Fréttaskýring: Með sektarkenndina í eftirdragi
Eftir Gunnhildi Örnu Gunnarsdóttur
gag@mbl.is
Tæpur þriðjungur þeirra sem fara í meðferð á vegum SÁÁ eru konur. Þórdís Davíðsdóttir, ráðgjafi hjá SÁÁ, segir þau ráðgjafana ekki telja að karlar verði heldur fíkninni að bráð heldur finnist konum erfiðara að fara frá börnunum. Samkvæmt tölum úr gagnagrunni SÁÁ sóttu 19.986 einstaklingar meðferð á Vogi á árunum 1997-2008, þar af 5.719 konur en 14.267 karlar. Fjöldi innritana þessi ár var 58.305 og því má sjá að margir koma oftar en einu sinni.
Þórdís bendir á að karlar séu ekki fjölmennastir í öllum aldurshópum. „Fleiri ungar konur, 24 ára og yngri, koma í meðferð en ungir karlar,“ segir hún og telur að fyrr sé gripið inn í hjá ungum stúlkum en strákum. Boðið er upp á sérstaka meðferð á Vík eftir afeitrunarmeðferð á Vogi fyrir konur. Þar séu fyrirlestrarnir miðaðir að konum, því reynsla þeirra af fíkninni sé önnur en karla. „Konur fá gríðarlega sektarkennd varðandi börnin sín. Sektarkenndin er meiri og önnur en karla.“ Þeir afgreiði sektarkenndina fyrr í meðferð og setji niður fyrir sér hvaða málum þeir þurfi að vinna í. „Konurnar burðast lengi með sektarkennd og meðvirkni, en mjög oft eiga þessar konur alkóhólista fyrir maka eða fullorðin börn.“ Það hafi áhrif. Þær skammist sín frekar fyrir að falla ekki að staðalímynd hinnar fullkomnu konu.
Þórdís segir að nú við efnahagsþrengingarnar finni ráðgjafar SÁÁ ekki að konur komi í meira mæli í meðferð en áður, en ásóknin í meðferð sé síst minni en áður. Hún segir þó ráðgjafana taka meira og meira af símtölum þar sem fólk sem hafði náð bata en hafi nú misst vinnuna eigi nú erfitt með að halda sér edrú vegna fjárhagsþrenginga og áhyggna af svartnættinu sem framundan sé. Það komi nú aftur í meðferð og sæki styrk og aðstoð.
SÁÁ leitar nú að sjálfboðaliðum til að selja álfinn á höfuðborgarsvæðinu dagana 20. til 24. maí til fjáröflunar fyrir samtökin.
Fíknin felldi fjóra
Af þeim 5.091 sem fæddust á árinu 1982 hafa 347 farið í meðferð eða tæp sjö prósent. Þar af eru 237 karlar en 110 konur og því ljóst að 8,7% karlanna höfðu farið í meðferð á Vogi en 4,5% kvennanna. Þetta má sjá í gögnum SÁÁ.Úr árganginum hafa fjórir látist vegna fíknarinnar, ein kona og þrír karlar. Tveir átján ára, ein tvítug og sá síðasti 24 ára.
Af þeim sem fóru í meðferð greindust 64,6% fíknir í kannabisefni, 69,1% karlanna en 54,5% kvennanna.
SÁÁ skoðaði hvaða efnis fólkið neytti og mátti sjá að einungis sjö prósent sóttu aðeins í áfengi. 22% sóttu í áfengið með öðrum efnum og 45% aðeins í kannabis, svo eitthvað sé nefnt.
Við fyrstu komu í meðferð höfðu 36 sprautað sig í æð en þó aðeins 10 af þeim reglulega. Þrír þjáðust af lifrarbólgu C, sem er bráður og viðvarandi sjúkdómur sem myndar skorpulifur. Flestir úr þessum árgangi komu fyrst í meðferð milli átján og nítján ára aldurs en fyrsta skráða meðferðin úr árganginum var um þrettán ára aldur.





































