Neitar að staðfesta breytingar á skipulagi
Urriðafoss í Þjórsá mbl.is/Sigurður Jónsson
Svandís Svavarsdóttir, nýr umhverfisráðherra Vinstri grænna, neitar að staðfesta breytingar á aðalskipulagi Skeiða- og Gnúpverjahrepps og segir, að kynna þurfi breytinguna betur fyrir íbúum sveitarfélagsins.
Fram kemur á vefnum Sunnlendingi.is, að Svandís hafi sent hreppnum bréf, dagsett 12. maí en ný ríkisstjórn tók við 10. maí. Kolbrún Halldórsdóttir, forveri Svandísar í embætti, hafði tilkynnti sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps skömmu fyrir þingkosningarnar í lok apríl, að hún væri að íhuga að staðfesta ekki breytinguna á aðalskipulaginu.
Umrædd breyting á aðalskipulaginu felst í því að heimilt verði að tvískipta fyrirhugðum og samþykktum virkjunarframkvæmdum. Skipulagsstofnun hefur fallist á breytinguna og mælti með því að ráðherra gerði slíkt hið sama þótt kynningin á breytingunni hafi ekki verið nákvæmlega með þeim hætti sem mælt er fyrir um í lögunum.
Að sögn Sunnlendings kemur fram í bréfi ráðherra, að umhverfisráðuneytið beini þeim tilmælum til Skipulagsstofnunar að framvegis verði þess gætt að stofnunin víki ekki að neinu leyti frá kröfum um formlega kynningu á skipulagsbreytingum.
Að óbreittu þarf Skeiða- og Gnúpverjahreppur nú að hefja lögformlegt kynningarferli og fyrst að því loknu mun Svandís Svavarsdóttir taka afstöðu til skipulagsbreytinganna.
Bloggað um fréttina
-
Sigurjón Sveinsson "Byggja upp atvinnuvegi" stóð í stjórnarsáttmála -
Gestur Guðjónsson Hvernig ætlar VG að byggja Ísland? -
Geir Ágústsson Afstaða Svandísar liggur fyrir -
GRÆNA LOPPAN Íbúar hreppanna fá lögformlega kynningu
Innlent »
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
Svipaðar fréttir
- Þriðjudagur, 14. apríl 2009, Innlent Vill að Kolbrún víki sæti
- Mánudagur, 29. júní 2009, Innlent Skipulag vegna virkjana verði staðfest
- Fimmtudagur, 16. apríl 2009, Innlent Deilt um kynningu tillagna
- Mánudagur, 1. febrúar 2010, Innlent Synjar skipulagi við Þjórsá staðfestingar
- Þriðjudagur, 24. júní 2008, Innlent Virkjanir samþykktar
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli



































