem lögreglan leitar að.
Í gær, 16:14 Leit að lettneskri konu sem sást síðast um miðjan þennan mánuð hefur enn ekki borið árangur. Vitað er að hún tók á leigu sumarhús við Meðalfellsvatn og hefur leitin því enn sem komið er farið fram í nágrenni þess. Meira »

Gleymdist að slökkva á eldavélinni

Í gær, 15:49 Dælubíll frá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins var sendur að heimahúsi í Grafarholti fyrr í dag en pottur hafði þar gleymst á eldavél og ekki verið slökkt undir honum. Þegar slökkviliðsmenn komu á vettvang var enginn heima en nágrannar höfðu látið vita af reykjarlykt og síðan reyk. Meira »

Voru frelsinu fegnar

Kýrnar á Helluvaði voru frelsinu fegnar í gær þegar þeim var sleppt út.
Í gær, 15:19 Það var fjölmenni sem fylgdist með því þegar kúnum á Helluvaði á Rangárvöllum var sleppt út í gær á hátíðinni „Halló Helluvað“ sem hefur verið haldin árlega á bænum um nokkurt skeið. Meira »

Við akstur undir áhrifum kannabis

Í gær, 15:55 Lögreglan á Selfossi stöðvaði ökumann á Biskupstungnabraut í Grímsnesi rétt fyrir hádegi í dag við reglubundið eftirlit vegna gruns um að sá æki undir áhrifum. Meira »

Fjölmennasti hópurinn frá upphafi

Frá Akureyri. Úr myndasafni.
Í gær, 15:43 Verkmenntaskólinn á Akureyri brautskráði 191 nemanda með 223 skírteini í gær þegar skólanum var slitið í menningarhúsinu Hofi. Fram kom í ræðu Sigríðar Huldar Jónsdóttur, skólameistara VMA, að um væri að ræða fjölmennasta hóp sem hefði verið útskrifaður frá skólanum en alls hefðu verið brautskráðir 292 nemendur á skólaárinu. Meira »

Margir sóla sig í sundi í dag

Frá sundlauginni í Laugardal í dag.
Í gær, 14:51 Margir nota tækifærið í veðurblíðunni og bregða sér í sund í dag, hvítasunnudag, en sundlaugar eru víða opnar. Um helmingur sundlauganna á höfuðborgarsvæðinu er opinn í dag. Afgreiðslutími þeirra er misjafn, þeim er yfirleitt lokað á bilinu 18-19, en Versalalaug í Kópavogi er opin til klukkan 20. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Til sölu 20ha
Til sölu c.a.20 ha lóð í Biskupstungum. Frábær staðsetning bæði fyrir hestafólk ...
VW TOUAREG V6 TDI 225hp.
Tilboð 4.200 þ. kr. Ásett 4.600 þ. kr., árg.2005, akst. 110.000 km. Álfelgur, au...
Aquaflex grindarbotnsþjálfi
Hvað gerist ef þú hlærð of mikið, hnerrar óvænt, beygir þig fram eða ferð í leik...
ELTAK - VOGIR
Eltak sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum. Bjóðum mesta úrval á Íslandi af s...
 
Grunn og leikskólakennarar
Grunn-/framhaldsskóla
Grunn- og leikskólakennarar ...
Samkoma
Félagsstarf
Safnaðarheimilið Grens...
5 mál
Nauðungarsala
Uppboð Einnig birt á www.naud...
Leikskólastjóri við sunnufold
Stjórnunarstörf
Skóla- og frístundasviði Reykjavíkurborg...