Snjór og þrumur á Hellisheiði

Bíll fór út af veginum á Hellisheiði í dag.
Bíll fór út af veginum á Hellisheiði í dag. Ragnar Axelsson

Einn bíll hefur lent útaf á Hellisheiði, og tveir í Þrengslunum, vegna hálku og snjókomu. Mikil haglél gerði snögglega, ásamt þrumum og eldingum, og varð á örskömmum tíma snjóþekja á vegum þar sem áður hafði verið auð jörð. Lögreglan biður ökumenn að fara varlega.

Samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofunni stafar þetta einkennilega veðurfar af því að háreist skúraský, bólstrakennd, eru á þessum slóðum og þeim getur fylgt haglél, snjókoma og þrumuveður. Reikna má með þessu veðri eitthvað fram á kvöld.

Rafmagn fór af Hveragerði og Þorlákshöfn í um það bil 10 mínútur nú síðdegis og er talið að það megi rekja til þrumuveðursins. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert