Átján mánaða fangelsi fyrir kynferðisbrot
Karlmaður á fimmtugsaldri var í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag dæmdur í átján mánaða fangelsi fyrir kynferðisbrot gagnvart ungri stúlku. maðurinn hafði umgengist stúlkuna mikið en faðir stúlkunnar er æskuvinur hans. Maðurinn var jafnframt dæmdur til þess að greiða stúlkunni eina milljón króna í skaðabætur og tæpa milljón í sakarkostnað.
Var maðurinn ákærður fyrir að hafa í nokkur skipti á árunum 2004-2007 brotið gegn stúlkunni kynferðislega. Átti þetta sér stað á heimili mannsins en stúlkan gætti oft barna hans.
Brot mannsins voru tilkynnt til lögreglu af barnaverndarnefnd í janúar 2008 en nefndin hafi fengið upplýsingar um hugsanlega misnotkun á stúlkunni frá skólastjóra hennar.
Maðurinn staðfesti við yfirheyrslur hjá lögreglu að hafa átt nánar samræður við stúlkuna um kynlíf þegar hún var að gæta barna hans. Segir hann að stúlkan hafi verið mjög opinská og hann gert þau mistök að kaupa handa henni gervilim. Hafi hlutir þróast þannig að hann hafi þreifað á stúlkunni og fróað sér á sama tíma en ekki hafi verið um kynmök að ræða. Sagði maðurinn að stúlkan hafi verið orðin fimmtán ára þegar þetta var.
Að sögn stúlkunnar hafi áreitið hins vegar byrjað mun fyrr eða þegar hún var tólf ára. Hann hafi byrjað að snerta kynfæri hennar utan klæða er hún hafi 12 til 13 ára en innan klæða er hún hafi verið 14 til 15 ára.
Í niðurstöðu dómsins kemur fram að stúlkan býr við skerta andlega greind og að maðurinn hafi verið sem faðir númer tvö fyrir hana.
Dómurinn segir, að maðurinn eigi sér þær málsbætur að hann hafi játað háttsemi sína að hluta til. Hann hafi tælt unga stúlku, sem honum hafði verið trúað fyrir, til annarra kynferðismaka en samræðis, auk þess sem hann áreitti hana kynferðislega. Hafi brotið verið framið á stað þar sem stúlkan taldi sig vera örugg og af manni sem hún nánast leit á sem föður sinn. Segir dómurinn að stúlkan búi við alvarlegar afleiðingar kynferðisbrots og óvíst sé hvort hún muni ná sér að fullu.Innlent »
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 28. janúar 2010, Innlent Fangelsi fyrir kynferðisbrot
- Laugardagur, 15. maí 2010, Innlent Fangelsi fyrir ítrekuð kynferðisbrot
- Föstudagur, 9. október 2009, Innlent Fangelsi fyrir kynferðisbrot
- Fimmtudagur, 14. ágúst 2008, Innlent Sex ára fangelsi fyrir kynferðisbrot
- Föstudagur, 17. október 2008, Innlent Fékk stúlku til að afklæða sig framan við vefmyndavél
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli



































