Fréttaskýring: Kreppan gæti birst á næsta ári
Skemmtiferðaskipið Grand Princess á Akureyri í fyrra. mbl.is/Skapti
Eftir Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is
Efnahagskreppan í heiminum er enn ekki farin að hafa áhrif á ferðir með skemmtiferðaskipum á norðurslóðum. Bókanir í skipin í Evrópu voru 103% á síðasta ári og 101% í ár. Hins vegar gætu áhrifin komið fram á næsta ári í minnkandi eftirspurn á markaðnum í Evrópu.
Þetta kom m.a. fram á fundi sem samtökin Cruise Iceland stóðu fyrir í Hafnarfirði fyrir helgi um efnahagsleg áhrif af komum skemmtiferðaskipa til Íslands. Hafa þau áhrif aukist jafnt og þétt síðustu árin, líkt og vöxtur í þessari tegund ferðamennsku hefur borið með sér í Evrópu og víðar í heiminum.
Aðalframsögumaður var Bretinn Peter Wild, sem á og rekur rannsóknar- og ráðgjafarfyrirtæki er sérhæfir sig í verkefnum tengdum skemmtiferðaskipum og áhrifum af rekstrinum á hagkerfi borga og landa. Í erindi sínu fjallaði Wild um þróun og framtíðarsýn greinarinnar en um þessar mundir liggja fyrir pantanir á um 40 skemmtiferðaskipum hjá evrópskum skipasmíðastöðvum. Áætlað er að afhenda skipin á næstu þremur árum.
Fram kom hjá Wild að stór hluti farþeganna í Evrópu er ellilífeyrisþegar, vel menntað fólk sem var með háar tekjur. Í Bandaríkjunum er meðalaldurinn lægri, m.a. vegna siglinga í Karíbahafinu.
Eyða um 380 milljónum hér
Kannanir hér á landi hafa sýnt að hver farþegi verslar að jafnaði í landi í Reykjavík fyrir 6.300 krónur. Eru þá kaup á skoðunarferðum ekki talin með en yfirleitt fara 80-85% farþega í slíkar ferðir. Miðað við um 60 þúsund farþega yfir árið má reikna með að þeir eyði um 380 milljónum króna í beinni neyslu í höfuðborginni. Eru viðkomur í aðrar hafnir landsins þá ekki taldar með.Ágúst Ágústsson, markaðsstjóri Faxaflóahafna, segir skemmtiferðaskipin bóka í ferðir tvö ár fram í tímann. Eitthvað hafi verið um forföll fyrir þetta sumar en fyrirtækin hafi fyllt í þau pláss með því að slá af fargjöldunum. Því megi reikna með tapi hjá fyrirtækjunum í ár.
„Menn gera það varla aftur á næsta ári, þannig að annaðhvort leggja menn skipunum eða fara út í einhverjar aðgerðir til að spara í rekstrinum. Það þýðir lítið að flytja skipin yfir í aðrar heimsálfur því alls staðar er kreppa,“ segir Ágúst.
Í hnotskurn
» Alls er búist við um 50 skemmtiferðaskipum í 80 heimsóknum til Reykjavíkur í sumar. Er það svipað og síðasta sumar.» Skipakomur til Ísafjarðar verða um 30, um 60 til Akureyrar, 17 til Seyðisfjarðar, 17 til Vestmannaeyja og líkast til 11 til Grundarfjarðar. Flest fara skipin hringinn í kringum landið.




































