Gert að endurgreiða tryggingafélaginu

Héraðsdómur Reykjavíkur. stækka

Héraðsdómur Reykjavíkur. mbl.is/Þorkell

Tvítugur piltur var í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag dæmdur til að greiða Tryggingamiðstöðinni tæplega 1,7 milljónir króna vegna tjóns sem varð á fólksbifreið sem hann ók á miklum hraða vestur Miklubraut í febrúar 2006. Hafði Tryggingamiðstöðin greitt tjónið á bifreiðinni en faðir piltsins, og eigandi bifreiðarinnar, var með hana í kaskó hjá TM. Jafnframt hafði TM greitt tjón sem varð á ljósastaur sem pilturinn hafði ekið á. Piltinum er jafnframt gert að greiða 300 þúsund krónur í sakarkostnað.

Segir í niðurstöðu dómsins að  nægar sannanir væru fyrir því að hann hafi ekið bifreiðinni á miklum hraða og sýnt af sér stórkostlegt gáleysi við akstur.  Það tjón sem hlaust af við umferðaróhappið verði rakið til þeirrar háttsemi piltsins, sem var nýlega orðinn sautján ára er óhappið varð.

Samkvæmt skýrslu lögreglunnar í Reykjavík var henni tilkynnt aðfararnótt 17. febrúar 2006 að við afrein vestur Miklubraut og skammt austan við Skeiðarvogsbrú, væri svört Mercedes Benz bifreið utan vegar, mikið skemmd að framanverðu.

Í lögregluskýrslunni er haft eftir piltinum að hann hafi verið að koma af skólaballi í Gullhömrum í Grafarvogi og ekið vestur Miklubraut á u.þ.b. 200 kílómetra hraða. Kvaðst hann búa í Garðabæ og væri því ókunnugur á þessum slóðum. Hefði hann séð afreinina upp á Skeiðarvogsbrúna og ákveðið að fara þá leið, þar sem hann taldi að þaðan mætti komast í Garðabæ. Hefði hann hemlað niður og tekið beygjuna, en þá misst stjórn á bifreiðinni, sem fór út úr beygjunni. Bifreiðin hafnaði á ljósastaur og klippti hann í sundur, en staurinn dróst síðan með bifreiðinni þar til hún stöðvaðist skammt frá Skeiðarvogsbrú. Pilturinn hlaut ekki áverka við óhappið.

Í lögregluskýrslunni er haft lögregluvarðstjóra, sem var staddur á bensínstöð ESSO í Ártúnshöfða um svipað leyti og óhappið átti sér stað, að hann hafi séð svarta bifreið á ofsahraða vestur Ártúnsbrekku. Vegna hraða bifreiðarinnar, og þar sem skuggsýnt var, hefði hann þó ekki getað greint tegundarheiti hennar. Samkvæmt umferðargreini Vegagerðarinnar á móts við bensínstöð Skeljungs, austan Ártúnsbrekku, hafi bifreið mælst á 188 km/klst á svipuðum tíma og pilturinn ók þar um.

Við skýrslutöku hjá lögreglu síðar á árinu neitaði pilturinn  ítrekað að hafa sagt lögreglumönnum á vettvangi að hann hefði ekið bifreiðinni á 200 km hraða vestur Miklubraut. Kvaðst hann alltaf aka á löglegum hraða og taldi sig í umrætt sinn hafa ekið á 70–80 km hraða. Kannaðist hann heldur ekki við að hafa ekið niður Ártúnsbrekku, en sagðist hafa ekið af Vesturlandsvegi og yfir Höfðabakkabrú, þá suður Höfðabakka, vestur Stekkjarbakka og inn á Reykjanesbraut, síðan norður Reykjanesbraut og inn á Miklubraut. Þegar hann kom inn á Miklubraut hefði bifreið verið ekið framúr honum á mjög miklum hraða.

Í niðurstöðu héraðsdóms kemur fram að þótt ekkert liggi hér fyrir um hraða bifreiðarinnar í þann mund sem pilturinn missti stjórn á henni telji dómurinn nægar sannanir fram komnar fyrir því að hann  hafi í aðdraganda óhappsins ekið allt of hratt miðað við aðstæður og leyfilegan hámarkshraða.

Þrátt fyrir síðari framburð piltsins hjá lögreglu þykir ekkert fram komið sem hrakið getur framburð þeirra lögreglumanna sem gáfu skýrslu fyrir dóminum og staðfestu frásögn piltsins um að hann hefði ekið á um 200 km hraða vestur Miklubraut. Þá þykir frásögn piltsins um akstursleið hans af Vesturlandsvegi og síðar inn á Miklubraut ótrúverðug. Miklu fremur bendir framburður þess lögreglumanns, sem var við bensínstöð ESSO í Ártúnsbrekku skömmu fyrir óhappið, eindregið til þess að þar hafi bifreiðin sem pilturinn ók verið á ferð, og henni ekið á ofsahraða niður Ártúnsbrekku.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Velta á fasteignamarkaði frá janúar til febrúar í ár var 46,335 milljarðar kr. en var ...

Lántakendur varaðir við

05:30 Grípi Seðlabankinn til þess ráðs að hækka vexti frekar gæti það haft veruleg áhrif á mánaðarlega greiðslubyrði af óverðtryggðum fasteignalánum. Meira »
Rússnesk skip umskipa afla í Hafnarfjarðarhöfn eftir veiðar á Reykjaneshrygg.

Athugasemdir við Rússa

05:30 Íslensk stjórnvöld hafa komið alvarlegum athugasemdum á framfæri við sendiherra Rússlands á Íslandi vegna karfaveiða Rússa á Reykjaneshrygg. Meira »

Flugfarþegi lak plötu á netið

Umslag plötunnar Valtari.
05:30 Áttunda og nýjasta plata Sigur Rósar, Valtari , kom út í gær en hún er fyrsta breiðskífa sveitarinnar frá því Með suð í eyrum við spilum endalaust kom út fyrir fjórum árum. Meira »

Störfum í bönkum fækkað um 2.000

Friðbert Traustason. Formaður Sambands íslenskra bankamanna .
05:30 Störfum hjá fjármálafyrirtækjum hefur fækkað um 2.000 frá því vorið 2008. Útibúum bankanna hefur fækkað um helming á sama tíma. „Þetta hefur verið hreint hörmungarástand,“ segir Friðbert Traustason, formaður Samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja. Meira »

Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi

04:53 Sunnan- og suðvestanátt verður á landinu í dag, yfirleitt 5-15 m/s, hvassast norðan- og vestanlands. Rigning við Breiðafjörð og á Vestfjörðum, léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi, en skýjað og súld með köflum syðra. Meira »

Kostnaður við komu 4 milljónir

Wen Jiabao og Jóhanna Sigurðardóttir á Geysi
05:30 Ekki hefur verið sótt um aukafjárveitingu vegna kostnaðar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu við heimsókn kínverska forsætisráðherrans Wens Jiabaos. Meira »

Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi

Með batnandi veðri gefst færi til útileikja.
05:30 Vel lítur út með veður víðast hvar á landinu um hvítasunnuhelgina. Reyndar má búast við að rigni á Vestfjörðum í dag, en svo stytti upp og víða verði sólríkt. Hitastig hefur stigið verulega síðustu daga og í dag er búist við að hiti klifri yfir 20 stig á norðaustanverðu landinu. Meira »

Segir stuðning við Kanadadollar

Kanadadollari. Úr myndasafni.
Í gær, 22:15 „Þetta er rætt í alvöru á Íslandi. Efnahagsráðherrann fór til Kanada fyrir sex vikum og fundaði með kanadíska seðlabankanum og með þingmönnum og að ég tel fjármálaráðuneytinu líka. Hann kom síðan aftur til Íslands og sagði opinberlega að þetta væri möguleiki sem væri ekki hægt að útiloka.“ Meira »

Brotist inn meðan íbúar skruppu frá

Í gær, 21:09 Tilkynnt var um innbrot í heimahús í Grafarvogi klukkan sjö í kvöld og söknuðu húsráðendur sjónvarps og ýmissa raftækja. Þeir brugðu sér af bæ í rúma klukkustund og þegar þeir komu heim var búið að brjóta rúðu og komust þjófarnir þannig inn. Meira »

