Nefnd skipuð vegna fjármála flokkanna

stækka

Ómar Óskarsson

Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, hefur skipað nefnd sem hefur það hlutverk að endurskoða lög um fjármál stjórnmálaflokkana. Nefndin er skipuð fulltrúum allra stjórnmálaflokka sem eiga fulltrúa á Alþingi auk fulltrúa Frjálslynda flokksins og einum fulltrúa sem forsætisráðherra skipar án tilnefningar.

Samkvæmt bráðabirgðaákvæði í lögu um fjármál stjórnmálasamtaka og frambjóðenda og um upplýsingaskyldu, ber forsætisráðherra eigi síðar en 30. júní 2010 að skipa nefnd fulltrúa allra stjórnmálaflokka á Alþingi til að endurskoða lögin og framkvæmd þeirra.

Er það mat forsætisráðherra að rétt sé að flýta þessari endurskoðun í ljósi þeirrar umræðu sem skapast hefur að undanförnu um fjármál stjórnmálaflokka og vegna ábendinga nefndar Evrópuráðsins um varnir gegn spillingu, samkvæmt tilkynningu.

Nefndina skipa: Ágúst Geir Ágústsson, lögfræðingur í forsætisráðuneytinu, formaður, skipaður án tilnefningar. Margrét S. Björnsdóttir, forstöðumaður stofnunar stjórnsýslufræða og stjórnmála í Háskóla Íslands, tilnefnd af Samfylkingunni.  Gréta Ingþórsdóttir, framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins, tilnefnd af Sjálfstæðisflokknum. Drífa Snædal, framkvæmdastjóri Vinstri hreyfingarinnar - græns framboðs, tilnefnd af Vinstri hreyfingunni - grænu framboði. Sigfús Ingi Sigfússon, framkvæmdastjóri Framsóknarflokksins, tilnefndur af Framsóknarflokknum.
Jóhann Kristjánsson, framkvæmdastjóri þingflokks Borgarahreyfingarinnar, tilnefndur af Borgarahreyfingunni. Magnús Reynir Guðmundsson, framkvæmdastjóri Frjálslynda flokksins, tilnefndur af Frjálslynda flokknum.

Hefur nefndinni jafnframt verið falið að fylgja eftir og leiða til lykta hugmyndir forsætisráðherra um að Ríkisendurskoðun verði falið að gera úttekt á fjárreiðum þeirra stjórnmálaflokka sem átt hafa fulltrúa á Alþingi, vegna áranna 1999 til 2006 og að Ríkisendurskoðun skuli sem fyrst skila samræmdum niðurstöðum um heildarfjárreiður flokkanna, bæði landsflokkanna, kjördæmisráðanna, einstakra félaga flokka og eftir atvikum, frambjóðenda þeirra vegna forvala og/eða prófkjara á umræddu tímabili. Er óskað eftir því að afstaða flokkana til slíkrar úttektar liggi fyrir eigi síðar en 15. júní þannig að hægt sé að hefja undirbúning hennar sem fyrst.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Velta á fasteignamarkaði frá janúar til febrúar í ár var 46,335 milljarðar kr. en var ...

Lántakendur varaðir við

05:30 Grípi Seðlabankinn til þess ráðs að hækka vexti frekar gæti það haft veruleg áhrif á mánaðarlega greiðslubyrði af óverðtryggðum fasteignalánum. Meira »
Rússnesk skip umskipa afla í Hafnarfjarðarhöfn eftir veiðar á Reykjaneshrygg.

Athugasemdir við Rússa

05:30 Íslensk stjórnvöld hafa komið alvarlegum athugasemdum á framfæri við sendiherra Rússlands á Íslandi vegna karfaveiða Rússa á Reykjaneshrygg. Meira »

Flugfarþegi lak plötu á netið

Umslag plötunnar Valtari.
05:30 Áttunda og nýjasta plata Sigur Rósar, Valtari , kom út í gær en hún er fyrsta breiðskífa sveitarinnar frá því Með suð í eyrum við spilum endalaust kom út fyrir fjórum árum. Meira »

Störfum í bönkum fækkað um 2.000

Friðbert Traustason. Formaður Sambands íslenskra bankamanna .
05:30 Störfum hjá fjármálafyrirtækjum hefur fækkað um 2.000 frá því vorið 2008. Útibúum bankanna hefur fækkað um helming á sama tíma. „Þetta hefur verið hreint hörmungarástand,“ segir Friðbert Traustason, formaður Samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja. Meira »

Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi

04:53 Sunnan- og suðvestanátt verður á landinu í dag, yfirleitt 5-15 m/s, hvassast norðan- og vestanlands. Rigning við Breiðafjörð og á Vestfjörðum, léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi, en skýjað og súld með köflum syðra. Meira »

Kostnaður við komu 4 milljónir

Wen Jiabao og Jóhanna Sigurðardóttir á Geysi
05:30 Ekki hefur verið sótt um aukafjárveitingu vegna kostnaðar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu við heimsókn kínverska forsætisráðherrans Wens Jiabaos. Meira »

Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi

Með batnandi veðri gefst færi til útileikja.
05:30 Vel lítur út með veður víðast hvar á landinu um hvítasunnuhelgina. Reyndar má búast við að rigni á Vestfjörðum í dag, en svo stytti upp og víða verði sólríkt. Hitastig hefur stigið verulega síðustu daga og í dag er búist við að hiti klifri yfir 20 stig á norðaustanverðu landinu. Meira »

Segir stuðning við Kanadadollar

Kanadadollari. Úr myndasafni.
Í gær, 22:15 „Þetta er rætt í alvöru á Íslandi. Efnahagsráðherrann fór til Kanada fyrir sex vikum og fundaði með kanadíska seðlabankanum og með þingmönnum og að ég tel fjármálaráðuneytinu líka. Hann kom síðan aftur til Íslands og sagði opinberlega að þetta væri möguleiki sem væri ekki hægt að útiloka.“ Meira »

Brotist inn meðan íbúar skruppu frá

Í gær, 21:09 Tilkynnt var um innbrot í heimahús í Grafarvogi klukkan sjö í kvöld og söknuðu húsráðendur sjónvarps og ýmissa raftækja. Þeir brugðu sér af bæ í rúma klukkustund og þegar þeir komu heim var búið að brjóta rúðu og komust þjófarnir þannig inn. Meira »

Meintar falsanir til lögreglunnar

Ástþór Magnússon, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 19:39 Tekin var ákvörðun um það í dag af yfirkjörstjórnum í Reykjavík að vísa meintum fölsunum á undirskriftum á meðmælendalistum Ástþórs Magnússonar, forsetaframbjóðanda, til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Meira »

Stefnan áframhaldandi lágt gengi

Einar K. Guðfinnsson, alþingismaður.
Í gær, 20:11 „Það er alveg ljóst mál að þetta kosningaplagg ríkisstjórnarinnar sem kallað hefur verið framkvæmdaáætlun er byggð á þeirri forsendu að gengi íslensku krónunnar haldist álíka veikt og það er í dag,“ segir Einar Kr. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, í samtali við mbl.is. Meira »

Tryggja að allir komist heilir heim

Í gær, 18:59 Haldið verður úti auknu umferðareftirliti í sumar á Vesturlandsvegi, Suðurlandsvegi og Reykjanesbraut af hálfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í samvinnu við embætti ríkislögreglustjóra. Meira »

Gæsluvarðhaldið staðfest

Í gær, 18:29 Hæstiréttur hefur staðfest gæsluvarðhaldsúrskurð yfir tveimur karlmönnum sem grunaðir eru um að hafa valdið dauða samfanga síns í fangelsinu á Litla-Hrauni fyrir rúmri viku. Héraðsdómur hafði áður úrskurðað mennina í gæsluvarðhald til 13. júní. Meira »

Húsbíll fauk af vegi

Í gær, 18:09 Húsbíll fauk í Fljótum, skammt frá Ketilási um hádegisbilið í dag. Tvennt var í bílnum og voru þau flutt á heilsugæsluna á Siglufirði til aðhlynningar. Meira »

Yfirheyrslur héldu áfram í dag

Fangelsið á Litla-Hrauni.
Í gær, 18:00 Yfirheyrslur vegna láts fanga á Litla-Hrauni, sem talið er hafa borið að með sviplegum hætti, héldu áfram í dag og var nokkur fjöldi vitna yfirheyrður, þar á meðal fólk sem tengist fangelsinu. Meira »

Fundur Háskólalestarinnar fellur niður

Frá Ísafirði. Úr myndasafni.
Í gær, 18:22 Fram kemur í tilkynningu frá Háskólalestinni að fyrirlestur um forsetaframboðið sem fara átti fram á Ísafirði í kvöld klukkan 20:00 falli niður vegna þess að öllu flugi frá Reykjavíkur til Ísafjarðar í dag hafi verið aflýst. Meira »

Ólafur mælist með mest fylgi

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands.
Í gær, 18:09 Mikill viðsnúningur hefur orðið í fylgi við forsetaframbjóðendurna Ólaf Ragnar Grímsson og Þóru Arnórsdóttur ef marka niðurstöður nýrrar skoðanakönnunar Capacent Gallup sem greint var frá í fréttum Ríkisútvarpsins. Meira »

Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð

Í gær, 17:49 Talsvert magn af fíkniefnum fannst við húsleit lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í kjallaraíbúð í miðborginni í gær.   Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Ullarslá
Til sölu glæsileg íslensk ullarslá (græn að lit) með fallegum brúnum kraga, eins...
Til leigu 2-4 m sumarhús í Hvalfirði
Vel búin, gasgrill og heitur pottur. Frábært útsýni. Fjölbreytt afþreying í nágr...
FERÐ TIL FJALLA
Ferð til fjalla Bestu fríin eru með allan búnað me...
Úrval af fjarstýrðum þyrlum og m.fl.
Erum með fjarstýrðar þyrlur í miklu úrvali. Netlagerinn slf Dugguvogur 17-19, 2....
 
Breyting á aðalskipulagi norðurþings

Norðurþing Skipulags- og byggingarfullt...
12836 fellahverfi - útboð

út­boð Reykja­víkur­bor­g Innka­upa­...
Auglýsing byggðakvóti

Auglýsing vegna úthlutunar byggðakvó...
Deiliskipulagstillaga á grundartanga

Deiliskipulagstillaga á Grundartang...