Eiga rétt á ýmsum endurgreiðslum
Íslenskir þingmenn eiga rétt fá ýmsan starfstengdan kostnað endurgreiddan. T.d. ferða- húsnæðis- og símakostnað. mbl.is/Ómar
Mikill titringur er í Bretlandi vegna frétta af kostnaðargreiðslum til ráðherra og þingmanna á árunum 2004-2008. Á vef Alþingis er kveðið á um kjör og réttindi íslenskra þingmanna. Þar er ekkert minnst á að þingmenn megi láta þingið greiða fyrir hundamat, ljósaperur og innréttingar líkt og breskir starfsbræður þeirra hafa látið gera. Íslensku þingmennirnir eiga hins vegar rétt á að fá ýmsan starfstengdan kostnað endurgreiddan.
Í upplýsingaritinu Háttvirtur þingmaður, sem skrifstofa Alþingis gefur út, er meðal annars kveðið á um starfskjör íslenskra þingmanna.
Ferðakostnaður innanlands
Varðandi ferðakostnað innanlands kemur fram að almenna reglan sé sú að þingmenn eigi rétt á að fá greiddan ferðakostnað í eigin kjördæmi, svo og kostnað við ferðir milli heimilis og Reykjavíkur og fundarferðir í önnur kjördæmi.
„Föst mánaðarleg greiðsla ferðakostnaðar í eigin kjördæmi skal standa undir ferðakostnaði og uppihaldi í kjördæminu. Fjárhæðin á árinu 2009 er 61.400 kr. á mánuði,“ segir í handbókinni.
Þá segir að þingmenn utan Reykjavíkurkjördæma og Suðvesturkjördæmis eigi rétt á að fá endurgreiddan vikulegan ferðakostnað milli heimilis og Alþingis. Þingmenn sem búi utan Reykjavíkur og kjósi að ferðast daglega til og frá vinnustað fá kostnaðinn endurgreiddan en fá þá greiddan einn þriðja hluta húsnæðiskostnaðar sem á að standa undir tilfallandi gistingu í Reykjavík.
Húsnæðis- og dvalarkostnaður
Í upplýsingaritinu kemur fram að þingmenn annarra kjördæma en Reykjavíkurkjördæma og Suðvesturkjördæmis fái fasta upphæð mánaðarlega, sem sé 90.700 kr. á árinu 2009, til að standa undir húsnæðis- og dvalarkostnaði í Reykjavík eða nágrenni. Eigi þeir aðalheimili á höfuðborgarsvæðinu sé fjárhæðinni ætlað að standa undir sams konar kostnaði í kjördæmi. Þá geti þingmaður, sem þurfi að halda tvö heimili, sótt um 40% álag. Ferðist þingmenn utan höfuðborgarsvæðis daglega milli Alþingis og heimilis megi endurgreiða ferðakostnaðinn en þá sé einn þriðji húsnæðiskostnaðar greiddur.
Símakostnaður
Þá eiga alþingismenn rétt á að fá endurgreiddan símakostnað sem tengist þingstörfum þeirra. Auk símakostnaðar á skrifstofu er endurgreiddur kostnaður við síma á heimili og starfsstöð og farsíma. Þingmenn eru hins vegar hvattir til að gæta aðhalds í símanotkun og er þeim send tilkynning ef símakostnaður fer yfir tiltekna fjárhæð svo að þeir geti gert viðeigandi ráðstafanir, þ.e. ákveðið að greiða hluta kostnaðar sjálfir. Það er á ábyrgð þingmannsins að meta hvort kostnaðurinn tengist þingstörfum eða ekki.
Ferðakostnaður erlendis
Almenna reglan er að dagpeningar eru greiddir í samræmi við reglur um greiðslu ferðakostnaðar á vegum ríkisins sem ferðakostnaðarnefnd gefur út og birtar eru í Lögbirtingablaði. Alþingismenn eiga þó rétt á að fá greiddan gistikostnað (hótelherbergi) og 50% fullra dagpeninga til viðbótar. Tekin er staðgreiðsla af hluta greiðslunnar samkvæmt ákvörðun ríkisskattstjóra. Þingmaður skal greiða ferðir til og frá flugvöllum heima og erlendis af dagpeningum.
Starfskostnaður
Samkvæmt 9. gr. þingfararkaupslaga eiga alþingismenn rétt á að fá endurgreiddan kostnað sem hlýst af starfi þeirra gegn framvísun reikninga. Hámark slíkrar greiðslu er 796.800 kr. á árinu 2009.
Alþingismenn geta einnig valið að fá greiddan starfskostnað sem fasta mánaðarlega fjárhæð, 66.400 kr. á árinu 2009, og þá dregst staðgreiðsla af fjárhæðinni.
Ef þingmenn fá fasta mánaðarlega greiðslu geta þeir framvísað reikningum fyrir greiddum starfskostnaði og fengið þann hluta sem nemur staðgreiðslunni endurgreiddan við næstu mánaðarlega útborgun starfskostnaðar. Ef fjárhæðin er hærri en sem nemur mánaðarlegum starfskostnaði kemur mismunurinn til lækkunar í næsta mánuði eða á næstu mánuðum þar á eftir.
Nánari upplýsingar er að finna hér.



































