Umferðarslys vegna ofsaaksturs

Lögregla og slökkvilið aðstoðar ökumanninn við að komast út úr …
Lögregla og slökkvilið aðstoðar ökumanninn við að komast út úr bílflakinu. mbl.is/Guðmundur Karl

Lögreglan á Selfossi segir, að umferðarslys sem varð á Suðurlandsvegi í dag hafi átt rætur að rekja til ofsaaksturs 16 ára ökumanns, sem missti bíl sinn út af veginum. Bíllinn hafnaði á hvolfi ofan í skurði og eldur kom upp í honum en lögreglumenn slökktu eldinn með handslökkvitæki. 

Lögreglan fékk um klukkan 14 í dag tilkynningu um ofsaakstur fólksbíls við Rauðavatn á leið austur.  Nokkrar tilkynningar bárust síðar um bílinn, um að honum væri ekið hratt og ógætilega fram úr öðrum bílumn.

Lögreglumenn sem voru við umferðareftirlit á Suðurlandsvegi í Ölfusi mættu bílnum rétt austan við Hveragerði og var ökuhraðinn þá 118 km á klukkustund.  Lögreglumennirnir snéru við á eftir bílnum en ökumaður hans hélt ferð sinni áfram. 

Á móts við Gljúfjárholt missti ökumaðurinn bílinn út af veginum hægra megin og hafnaði bíllinn á hvolfi ofan í skurði.  Eldur kom upp í bílnum en lögreglumennirnir slökktu hann með handslökkvitæki.  Kalla þurfti út menn frá slökkviliði Hveragerðis til að koma ökumanninninum  út úr bílnum svo og til að vera til taks ef eldur kæmi aftur upp en þá hefði verið hætta á að hann bærist í sinu sem var allt umhverfis bílinn. 

Ökumaðurinn var fluttur á slysadeild Landspítala í Reykjavík en hann er þó ekki talinn alvarlega slasaður. Um var að ræða 16 ára pilt, sem er því ökuréttindalaus.  Bíllinn er ónýtur og var fluttur af vettvangi með kranabíl.

Bíllinn lenti á hvolfi í skurði við veginn.
Bíllinn lenti á hvolfi í skurði við veginn. mbl.is/Guðmundur Karl
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert