Hlutu Vorvinda-viðurkenningar

Vinningshafarnir með viðurkenningar sínar. stækka

Vinningshafarnir með viðurkenningar sínar.

IBBY á Íslandi veitti í dag þrjár Vorvinda-viðurkenningar í Gunnarshúsi við Dyngjuveg í Reykjavík en allt frá árinu 1987 hefur félagið veitt einstaklingum og stofnunum viðurkenningar á vorin fyrir framlag til barnamenningar á Íslandi.

Í ár hlutu fjórir einstaklingar viðurkenninguna, þau Jónína Leósdóttir, Brynhildur Björnsdóttir, Kristín Eva Þórhallsdóttir og Halldór Ásgrímur Elvarsson.

Í rökstuðningi frá IBBY segir: 

„Jónína Leósdóttir fékk Vorvinda-viðurkenningu fyrir unglingabækurnar Kossar og ólífur (2007) og Svart og hvítt (2008). Í þessum tveimur bókum er sögð þroskasaga Önnu, unglingsstúlku frá Vík í Mýrdal,sem dvelur sumarlangt í Brighton á Englandi. Kossar og ólífur hlaut nokkrar athygli og lof fyrir að vera fyrsta íslenska unglingabókin sem teflir fram samkynhneigðri söguhetju.

Þessar tvær bækur Jónínu prýða reyndar margir kostir sem einkenna góðar unglingabækur. Þær eru mjög vel skrifaðar, frásögnin er fjörleg, atburðarásin hröð og full af dramatískum uppákomum.

Útvarpsþátturinn Leynifélagið er tæplega tveggja ára gamall,en honum stýra Brynhildur Björnsdóttir og Kristín Eva Þórhallsdóttir. Markhópur þáttarins sem er á Rás eitt hjá RÚV eru börn á aldrinum 6-10 ára.Hann er á dagskrá fjórum sinnum í viku kl. 20.00 á kvöldin. Umfjöllunarefni þáttanna getur verið af ýmsum toga, t.d. óleystar ráðgátur, dýr sem heita undarlegum nöfnum og margt fleira.Sjónvarpsþættir og bíómyndir og tölvuleikir eru mjög fyrirferðamiklir í lífi barna í dag. Meðan myndir örva sjónskynjun örvar útvarpið ímyndunaraflið og gott ímyndunarafl er gulls ígildi.

Þriðja viðurkenningin var veitt Halldóri Á. Elvarssyni fyrir bækurnar Stafróf dýranna og Teljum dýr: 1, 2 og 3. Halldór er grafískur hönnuður og eru bæði myndir og texti eftir hann. Þetta eru fallegar og hugvitsamlegar bækur til að sýna fróðleiksfúsum börnum sem vilja læra um stafina og kynnast því sem bækur hafa að geyma - og svo má ekki gleyma því sem tölurnar búa yfir.“

IBBY er skammstöfun á enska heitinu The International Board on Books for Young People en það eru alþjóðleg samtök.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Velta á fasteignamarkaði frá janúar til febrúar í ár var 46,335 milljarðar kr. en var ...

Lántakendur varaðir við

05:30 Grípi Seðlabankinn til þess ráðs að hækka vexti frekar gæti það haft veruleg áhrif á mánaðarlega greiðslubyrði af óverðtryggðum fasteignalánum. Meira »
Rússnesk skip umskipa afla í Hafnarfjarðarhöfn eftir veiðar á Reykjaneshrygg.

Athugasemdir við Rússa

05:30 Íslensk stjórnvöld hafa komið alvarlegum athugasemdum á framfæri við sendiherra Rússlands á Íslandi vegna karfaveiða Rússa á Reykjaneshrygg. Meira »

Flugfarþegi lak plötu á netið

Umslag plötunnar Valtari.
05:30 Áttunda og nýjasta plata Sigur Rósar, Valtari , kom út í gær en hún er fyrsta breiðskífa sveitarinnar frá því Með suð í eyrum við spilum endalaust kom út fyrir fjórum árum. Meira »

Störfum í bönkum fækkað um 2.000

Friðbert Traustason. Formaður Sambands íslenskra bankamanna .
05:30 Störfum hjá fjármálafyrirtækjum hefur fækkað um 2.000 frá því vorið 2008. Útibúum bankanna hefur fækkað um helming á sama tíma. „Þetta hefur verið hreint hörmungarástand,“ segir Friðbert Traustason, formaður Samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja. Meira »

Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi

04:53 Sunnan- og suðvestanátt verður á landinu í dag, yfirleitt 5-15 m/s, hvassast norðan- og vestanlands. Rigning við Breiðafjörð og á Vestfjörðum, léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi, en skýjað og súld með köflum syðra. Meira »

Kostnaður við komu 4 milljónir

Wen Jiabao og Jóhanna Sigurðardóttir á Geysi
05:30 Ekki hefur verið sótt um aukafjárveitingu vegna kostnaðar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu við heimsókn kínverska forsætisráðherrans Wens Jiabaos. Meira »

Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi

Með batnandi veðri gefst færi til útileikja.
05:30 Vel lítur út með veður víðast hvar á landinu um hvítasunnuhelgina. Reyndar má búast við að rigni á Vestfjörðum í dag, en svo stytti upp og víða verði sólríkt. Hitastig hefur stigið verulega síðustu daga og í dag er búist við að hiti klifri yfir 20 stig á norðaustanverðu landinu. Meira »

Segir stuðning við Kanadadollar

Kanadadollari. Úr myndasafni.
Í gær, 22:15 „Þetta er rætt í alvöru á Íslandi. Efnahagsráðherrann fór til Kanada fyrir sex vikum og fundaði með kanadíska seðlabankanum og með þingmönnum og að ég tel fjármálaráðuneytinu líka. Hann kom síðan aftur til Íslands og sagði opinberlega að þetta væri möguleiki sem væri ekki hægt að útiloka.“ Meira »

Brotist inn meðan íbúar skruppu frá

Í gær, 21:09 Tilkynnt var um innbrot í heimahús í Grafarvogi klukkan sjö í kvöld og söknuðu húsráðendur sjónvarps og ýmissa raftækja. Þeir brugðu sér af bæ í rúma klukkustund og þegar þeir komu heim var búið að brjóta rúðu og komust þjófarnir þannig inn. Meira »

Meintar falsanir til lögreglunnar

Ástþór Magnússon, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 19:39 Tekin var ákvörðun um það í dag af yfirkjörstjórnum í Reykjavík að vísa meintum fölsunum á undirskriftum á meðmælendalistum Ástþórs Magnússonar, forsetaframbjóðanda, til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Meira »

Stefnan áframhaldandi lágt gengi

Einar K. Guðfinnsson, alþingismaður.
Í gær, 20:11 „Það er alveg ljóst mál að þetta kosningaplagg ríkisstjórnarinnar sem kallað hefur verið framkvæmdaáætlun er byggð á þeirri forsendu að gengi íslensku krónunnar haldist álíka veikt og það er í dag,“ segir Einar Kr. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, í samtali við mbl.is. Meira »

Tryggja að allir komist heilir heim

Í gær, 18:59 Haldið verður úti auknu umferðareftirliti í sumar á Vesturlandsvegi, Suðurlandsvegi og Reykjanesbraut af hálfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í samvinnu við embætti ríkislögreglustjóra. Meira »

Gæsluvarðhaldið staðfest

Í gær, 18:29 Hæstiréttur hefur staðfest gæsluvarðhaldsúrskurð yfir tveimur karlmönnum sem grunaðir eru um að hafa valdið dauða samfanga síns í fangelsinu á Litla-Hrauni fyrir rúmri viku. Héraðsdómur hafði áður úrskurðað mennina í gæsluvarðhald til 13. júní. Meira »

Húsbíll fauk af vegi

Í gær, 18:09 Húsbíll fauk í Fljótum, skammt frá Ketilási um hádegisbilið í dag. Tvennt var í bílnum og voru þau flutt á heilsugæsluna á Siglufirði til aðhlynningar. Meira »

Yfirheyrslur héldu áfram í dag

Fangelsið á Litla-Hrauni.
Í gær, 18:00 Yfirheyrslur vegna láts fanga á Litla-Hrauni, sem talið er hafa borið að með sviplegum hætti, héldu áfram í dag og var nokkur fjöldi vitna yfirheyrður, þar á meðal fólk sem tengist fangelsinu. Meira »

Fundur Háskólalestarinnar fellur niður

Frá Ísafirði. Úr myndasafni.
Í gær, 18:22 Fram kemur í tilkynningu frá Háskólalestinni að fyrirlestur um forsetaframboðið sem fara átti fram á Ísafirði í kvöld klukkan 20:00 falli niður vegna þess að öllu flugi frá Reykjavíkur til Ísafjarðar í dag hafi verið aflýst. Meira »

Ólafur mælist með mest fylgi

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands.
Í gær, 18:09 Mikill viðsnúningur hefur orðið í fylgi við forsetaframbjóðendurna Ólaf Ragnar Grímsson og Þóru Arnórsdóttur ef marka niðurstöður nýrrar skoðanakönnunar Capacent Gallup sem greint var frá í fréttum Ríkisútvarpsins. Meira »

Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð

Í gær, 17:49 Talsvert magn af fíkniefnum fannst við húsleit lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í kjallaraíbúð í miðborginni í gær.   Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Galeon 610
Mjög vel með farinn 5.9 m með Yamaha F150 (150hp) og kerru til sölu. 5.9 mil...
BLACKLION SUMARDEKK
Blacklion sumardekk - pakkatilboð 195/65 R 15 kr. 52.900. 205/55 R 16 kr. 63...
Komdu fljúgandi og gistu í Tjaldbót-2012
Eða leigðu 2-4 sæta flugvélar og sumarhús í nágrenni Eyjafallajöluls og Heklu. ...
Toyota Avensis 1800, árg. 2006 5 gíra.
Fæst á aðeins 1200 þús. stgr. Ek. 175 þús. Gott lakk og vel með farinn bíll. E...
 
Samkoma - hjálpræðisherinn
Félagsstarf
Kjallarinn, fimmtudag, kl.20 Ung...
Deiliskipulag á grundartanga

Deiliskipulag á Grundartanga Austur...
12834 stofnstígur - reykjavíkurborg

út­boð Reykja­víkur­bor­g Innka­upa­...
Sýslumaður snæfellinga - framhald uppboðs

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....