150 plöntur upprættar

Enn finnst kannabis
Enn finnst kannabis Kristinn Ingvarsson

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í íbúð í miðborginni um miðjan dag í gær. Við húsleit á áðurnefndum stað fundust um 150 kannabisplöntur en um helmingur þeirra var á lokastigi ræktunar. Tveir karlar á fertugsaldri hafa játað aðild sína að málinu og telst það upplýst.

Mennirnir sem játuðu aðild sína að málinu hafa áður komið við sögu hjá lögreglu, að sögn lögreglunnar.

Lögreglan segir fyrrnefnda aðgerð vera lið í að hamla gegn sölu og dreifingu fíkniefna. Sem fyrr minnir lögreglan á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert