Verðmæti útflutnings sjávarafurða jókst um 42,3%

mbl.is

Á árinu 2008 nam verðmæti útflutningsframleiðslu sjávarafurða 181 milljarði króna og jókst um 42,3% frá fyrra ári. Framleiðslan mæld á föstu verði dróst hins vegar saman um 1,5%. Þetta kemur fram í frétt hagstofunnar um útgáfu ritsins Útflutningur og útflutningsframleiðsla sjávarafurða 2008.

Fluttar voru út sjávarafurðir að verðmæti 171,3 milljarðar króna á síðasta ári og jókst verðmæti þeirra milli ára um 34,3%, en í magni um 12,5%.

Útflutt afurðaverðmæti allra aflategunda nema skel- og krabbadýrum og flatfiski jókst frá fyrra ári. Líkt og undanfarin ár skiluðu frystar afurðir um helmingi útflutningsverðmætis.

Af einstökum afurðum vóg verðmæti blautverkaðs saltfisks úr þorski mest, 14 milljarða króna. Af heildarútflutningi sjávarafurða fór 79% til Evrópska efnahagssvæðisins, 6,3% til Asíu 6,2% og 5,6% til Norður Ameríku.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert