Erfiður niðurskurður

Í Laugarnesskóla stækka

Í Laugarnesskóla mbl.is/Jim Smart

Morgunblaðið eftir Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is

Menntasvið Reykjavíkur er farið að fá í hendur rekstraráætlanir frá stjórnendum grunnskólanna vegna næsta skólaárs. Að sögn Jóns Inga Einarssonar, fjármálastjóra menntasviðs, eru þær áætlanir innan fjárheimilda en að jafnaði munu útgjöld til grunnskólanna 36 dragast saman um 7%.

Í heild gæti þetta numið um 740 milljónum króna, þar af er 141 milljón vegna fækkunar nemenda umfram áætlanir. Kennslutengdir þættir eru skornir niður um 5,5%.

Jón Ingi sendi nýverið út bréf til allra skólastjóra í borginni þar sem fjallað er um fjárhagsáætlunina og hvaða leiðir eru færar til að draga úr útgjöldum. Þar eru m.a. settar fram hugmyndir í 19 liðum, sem eru afrakstur vinnuhópa úr öllum hverfum Reykjavíkur, sem skólastjórar skipuðu í. Heildarfjárhæð úr þeim hugmyndum, sem birtar eru í töflu hér til hliðar, er sparnaður upp á nærri 203 milljónir króna. Að sögn Jóns Inga er hugmyndunum ætlað að megninu til að vera leiðbeinandi fyrir skólastjórana, þar sem aðstæður geti verið mjög mismunandi í hverjum skóla fyrir sig. Hins vegar á það við um alla skólana að þeir munu taka út þá viðbótarkennslustund sem fyrir nokkrum árum var sett inn hjá 2.-4. bekk grunnskóla.

Skólastjórnendur eru ekki í öfundsverðu hlutverki við þessar erfiðu aðstæður. Borgaryfirvöld hafa lýst því yfir að fastráðnum borgarstarfsmönnum verði ekki sagt upp en lausráðið starfsfólk og leiðbeinendur fá ekki endurráðningu í mörgum tilvikum. Dregið verður úr yfirvinnu og margs konar kostnaður í rekstrinum skorinn niður. Til þessa aðhalds var þegar gripið í vetur, að stórum hluta, en hætt er við að sparnaðurinn þurfi að vera enn meiri næsta skólaár. Samtök skólastjóra, kennara og foreldra hafa öll lýst áhyggjum sínum af áhrifum niðurskurðarins á skólastarfið.

Nánar er fjallað um málið í Morgunblaðinu í dag.
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Lét dólgslega og stökk í sjóinn

08:21 Karlmaður á þrítugsaldri gisti fangageymslur lögreglunnar á Akureyri í nótt, eftir að hafa látið dólgslega í miðbæ bæjarins og lagst að því búnu til sunds í sjónum. Maðurinn var afar ölvaður að sögn lögreglu. Meira »
Velta á fasteignamarkaði frá janúar til febrúar í ár var 46,335 milljarðar kr. en var ...

Lántakendur varaðir við

05:30 Grípi Seðlabankinn til þess ráðs að hækka vexti frekar gæti það haft veruleg áhrif á mánaðarlega greiðslubyrði af óverðtryggðum fasteignalánum. Meira »

Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti

07:43 Reykjavíkurborg hyggst auka útgjöld til hreinsunar á veggjakroti á þessu ári. Undanfarin ár hefur hreinsun að mestu verið innan miðborgarinnar en úthverfin hafa setið á hakanum. Meira »

Flugfarþegi lak plötu á netið

Umslag plötunnar Valtari.
05:30 Áttunda og nýjasta plata Sigur Rósar, Valtari , kom út í gær en hún er fyrsta breiðskífa sveitarinnar frá því Með suð í eyrum við spilum endalaust kom út fyrir fjórum árum. Meira »

Störfum í bönkum fækkað um 2.000

Friðbert Traustason. Formaður Sambands íslenskra bankamanna .
05:30 Störfum hjá fjármálafyrirtækjum hefur fækkað um 2.000 frá því vorið 2008. Útibúum bankanna hefur fækkað um helming á sama tíma. „Þetta hefur verið hreint hörmungarástand,“ segir Friðbert Traustason, formaður Samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja. Meira »

Athugasemdir við Rússa

Rússnesk skip umskipa afla í Hafnarfjarðarhöfn eftir veiðar á Reykjaneshrygg.
05:30 Íslensk stjórnvöld hafa komið alvarlegum athugasemdum á framfæri við sendiherra Rússlands á Íslandi vegna karfaveiða Rússa á Reykjaneshrygg. Meira »

Kostnaður við komu 4 milljónir

Wen Jiabao og Jóhanna Sigurðardóttir á Geysi
05:30 Ekki hefur verið sótt um aukafjárveitingu vegna kostnaðar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu við heimsókn kínverska forsætisráðherrans Wens Jiabaos. Meira »

Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi

Með batnandi veðri gefst færi til útileikja.
05:30 Vel lítur út með veður víðast hvar á landinu um hvítasunnuhelgina. Reyndar má búast við að rigni á Vestfjörðum í dag, en svo stytti upp og víða verði sólríkt. Hitastig hefur stigið verulega síðustu daga og í dag er búist við að hiti klifri yfir 20 stig á norðaustanverðu landinu. Meira »

Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi

04:53 Sunnan- og suðvestanátt verður á landinu í dag, yfirleitt 5-15 m/s, hvassast norðan- og vestanlands. Rigning við Breiðafjörð og á Vestfjörðum, léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi, en skýjað og súld með köflum syðra. Meira »

Brotist inn meðan íbúar skruppu frá

Í gær, 21:09 Tilkynnt var um innbrot í heimahús í Grafarvogi klukkan sjö í kvöld og söknuðu húsráðendur sjónvarps og ýmissa raftækja. Þeir brugðu sér af bæ í rúma klukkustund og þegar þeir komu heim var búið að brjóta rúðu og komust þjófarnir þannig inn. Meira »

Segir stuðning við Kanadadollar

Kanadadollari. Úr myndasafni.
Í gær, 22:15 „Þetta er rætt í alvöru á Íslandi. Efnahagsráðherrann fór til Kanada fyrir sex vikum og fundaði með kanadíska seðlabankanum og með þingmönnum og að ég tel fjármálaráðuneytinu líka. Hann kom síðan aftur til Íslands og sagði opinberlega að þetta væri möguleiki sem væri ekki hægt að útiloka.“ Meira »

Stefnan áframhaldandi lágt gengi

Einar K. Guðfinnsson, alþingismaður.
Í gær, 20:11 „Það er alveg ljóst mál að þetta kosningaplagg ríkisstjórnarinnar sem kallað hefur verið framkvæmdaáætlun er byggð á þeirri forsendu að gengi íslensku krónunnar haldist álíka veikt og það er í dag,“ segir Einar Kr. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, í samtali við mbl.is. Meira »

Meintar falsanir til lögreglunnar

Ástþór Magnússon, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 19:39 Tekin var ákvörðun um það í dag af yfirkjörstjórnum í Reykjavík að vísa meintum fölsunum á undirskriftum á meðmælendalistum Ástþórs Magnússonar, forsetaframbjóðanda, til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Meira »

Gæsluvarðhaldið staðfest

Í gær, 18:29 Hæstiréttur hefur staðfest gæsluvarðhaldsúrskurð yfir tveimur karlmönnum sem grunaðir eru um að hafa valdið dauða samfanga síns í fangelsinu á Litla-Hrauni fyrir rúmri viku. Héraðsdómur hafði áður úrskurðað mennina í gæsluvarðhald til 13. júní. Meira »

Húsbíll fauk af vegi

Í gær, 18:09 Húsbíll fauk í Fljótum, skammt frá Ketilási um hádegisbilið í dag. Tvennt var í bílnum og voru þau flutt á heilsugæsluna á Siglufirði til aðhlynningar. Meira »

Tryggja að allir komist heilir heim

Í gær, 18:59 Haldið verður úti auknu umferðareftirliti í sumar á Vesturlandsvegi, Suðurlandsvegi og Reykjanesbraut af hálfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í samvinnu við embætti ríkislögreglustjóra. Meira »

Fundur Háskólalestarinnar fellur niður

Frá Ísafirði. Úr myndasafni.
Í gær, 18:22 Fram kemur í tilkynningu frá Háskólalestinni að fyrirlestur um forsetaframboðið sem fara átti fram á Ísafirði í kvöld klukkan 20:00 falli niður vegna þess að öllu flugi frá Reykjavíkur til Ísafjarðar í dag hafi verið aflýst. Meira »

Ólafur mælist með mest fylgi

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands.
Í gær, 18:09 Mikill viðsnúningur hefur orðið í fylgi við forsetaframbjóðendurna Ólaf Ragnar Grímsson og Þóru Arnórsdóttur ef marka niðurstöður nýrrar skoðanakönnunar Capacent Gallup sem greint var frá í fréttum Ríkisútvarpsins. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
NISSAN PRIMERA 2002. Sjálfskiptur og nýskoðaður og ÓDÝR!
Til sölu Nissan Primera árg. 2002, ekinn 149 þúsund km. Bíllinn er í toppstandi,...
Húsasmíðameistari.
Tek að mér smíði sumarhúsa. Get séð um frá sökkli að fullbúnu. Fagmennska uppl. ...
Bókhaldsstofan ehf, Reykjavíkurv.60 Hfj.
Bókhald, launaútreikn., vsk-uppgjör, stofnun á félögum, ársreikningar, skattfram...
Yorkshire terrier bræður í leit að heimili
Yorkshire terrier rakkar leita að framtíðarheimili. Yndislegur heimilishundur, f...
 
Samkoma
Félagsstarf
Samkoma, sunnudag kl. 17 Ken Lock...
Ný útboð
Tilboð - útboð
ÚTBOÐ Reykjavíkurborg Innkaupaskri...
Kynning skipulagsmála í rangárþingi eystra

Kynning skipulagstillöguí Rangárþin...
Aðalfundarboð félag skipstjórnarmanna

Félag skipstjórnarmanna Aðalfundarboð...