Eigum ekki að sitja undir einhverju tilskipunarvaldi
Eftir Bergþóru Njálu Guðmundsdóttur ben@mbl.is
Gylfi Magnússon efnahagsráðherra telur svigrúm til vaxtalækkana, þvert á skoðun fulltrúa Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Ögmundur Jónasson heilbrigðisráðherra veltir því fyrir sér „hvort Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn andi ekki köldu ofan í hálsmálið á mönnum“, í Seðlabankanum, sem á að taka sjálfstæða afstöðu til vaxtastigsins.
Franek Rozwadowski, sendifulltrúi AGS, sagði í gær að aðstæður væru ekki fyrir hendi fyrir frekari lækkun stýrivaxta Seðlabankans umfram þá lækkun sem þegar væri orðin. Þetta fer þvert gegn yfirlýsingu Seðlabankans um umtalsverða stýrivaxtalækkun í júní verði ákveðnar forsendur uppfylltar.
Gylfi segir að Seðlabankinn og AGS muni eflaust ræða málið sín á milli. „Ég hef sjálfur talið svigrúm til vaxtalækkana í ljósi þess hve verðbólgan fer hratt niður og reyndar af öðrum ástæðum.“ Hann hafi þó ekki heyrt rök AGS og segir ekkert óeðlilegt að peningastefnunefnd Seðlabankans hlusti eftir þeim. „En ef hún telur rétt að lækka vexti þá einfaldlega gerir hún það.“ Hann vill þó ekkert spá um hvort líklegt sé að af vaxtalækkun verði í júní.
Ekki náðist í fjármálaráðherra í gær en Ögmundur Jónasson heilbrigðisráðherra segir beinlínis þjóðhættulega stefnu að halda vöxtunum uppi. Hann segist munu taka málið upp á vettvangi ríkisstjórnarinnar. „Við eigum ekkert að sitja undir einhverju tilskipunarvaldi ef það er byggt á ranglæti og ranghugsun.“ Hann telji stöðuga ástæðu fyrir endurskoðun samkomulagsins við AGS. „Og mér finnst þessi hávaxtastefna vera tvímælalaust tilefni til að setja fram spurningar og fá svör.“
Bloggað um fréttina
-
Haraldur Haraldsson Sitjum ekki undir tilskipunum/þetta er rett maður verður að lækka ... -
Guðrún Sæmundsdóttir Er AGS að þvinga íslendinga í ESB? -
Sigmar Þormar Alþjóðasjóðurinn ekkert miðað við ESB -
Reynir W Lord Við ráðum ekkert, AGS er nýja ríkistjórn Íslands. -
Ingunn Guðnadóttir Sýnum þá í verki.... -
-
Sigurður Sveinsson Hver ræður? -
Erling Garðar Jónasson Er alþjóðagjaldeyrissjóðurinn í rugli ?. -
Brosveitan - Pétur Reynisson En liggjum við undir þeim? - Myndlíking dagsins -
Jón Þór Ólafsson Háir stýrivextir = Ísland í eigu erlendra fjármagnseigenda. -
Haraldur Bjarnason Er annarra kosta völ? -
Guðmundur Auðunsson Það þarf að lækka vextina strax... -
Jón Lárusson Gætum okkar hagsmuna sjálf -
Andri Geir Arinbjarnarson Er Seðlabankinn sjálfstæð stofnun?
Innlent »
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
Svipaðar fréttir
- Föstudagur, 9. apríl 2010, Innlent Íslandslán ekki á dagskrá AGS
- Laugardagur, 16. maí 2009, Innlent Vaxtastefnunni hafi verið lýst í viljayfirlýsingunni
- Fimmtudagur, 25. mars 2010, Innlent Ráðherrar ræða við Strauss-Kahn
- Fimmtudagur, 4. júní 2009, Innlent Samstarf við AGS ekki í uppnám
- Miðvikudagur, 7. október 2009, Innlent Rætt um að hafna lánum
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli



































