Sóknaráætlun fyrir Ísland
Steingrímur J. Sigfússon og Jóhanna Sigurðardóttir á ríksstjórnarfundinum á Akureyri í dag. mbl.is/Skapti
Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, fjallaði á fyrsta fundi nýrrar ríkisstjórnar í dag um sóknaráætlun fyrir Ísland en ríkisstjórnin hyggst efna til viðtæks samráðs undir forystu forsætisráðuneytisins um sóknaráætlanir fyrir alla landshluta til að efla atvinnulíf og lífsgæði til framtíðar.
Í sóknaráætluninni á að leggja heildstætt mat á styrkleika Íslands og tækifæri og hvernig sækja megi fram, ekki síst á sviði atvinnumála. Með henni á að nást yfirsýn yfir áætlanir sem heyra undir ólík ráðuneyti auk þess sem greint verður hvernig þær geti spilað saman til að Ísland geti orðið eitt af 10 samkeppnishæfustu ríkjum heims árið 2020. Jafnframt verði gerðar sérstakar sóknaráætlanir fyrir hvern landshluta fyrir sig og þær verði unnar í samráði við íbúa, sveitarfélög, hagsmunaaðila, grasrótarhreyfingar og sérfræðinga.
Fundurinn var haldinn á Akureyri. Þar lagði Jóhanna fram hugmyndir um hvernig háttað verður málsmeðferð stórra mála á Alþingi, sem varða lýðræðisumbætur, t.d. frumvarp um persónukjör, frumvarp um þjóðaratkvæðagreiðslu og frumvarp um ráðgefandi stjórnlagaþing.
Hún kynnti jafnframt áform um vinnslu gagna sem skilgreina eiga stöðu lykilstærða í samfélags- og efnahagsmálum en þessi úttekt er hluti af 100 daga áætlun ríkisstjórnarinnar.
Svandís Svavarsdóttir, umhverfisráðherra, kynnti þrjú frumvörp, sem lögð verða fyrir vorþing og Gylfi Magnússon, viðskiptaráðherra, lagði fram fimm mál. Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, lagði fram á ný frumvarp um eignaumsýslufélag en umfjöllun um það lauk ekki á síðasta þingi. Ennfremur fjallaði Steingrímur um Þjóðarbúskapinn, vorskýrslu ráðuneytisins um stöðu og horfur í efnahagsmálum.
Bloggað um fréttina
-
Tryggvi Helgason Tillaga að upphafi nýrrar sóknar. -
Björn Heiðdal Brú til Brussels, aðra leið.
Innlent »
- „Svona sending er ný reynsla“
- „Ég reyni að lifa lífinu til fulls“
- „Lögmál útrásarinnar lifa enn góðu lífi“
- Par villtist á leiðinni í Þórsmörk
- 65 brautskráðir á Sauðárkróki
- „Þú ert númer 44 í röðinni“
- Vatn flæddi yfir veginn
- Bilun í netkerfi Símans
- Krefjast þess að bankinn endurskoði áform sín
- Vissu ekki hver hefði ekið
Laugardagur, 26.5.2012
- „Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“
- Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi
- Íslenska lagið fékk 46 stig
- Svíar unnu Evróvisjón 2012
- Manni bjargað úr Ölfusá
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 11. júní 2009, Innlent Stýrihópur um eflingu atvinnulífs
- Þriðjudagur, 26. janúar 2010, Innlent Segja sóknaráætlun ganga samkvæmt áætlun
- Mánudagur, 18. janúar 2010, Innlent Fundir í öllum landshlutum
- Þriðjudagur, 19. janúar 2010, Innlent Rætt um sóknaráætlun
- Fimmtudagur, 20. nóvember 2008, Innlent Sóknaráætlun fyrir Reykjavík
-
Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju



































