Nokkrir grunaðir um auðgunarbrot
Eftir Þorbjörn Þórðarson og Þórð Snæ Júlíusson
Nokkrir einstaklingar hafa fengið stöðu grunaðra í tengslum við rannsókn embættis sérstaks saksóknara á kaupum Q Iceland Finance, eignarhaldsfélags sjeiks Mohamed Bin Khalifa Al-Thani frá Katar, á um fimm prósenta hlut í Kaupþingi í september síðastliðnum.
„Annars vegar erum við að skoða hvort þessi viðskipti kunni að varða ákvæði um markaðsmisnotkun í lögum um verðbréfaviðskipti og hins vegar auðgunarbrotakafla almennra hegningarlaga,“ segir Ólafur Þór Hauksson, sérstakur saksóknari. Að sögn Ólafs leikur grunur á að umrædd viðskipti hafi verið til þess fallin að veita rangar og villandi upplýsingar til markaðarins um stöðu Kaupþings, en undir ákvæði um markaðsmisnotkun falla m.a. sýndarviðskipti.
Ekki er búið að yfirheyra Ólaf Ólafsson, sem er persónulegur vinur sjeiksins og var annar stærsti eigandi Kaupþings, en hann hafði milligöngu um viðskiptin.
Talið er líklegt að fleiri fái stöðu grunaðra en mönnum er formlega gefin sú staða við yfirheyrslur. Hin meintu brot geta varðað allt að sex ára fangelsi.
Leitað á heimili og skrifstofu Ólafs
Í tengslum við rannsókn embættis sérstaks saksóknara fóru fram húsleitir á tólf stöðum í gær og síðastliðinn þriðjudag, að undangengnum dómsúrskurðum. Með húsleitunum geta rannsakendur lagt hald á gögn og muni sem kunna að skipta máli fyrir rannsókn málsins, t.d. tölvupósta. Samkvæmt 3. mgr. 74. gr. laga um meðferð sakamála er skilyrði fyrir húsleit að rökstuddur grunur leiki á að framið hafi verið brot sem sætt geti ákæru og að sakborningur hafi verið þar að verki, enda séu augljósir rannsóknarhagsmunir í húfi. M.a. var leitað í höfuðstöðvum Kaupþings og á heimilum fyrrverandi stjórnenda bankans.Í gær var gerð húsleit á heimili Ólafs Ólafssonar og á skrifstofu Q Iceland Finance ehf., sem er til húsa hjá lögmannsstofunni Fulltingi á Suðurlandsbraut. Jafnframt var leitað á skrifstofum Arion verðbréfavörslu og á skrifstofum Kjalars, sem er eignarhaldsfélag í eigu Ólafs. Svo virðist sem rannsakendur hafi talið að Ólafur væri með skrifstofu í höfuðstöðvum Samskipa því þeir sem þangað voru sendir í gær gripu í tómt.
Bloggað um fréttina
-
Sigurður Sveinsson Hraði snigilsins. -
Hafsteinn Viðar Ásgeirsson Gripið í tómt í Samskipum. -
Jenný Anna Baldursdóttir Réttlæti? -
Gunnar Th. Gunnarsson 26 miljarða nótulaus viðskipti -
Hallur Magnússon #9541 Loksins leit en mánuðum of seint!
Innlent »
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
Svipaðar fréttir
- Laugardagur, 23. maí 2009, Innlent Unnið úr leitinni
- Föstudagur, 22. maí 2009, Innlent Húsleit gerð á 10 stöðum
- Mánudagur, 25. maí 2009, Innlent Leitað í sumarhúsi Ólafs
- Fimmtudagur, 6. maí 2010, Innlent Ekki boðaður til skýrslutöku
- Mánudagur, 21. september 2009, Innlent Skýrslur vegna rannsóknar á Q Iceland Finance ekki afhentar
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli



































