Annar hluti AGS-lánsins í júlí
Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra sagðist á Alþingi í dag efast um að það hefði nein áhrif á gjaldeyrisforðann þó greiðsla annars hluta láns Alþjóðagjaldeyrisssjóðsins (AGS) hafi frestast. Stefnt væri að því að hægt verði að greiða annan hluta lánsins í júlí.
„Sumir hafa verið að tala um að það hafi áhrif á gengið en það skiptir ekki máli hvenær lánið er greitt út á þessum mánuðum, þar sem núverandi gjaldeyrisforði landsins er nægilga öflugur til að standa við bakið á krónunni með gjaldeyrishöftunum, svo lengi sem höftin eru til staðar,“ sagði Jóhanna
„Það er t.d. vafasamt að halda því fram að þetta hafi áhrif á gengið. Ég held að þetta breyti ekki miklu. Hefðum við fengið þetta fyrr og við höfum ekki nýtt þá peninga sem við höfum hingað til fengið t.d. frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum, eða Norðurlöndunum, þannig að það er bara geymt á bók. Ef við hefðum fengið þetta fyrr þá hefðum við fyrr þurft að byrja að greiða vexti af þessu og svo framvegis,“ sagði Jóhanna.
Þetta kom fram í svari forsætisráðherra við fyrirspurn Einars K. Guðfinnssonar, þingmanni Sjálfstæðisflokksins, sem spurði um ástæður þess að önnur greiðsla á láni Alþjóðagjaldeyrissjóðsins hefur tafist eins og raun ber vitni. Sagði hann að þetta væri spurning um trúverðugleika þjóðarinnar út á við og spilaði inn í væntanlega ákvörðun um stýrivexti. Einar sagði að svör ríkisstjórnarinnar hefðu verið mjög óljós.
Jóhanna sagði að ýmislegt hefði orðið þess valdandi að ekki hefði verið hægt að ganga frá endurskoðaðri áætlun við sjóðinn. M.a. þurfi að ná fram endurskipulagningu á bönkunum áður en gengið verði frá áætluninni og vonast væri til að það gæti orðið í byrjun júlí. Stefnt væri að fundi í stjórn AGS í byrjun júlí. Áætlun um ríkisfjármálin þurfi einnig að liggja fyrir og fullyrti Jóhanna að hún muni liggja fyrir í þessum mánuði.
Innlent »
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
Svipaðar fréttir
- Föstudagur, 31. júlí 2009, Innlent Stjórnvöld halda í vonina
- Föstudagur, 31. júlí 2009, Innlent Icesave tefur endurskoðun AGS
- Miðvikudagur, 30. september 2009, Innlent Niðurskurður er óhjákvæmilegur
- Fimmtudagur, 19. nóvember 2009, Innlent Sendir ekki fyrirspurn til Norðurlanda
- Föstudagur, 9. apríl 2010, Innlent Íslandslán ekki á dagskrá AGS
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli



