Meintar falsanir til lögreglunnar

Ástþór Magnússon, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 19:39 Tekin var ákvörðun um það í dag af yfirkjörstjórnum í Reykjavík að vísa meintum fölsunum á undirskriftum á meðmælendalistum Ástþórs Magnússonar, forsetaframbjóðanda, til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Meira »

Stefnan áframhaldandi lágt gengi

Einar K. Guðfinnsson, alþingismaður.
Í gær, 20:11 „Það er alveg ljóst mál að þetta kosningaplagg ríkisstjórnarinnar sem kallað hefur verið framkvæmdaáætlun er byggð á þeirri forsendu að gengi íslensku krónunnar haldist álíka veikt og það er í dag,“ segir Einar Kr. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, í samtali við mbl.is. Meira »

Tryggja að allir komist heilir heim

Í gær, 18:59 Haldið verður úti auknu umferðareftirliti í sumar á Vesturlandsvegi, Suðurlandsvegi og Reykjanesbraut af hálfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í samvinnu við embætti ríkislögreglustjóra. Meira »

Gæsluvarðhaldið staðfest

Í gær, 18:29 Hæstiréttur hefur staðfest gæsluvarðhaldsúrskurð yfir tveimur karlmönnum sem grunaðir eru um að hafa valdið dauða samfanga síns í fangelsinu á Litla-Hrauni fyrir rúmri viku. Héraðsdómur hafði áður úrskurðað mennina í gæsluvarðhald til 13. júní. Meira »

Húsbíll fauk af vegi

Í gær, 18:09 Húsbíll fauk í Fljótum, skammt frá Ketilási um hádegisbilið í dag. Tvennt var í bílnum og voru þau flutt á heilsugæsluna á Siglufirði til aðhlynningar. Meira »

Yfirheyrslur héldu áfram í dag

Fangelsið á Litla-Hrauni.
Í gær, 18:00 Yfirheyrslur vegna láts fanga á Litla-Hrauni, sem talið er hafa borið að með sviplegum hætti, héldu áfram í dag og var nokkur fjöldi vitna yfirheyrður, þar á meðal fólk sem tengist fangelsinu. Meira »

Fundur Háskólalestarinnar fellur niður

Frá Ísafirði. Úr myndasafni.
Í gær, 18:22 Fram kemur í tilkynningu frá Háskólalestinni að fyrirlestur um forsetaframboðið sem fara átti fram á Ísafirði í kvöld klukkan 20:00 falli niður vegna þess að öllu flugi frá Reykjavíkur til Ísafjarðar í dag hafi verið aflýst. Meira »

Ólafur mælist með mest fylgi

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands.
Í gær, 18:09 Mikill viðsnúningur hefur orðið í fylgi við forsetaframbjóðendurna Ólaf Ragnar Grímsson og Þóru Arnórsdóttur ef marka niðurstöður nýrrar skoðanakönnunar Capacent Gallup sem greint var frá í fréttum Ríkisútvarpsins. Meira »

Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð

Í gær, 17:49 Talsvert magn af fíkniefnum fannst við húsleit lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í kjallaraíbúð í miðborginni í gær.   Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Hyundai Tuscon, 750.000 afsláttur
Til sölu gott eintak 06/2008 silfurgrár bensínbíll, vél 1975cc, fjórhjóladrifinn...
ORLOFSÍBÚÐIR
Orlofsíbúðir - Hótel Sandafell Njótið n...
58 fermetrar
Til leigu húsnæði á annari hæð í Dugguvogi 6 (Fossberg) Eitt rými með litlum el...
Standard Poodle hvolpar til sölu
Tilbúnir til afhendingar, ættbók frá HRFÍ, líf og sjúkdóma trygging frá VÍS. Fre...
 
Aðalfundur alliance

Aðalfundur 2012 Aðalfundur Alliance...
Ársfundur vina vatnajökuls

Ársfundur Vina Vatnajökuls, hollvinasamt...
Opinn fundur
Félagsstarf
Félag sjálfstæð...
Sýslumaður snæfellinga - framhald uppboðs

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....