Í farbann vegna gruns um aðild að smygli og vændi

Kona hefur verið úrskurðuð í farbann til 10. júní vegna gruns um aðild að fíkniefnasmygli ...

Kona hefur verið úrskurðuð í farbann til 10. júní vegna gruns um aðild að fíkniefnasmygli og vændi mbl.is/ÞÖK

Kona um þrítugt hefur verið úrskurðuð í farbann til 10. júní að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Konan er grunuð um aðild að innflutningi fíkniefna og að hafa haft milligöngu um vændi. Hún hefur setið í gæsluvarðahaldi undanfarið en úrskurðurinn rann út í gær. 

Karl Steinar Valsson, yfirmaður fíkniefnadeildar lögreglunnar, sagði í samtali við mbl.is fyrr í mánuðinum að konan sé íslenskur ríkisborgari. Hún var einnig úrskurðuð í gæsluvarðhald fyrr á árinu.

Þá úrskurðaði Héraðsdómur Reykjaness konuna í gæsluvarðhald til 27. febrúar. Konan var þá grunuð um að hafa haft atvinnu af vændi ungra kvenna, sem hún hafi flutt hingað til lands. Hún var þá einnig grunuð um aðild að fíkniefnamáli. Konan kærði úrskurðinn en Hæstiréttur vísaði málinu frá.

Fram kom í úrskurði héraðsdóms, að lögreglu hefði borist upplýsingar um að konan og unnusti hennar hefðu farið til Hollands og ætluðu að flytja með sér mikið magn af fíkniefnum. Unnustinn var síðan handtekinn á Schipholflugvelli í Amsterdam þann 13. febrúar sl. með mikið magn fíkniefna í sínum vörslum.

Þá sagðist lögreglan fyrr á þessu ári hafa rökstuddan grun um að konan tengdist fyrirhuguðum innflutningi fíkniefnanna frá Hollandi. Þá hefði verið til staðar rökstuddur grunur þess efnis að málið tengdist mun umfangsmeiri innflutningi fíkniefna hingað til lands á undanförnum mánuðum og árum. 

Tengsl við belgísk burðardýr

Aðspurður sagði Karl Steinar að hugsanleg tengsl séu á milli konunnar og tveggja belgískra kvenna á þrítugsaldri sem voru handteknar í Leifsstöð með u.þ.b. 350 grömm af kókaíni í síðasta mánuði. Konurnar komu til landsins með flugi frá Amsterdam og voru þann 4. maí dæmdar í 10 mánaða fangelsi fyrir kókaínsmyglið.

Konunar voru samvinnufúsar við rannsókn málsins og bentu á mynd hjá lögreglu af þeim sem skipulagði innflutning fíkniefnanna. Var þetta virt konunum til lækkunar refsingar.

Þá er einnig talið að belgískur karlmaður á þrítugsaldri sem reyndi að flytja fíkniefni til landsins innvortis tengist konunni. Maðurinn flúði frá lögreglu eftir handtöku í Leifsstöð í síðasta mánuði en náðist daginn eftir í miðbæ Keflavíkur.
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Velta á fasteignamarkaði frá janúar til febrúar í ár var 46,335 milljarðar kr. en var ...

Lántakendur varaðir við

05:30 Grípi Seðlabankinn til þess ráðs að hækka vexti frekar gæti það haft veruleg áhrif á mánaðarlega greiðslubyrði af óverðtryggðum fasteignalánum. Meira »
Rússnesk skip umskipa afla í Hafnarfjarðarhöfn eftir veiðar á Reykjaneshrygg.

Athugasemdir við Rússa

05:30 Íslensk stjórnvöld hafa komið alvarlegum athugasemdum á framfæri við sendiherra Rússlands á Íslandi vegna karfaveiða Rússa á Reykjaneshrygg. Meira »

Flugfarþegi lak plötu á netið

Umslag plötunnar Valtari.
05:30 Áttunda og nýjasta plata Sigur Rósar, Valtari , kom út í gær en hún er fyrsta breiðskífa sveitarinnar frá því Með suð í eyrum við spilum endalaust kom út fyrir fjórum árum. Meira »

Störfum í bönkum fækkað um 2.000

Friðbert Traustason. Formaður Sambands íslenskra bankamanna .
05:30 Störfum hjá fjármálafyrirtækjum hefur fækkað um 2.000 frá því vorið 2008. Útibúum bankanna hefur fækkað um helming á sama tíma. „Þetta hefur verið hreint hörmungarástand,“ segir Friðbert Traustason, formaður Samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja. Meira »

Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi

04:53 Sunnan- og suðvestanátt verður á landinu í dag, yfirleitt 5-15 m/s, hvassast norðan- og vestanlands. Rigning við Breiðafjörð og á Vestfjörðum, léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi, en skýjað og súld með köflum syðra. Meira »

Kostnaður við komu 4 milljónir

Wen Jiabao og Jóhanna Sigurðardóttir á Geysi
05:30 Ekki hefur verið sótt um aukafjárveitingu vegna kostnaðar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu við heimsókn kínverska forsætisráðherrans Wens Jiabaos. Meira »

Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi

Með batnandi veðri gefst færi til útileikja.
05:30 Vel lítur út með veður víðast hvar á landinu um hvítasunnuhelgina. Reyndar má búast við að rigni á Vestfjörðum í dag, en svo stytti upp og víða verði sólríkt. Hitastig hefur stigið verulega síðustu daga og í dag er búist við að hiti klifri yfir 20 stig á norðaustanverðu landinu. Meira »

Segir stuðning við Kanadadollar

Kanadadollari. Úr myndasafni.
Í gær, 22:15 „Þetta er rætt í alvöru á Íslandi. Efnahagsráðherrann fór til Kanada fyrir sex vikum og fundaði með kanadíska seðlabankanum og með þingmönnum og að ég tel fjármálaráðuneytinu líka. Hann kom síðan aftur til Íslands og sagði opinberlega að þetta væri möguleiki sem væri ekki hægt að útiloka.“ Meira »

Brotist inn meðan íbúar skruppu frá

Í gær, 21:09 Tilkynnt var um innbrot í heimahús í Grafarvogi klukkan sjö í kvöld og söknuðu húsráðendur sjónvarps og ýmissa raftækja. Þeir brugðu sér af bæ í rúma klukkustund og þegar þeir komu heim var búið að brjóta rúðu og komust þjófarnir þannig inn. Meira »

Meintar falsanir til lögreglunnar

Ástþór Magnússon, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 19:39 Tekin var ákvörðun um það í dag af yfirkjörstjórnum í Reykjavík að vísa meintum fölsunum á undirskriftum á meðmælendalistum Ástþórs Magnússonar, forsetaframbjóðanda, til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Meira »

Stefnan áframhaldandi lágt gengi

Einar K. Guðfinnsson, alþingismaður.
Í gær, 20:11 „Það er alveg ljóst mál að þetta kosningaplagg ríkisstjórnarinnar sem kallað hefur verið framkvæmdaáætlun er byggð á þeirri forsendu að gengi íslensku krónunnar haldist álíka veikt og það er í dag,“ segir Einar Kr. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, í samtali við mbl.is. Meira »

Tryggja að allir komist heilir heim

Í gær, 18:59 Haldið verður úti auknu umferðareftirliti í sumar á Vesturlandsvegi, Suðurlandsvegi og Reykjanesbraut af hálfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í samvinnu við embætti ríkislögreglustjóra. Meira »

Gæsluvarðhaldið staðfest

Í gær, 18:29 Hæstiréttur hefur staðfest gæsluvarðhaldsúrskurð yfir tveimur karlmönnum sem grunaðir eru um að hafa valdið dauða samfanga síns í fangelsinu á Litla-Hrauni fyrir rúmri viku. Héraðsdómur hafði áður úrskurðað mennina í gæsluvarðhald til 13. júní. Meira »

Húsbíll fauk af vegi

Í gær, 18:09 Húsbíll fauk í Fljótum, skammt frá Ketilási um hádegisbilið í dag. Tvennt var í bílnum og voru þau flutt á heilsugæsluna á Siglufirði til aðhlynningar. Meira »

Yfirheyrslur héldu áfram í dag

Fangelsið á Litla-Hrauni.
Í gær, 18:00 Yfirheyrslur vegna láts fanga á Litla-Hrauni, sem talið er hafa borið að með sviplegum hætti, héldu áfram í dag og var nokkur fjöldi vitna yfirheyrður, þar á meðal fólk sem tengist fangelsinu. Meira »

Fundur Háskólalestarinnar fellur niður

Frá Ísafirði. Úr myndasafni.
Í gær, 18:22 Fram kemur í tilkynningu frá Háskólalestinni að fyrirlestur um forsetaframboðið sem fara átti fram á Ísafirði í kvöld klukkan 20:00 falli niður vegna þess að öllu flugi frá Reykjavíkur til Ísafjarðar í dag hafi verið aflýst. Meira »

Ólafur mælist með mest fylgi

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands.
Í gær, 18:09 Mikill viðsnúningur hefur orðið í fylgi við forsetaframbjóðendurna Ólaf Ragnar Grímsson og Þóru Arnórsdóttur ef marka niðurstöður nýrrar skoðanakönnunar Capacent Gallup sem greint var frá í fréttum Ríkisútvarpsins. Meira »

Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð

Í gær, 17:49 Talsvert magn af fíkniefnum fannst við húsleit lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í kjallaraíbúð í miðborginni í gær.   Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Til sölu vespa
Til sölu mjög vel með farin Znen 50 QT 11C tvígengis vespa. Ekin aðeins 3.200 ...
Mitsubishi Pajero árg. 1992 til sölu.
Til sölu góður Mitsubishi Pajero árg. 1992. Bensín. Ekinn 270.000. Lítur vel út...
Rafskutla til sölu
Til sölu ónotuð rafskutla sem hentaði ekki viðkomandi einstaklingi. Verð: 295.0...
Toyota Land Crusier 2008
Toyota Land Crusier 120 GX. Sjsk. Diesel. Ekinn 67.000, 2008 árgerð. Ásett ve...
 
Aðalfundur félags háskólakvenna

Félag háskólakvenna og kvenstúdenta Aðal...
Ársfundur vina vatnajökuls

Ársfundur Vina Vatnajökuls, hollvinasamt...
Aðalfundur búmanna hsf

Aðalfundur Aðalfundur Búmanna hsf. ver...
Sýslumaðurinn í vík - framhald uppboðs

Uppboð www.naudungarsolur.is Framhald up...