Josefsson fannst ganga hægt
Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, staðfesti á Alþingi í dag að sænski efnahagsmálasérfræðingurinn Mats Josefsson hefði haft áform um að hætta störfum fyrir íslensk stjórnvöld.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, vísaði til þess að sagt væri frá því á forsíðu Morgunblaðsins, að Josefsson hefði hótað að hætta. Spurði hún Jóhönnu hvort þetta væri rétt og hvort hann hefði sett einhver skilyrði fyrir að halda áfram störfum.
Jóhanna sagði, að það væri vissulega rétt, að Mats Josefsson hefði haft áform um að hætta störfum fyrir íslensk stjórnvöld en þau áform væru ekki lengur uppi. Farið hefði verið yfir stöðuna og athugasemdir Josefssons og menn myndu nú samræma sjónarmið sín.
Jóhanna sagði, að Josefsson teldi, að vinna hefði átt hraðar í endurskipulagningu bankakerfisins en ýmsar ástæður væru fyrir því að það hefði ekki tekist. Þannig hefði mat á bönkunum tekið lengri tíma en ætlað var. Einnig hefði verið ágreiningur í þinginu um afgreiðslu eignaumsýslufélags, m.a. vegna andstöðu sjálfstæðismanna og framsóknarmanna við slíkt félag.
Nú væri frumvarp um slíkt félag komið fram á Alþingi. Þá myndi ríkisstjórnin afgreiða á næstu dögum eigendastefnu. Allt væru þetta liðir í að ná því fram að endurskipulaging bankanna geti legið fyrir í síðasta lagi í byrjun júlí.
Þorgerður Katrín sagði, að Josefsson hefði upplýst á fundi með efnahags- og skattanefnd, að frumvarpið um eignasýslufélag væri ekki eins og hann hefði kosið að það væri. Ítrekaði Þorgerður spurningu um hvort Josefsson hefði sett einhver þau skilyrði, sem urðu til þess að hann mun starfa hér áfram.
Jóhanna sagði, að Josefsson hefði lagt áherslu á að hraðað yrði vinnu við endurskipulagningu á bönkunum. Jóhanna sagðist geta tekið undir að það hefði verið æskilegt en upp hefðu komið margvísleg vandamál, sem menn vissu ekki um þegar þeir lögðu af stað í þennan leiðangur. Viðræður við kröfuhafa gömlu bankanna hefðu m.a. verið flóknari en gert var ráð fyrir.
Þá væru efnahagsmálin vistuð í þremur ráðuneytum, sem sé ekki skynsamlegt. Sagði Jónanna, að lagt verði innan tíðar fram frumvarp um breytingar á stjórnkerfinu þar sem m.a. verði gert ráð fyrir að að komið verði á einu efnahagsráðuneyti.
Innlent »
- „Svona sending er ný reynsla“
- „Ég reyni að lifa lífinu til fulls“
- „Lögmál útrásarinnar lifa enn góðu lífi“
- Par villtist á leiðinni í Þórsmörk
- 65 brautskráðir á Sauðárkróki
- „Þú ert númer 44 í röðinni“
- Vatn flæddi yfir veginn
- Bilun í netkerfi Símans
- Krefjast þess að bankinn endurskoði áform sín
- Vissu ekki hver hefði ekið
Laugardagur, 26.5.2012
- „Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“
- Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi
- Íslenska lagið fékk 46 stig
- Svíar unnu Evróvisjón 2012
- Manni bjargað úr Ölfusá
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Föstudagur, 13. nóvember 2009, Innlent Jóhanna ósammála Josefsson
- Þriðjudagur, 23. júní 2009, Innlent Josefsson setti engin skilyrði
- Þriðjudagur, 26. maí 2009, Innlent Tafir á uppskiptingu milli nýju og gömlu valda titringi
- Mánudagur, 16. nóvember 2009, Innlent Samningur við Josefsson rennur út um áramót
- Mánudagur, 22. júní 2009, Innlent Vill koma bönkum út fyrir áhrifasvið stjórnmálamanna
-
Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju



































