Mandarínönd í Sandgerði

Mandarínöndin er mjög litskrúðug.
Mandarínöndin er mjög litskrúðug. Páll Þórðarson

Litfögur mandarínönd kom í Norðurkot í Sandgerði á miðvikudaginn var. Á vefnum „Lífið í Sandgerði segir að um stegg sé að ræða, en hann er skrautlegri en kollan. Mandarínönd er sjaldséð hér á landi. 

Mandarínöndin verpir í trjám.  Hún er frá Asíu og var flutt þaðan til Evrópu þar sem hún var höfð í skrúðgörðum. Mandarín öndin hefur sést tvisvar í Norðurkoti og undi sér vel innan um aðra fugla þar.

Lífið í Sandgerði

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert