Læknafélagið ályktar um málefni yfirlæknis
Stjórn Læknafélags Íslands lýsir yfir miklum áhyggjum vegna þeirrar stöðu sem upp er komin á Austurlandi vegna deilna yfirstjórnar Heilbrigðisstofnunar Austurlands og yfirlæknis við stofnunina.
Hannes Sigmarsson, yfirlæknir við Heilsugæslu Fjarðabyggðar, hefur enn ekki aftur snúið til vinnu þrátt fyrir að embætti ríkissaksóknara hafi ákveðið að vísa kæru HSA frá. Endurkoma hans hefur frestast þar sem Ríkisendurskoðun tók nýverið ákvörðun um að hefja rannsókn á málefnum læknisins auk þess sem embætti landlæknis hefur ekki lokið rannsókn á faglegum þáttum verka hans.
Hannes sem var grunaður um fjárdrátt í starfi nýtur mikils stuðnings og nýverið voru stofnuð Hollvinasamtök heilsugæslunnar í Fjarðabyggð. Um 90 manns eru í samtökunum sem m.a. vinna að því að standa vörð um heilsugæsluna, starfsemi hennar og starfsfólk.
„Það er áhyggjuefni þegar viðkvæm deiluefni eru rekin í fjölmiðlum og getur leitt til þess að torvelda leiðina að lausn vandans. Það er sérstakt áhyggjuefni þegar deila stjórnenda heilbrigðisstofnana við heilbrigðisstarfsmenn bitnar á sjúklingum.
Stjórn Læknafélags Íslands minnir á þá grundvallarreglu að hver maður skuli teljast saklaus uns sekt hans hefur verið sönnuð með dómi, sbr. 2. mgr. 70. gr. stjórnarskrárinnar og 2. mgr. 6. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Þá vekur stjórn Læknafélagsins athygli á því að umboðsmaður Alþingis hefur í nýlegu áliti sínu, 5142/2007, kveðið upp úr með það, að ummæli forstjóra sem handhafa opinbers valds um mögulega sekt starfsmanns af refsiverðri háttsemi megi ekki lýsa afstöðu hans án þess að staðhæfingin hafi verið staðfest með dómi í sakamáli. Skv. eftirprentunum úr fréttatímum ljósvakamiðla hefur þessi grundvallarregla verið brotin gegn félagsmanni í Læknafélagi Íslands.
Stjórn Læknafélags Íslands hvetur deiluaðila til að leita leiða til lausnar með hagsmuni íbúa og skattgreiðenda að leiðarljósi. Til að það megi verða eru allir málsaðilar hvattir til að leggja af opinbera umfjöllun um málið meðan það er til úrlausnar," að því er segir í yfirlýsingu frá stjórn Læknafélags Íslands.
Innlent »
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
Svipaðar fréttir
- Mánudagur, 20. apríl 2009, Innlent Hannes snýr aftur heim
- Föstudagur, 1. maí 2009, Innlent Til rannsóknar hjá landlækni og Ríkisendurskoðun
- Föstudagur, 13. febrúar 2009, Innlent Yfirlæknir við Heilsugæslu Fjarðabyggðar leystur frá störfum
- Fimmtudagur, 5. nóvember 2009, Innlent Vilja að Fjarðabyggð yfirtaki stjórn heilsugæslu
- Þriðjudagur, 29. desember 2009, Innlent Yfirlækni sagt upp störfum
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli


































