Sendur heim að lokinni læknisskoðun
Hælisleitandinn Mansri Hichem, sem verið hefur verið í hungurverkfalli síðustu þrjár vikur, var sendur heim í gærkvöldi að lokinni læknisskoðun á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja.
Í samtali við mbl.is segir Linda Magnúsdóttir, sjúkraliði sem fylgst hefur ástandi Hichem, að hann hafi hvorki viljað þiggja næringu í æð né saltvatnsupplausn og því hafi hann verið útskrifaður.
Að sögn Lindu heyrði hún í Hichem í morgun og þá hefði hann tjáð henni að hann hefði náð að sofa smávegis í nótt. „Hann á hins vegar orðið mjög erfitt með svefn vegna verkja bæði fyrir brjósti og í maga,“ segir Linda.
Aðspurð segir hún Hichem staðráðinn í því að halda áfram hungurverkfalli sínu þar til niðurstaða í máli hans fáist hjá dómsmálaráðherra. „Hann er búinn að bíða svo lengi eftir úrlausn sinna mála að hann er í raun búinn að gefa upp alla von. Hann segir að líf sitt muni engu máli skipta verði hann sendur til baka til heimalands síns, þ.e. Alsírs. Þá vill hann frekar deyja hér,“ segir Linda.
Að sögn Linda hefur hungurverkfall Hichem haft áhrif á aðra þá hælisleitendur sem á Fit búa. Segir hún þá einnig örvænta vegna þess hversu langan tíma umsóknir þeirra virðast taka í kerfinu og að þeir hyggist, fái þeir ekki svör vegna sinna mála fljótlega, líka fara í hungurverkfall.
„Þeir hafa talað um að fara í hungurverkfall fyrir framan alþingishúsið,“ segir Linda.
Innlent »
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
Svipaðar fréttir
- Þriðjudagur, 19. maí 2009, Innlent Hættur í hungurverkfalli
- Þriðjudagur, 12. maí 2009, Innlent Hælisleitandi fluttur á sjúkrahús
- Miðvikudagur, 13. maí 2009, Innlent „Fullyrðing sem stenst engan veginn“
- Fimmtudagur, 30. apríl 2009, Innlent Mun ekki gefast upp
- Mánudagur, 11. maí 2009, Innlent Ætla allir í hungurverkfall
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli



































