„Reyni að gera mitt besta“
Eftir Silju Björk Huldudóttur silja@mbl.is
„Ég hef mikinn áhuga á náminu og metnað. Ég reyni þannig alltaf að gera mitt allra besta,“ segir María Lind Sigurðardóttir, sem útskrifaðist með hæstu einkunn á stúdentsprófi frá Kvennaskólanum í Reykjavík í ár. Hún útskrifaðist af náttúrufræðibraut með einkunnina 9,61. Þess má raunar geta að María var með meðaleinkunnina 10 á bekkjarprófum á fjórða og síðasta ári skólans.
„Á þessu síðasta ári valdi ég þau fög sem ég hef mestan áhuga á, þ.e. stærðfræði, efnafræði og eðlisfræði, þannig að það útskýrir sennilega af hverju ég fékk tíu í öllum prófum,“ segir María og tekur fram að vissulega sé hún líka samviskusöm og eyði dágóðum tíma í heimalærdóminn.
En það er samt ekki svo að María eyði öllum frítíma sínum í heimanámið því hún æfir körfubolta fimm sinnum í viku og er auk þess í píanónámi í Tónlistarskólanum í Hafnarfirði en hún stefnir að því að ljúka burtfararprófi frá skólanum næsta vetur. Skömmu áður en vorprófin hófust varð María auk þess Íslandsmeistari í körfubolta með Haukum. „Það var mjög gaman. Það var svo góður andi í liðinu og við skemmtum okkur vel þannig að það fleytti okkur áfram í vetur.“María stefnir á háskólanám með haustinu og ætlar að innrita sig í Háskóla Íslands. Hún segist hins vegar ekki enn vera búin að gera upp við sig hvaða nám verði fyrir valinu. „Læknisfræðin kemur sterklega til greina en hins vegar finnst mér líka spennandi að fara í efnafræði eða lífefnafræði,“ segir María.
Innlent »
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
Svipaðar fréttir
- Laugardagur, 23. maí 2009, Innlent Sá ekki á töfluna
- Sunnudagur, 28. júní 2009, Innlent Nafnið grafið á skjöld
- Fimmtudagur, 10. júlí 2008, Innlent Afburðanemandi á leið til Svíþjóðar
- Þriðjudagur, 23. júní 2009, Innlent Foreldrar bálreiðir
- Miðvikudagur, 18. júní 2008, Innlent Í draumastarfinu
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli




































