Þjóðin tók valdið í sínar hendur

Þingmenn hlýða á forseta Íslands í dag.
Þingmenn hlýða á forseta Íslands í dag. mbl.is/Kristinn

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, sagði við þingsetningu í dag, að þjóðin hefði með festu og öryggi tekið valdið, sem henni bar, í sínar hendur þegar kosið var til Alþingis í apríl. Þá sagði hann að umræðan um Evrópusambandsaðild gæti, ef illa tekst til, klofið þjóðina.

„Í kjölfar bankahrunsins og áfalla í efnahagslífi, tíðra mótmæla á Austurvelli og átaka hér við Alþingishúsið var í byrjun febrúar mynduð ríkisstjórn til bráðabirgða og um leið ákveðið að leita til þjóðarinnar, treysta því að dómstóllinn sem hin lýðræðislega stjórnskipun Íslendinga byggir á, fólkið í landinu, myndi vísa veginn.

Aldrei fyrr hefur Alþingiskosningar borið að með slíkum hætti og mikilvægt að geta nú fagnað því að þjóðin tók af öryggi og festu valdið sem henni bar í sínar hendur. Það sýnir styrk lýðræðisins meðal okkar og rætur þess í hugum fólksins, hefðum og siðum sem allir virða.

Þótt eðlilega sýnist sitt hverjum um úrslitin hlýtur sérhver Íslendingur, og þá jafnframt þingheimur í þessum sal, að þakka fyrir þá forsjá fyrri kynslóða að hafa mótað hér stjórnskipun og lýðræðislegt samfélag sem stóðst hina miklu þolraun, liðaðist ekki í sundur vegna átaka og erfiðleika sem sagan sýnir að lamað hafa ýmis ríki," sagði Ólafur Ragnar.

Hann sagði einnig, að þótt margt megi sannarlega bæta í stjórnskipan landsins blasi engu að síður við sú staðreynd að stjórnarskráin sem þjóðin samþykkti við lýðveldisstofnun dugði vel þegar mest á reyndi.

„Þjóðinni var fært það vald sem hún kallaði eftir, alþingiskosningar fóru fram, ríkisstjórn með meirihluta að baki sér kemur til hins nýja þings og víðtækari breytingar hafa orðið á löggjafarstofnuninni en nokkru sinni á lýðveldistíma," sagði Ólafur Ragnar.

ESB-umræða gæti klofið þjóðina 

Forsetinn sagði, að Alþingis biðu síðan erfiðari verkefni en oftast áður; endurreisn fjármálakerfis, atvinnulífs og heimilanna, að tryggja velferð þúsunda sem glími nú við atvinnuleysi, tekjutap og eignamissi og að efla umsvifin í byggðum landsins.

Þá sagði hann að enn sætu á þingi alþingismenn sem kynntust því á yngri árum hvernig ágreiningur um tengslin við önnur ríki  klauf þjóðina í herðar niður.

„Allir vita að umræðan um aðild Íslands að Evrópusambandinu getur orðið, ef illa tekst til, efniviður í slíkan klofning og því þarf öll meðferð málsins að vera með þeim hætti að sem flestir verði sáttir. Rökin bæði með og á móti eru svo efnisrík að sérhverjum ber að virða málflutning hinna, gæta hófs, viðurkenna að málið snertir svo sögu, sjálfsvitund og  framtíðarsýn Íslendinga að strengir röksemda og heitra kennda munu ætíð hljóma í senn

Við þurfum öll að hafa í huga, hvaða stöðu sem við gegnum eða hver sem afstaðan er til aðildar, að í þessum efnum er það þjóðin sem ræður. Okkar skylda er fyrst og fremst að búa málið vel í hennar dóm, að forðast eftir fremsta megni að úrslitin skilji eftir djúpstæða gjá," sagði Ólafur Ragnar Grímsson.

Ávarp forseta Íslands

Ólafur Ragnar Grímsson setur Alþingi í dag.
Ólafur Ragnar Grímsson setur Alþingi í dag. mbl.is/Kristinn
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, gengur í Alþingishúsið ásamt þingmönnum.
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, gengur í Alþingishúsið ásamt þingmönnum. mbl.is/Jón Pétur
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert