Segir að lengri vistun sé ekki grunnþjónusta

Sigrún Erla Sigurðardóttir, með barn í fanginu, mótmælir við fundarstað Leikskólaráðs í gær. stækka

Sigrún Erla Sigurðardóttir, með barn í fanginu, mótmælir við fundarstað Leikskólaráðs í gær. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Morgunblaðið Eftir Bergþóru Njálu Guðmundsdóttur ben@mbl.is

Leikskólaráð Reykjavíkurborgar samþykkti í gær hækkun á gjöldum fyrir leikskólavist umfram átta klukkustundir um allt að 63,3%, eða tæpar 15 þúsund krónur. Gert er ráð fyrir að hækkunin taki gildi 1. ágúst næstkomandi en gjald fyrir vistun í átta tíma eða skemur verður óbreytt.

„Ég varð mjög reið þegar ég sá að borgin ætlaði að byrja á því að ganga á barnafólkið, sem við vitum að er skuldsettast,“ segir Sigrún Erla Sigurðardóttir, tveggja barna móðir, sem efndi til mótmæla í gær fyrir utan Miðbæjarskólann þar sem fundur leikskólaráðs fór fram. „Ég hef þurft að hafa barnið mitt lengur en átta tíma á dag í leikskóla til að halda vinnunni. Það er ekkert minna í boði en átta tíma vinnudagur og það tekur 20 mínútur að aka milli vinnu og leikskóla.“

Hún segir að varla muni nokkur maður nýta sér lengri vistun með þessu. „Þetta verður bara til þess að ég þarf að biðja þriðja aðila að sækja son minn sem þarf þá að fara í pössun á annan stað. Þetta bitnar því á börnunum. Mér finnst líka sláandi að þeim hafi fjölgað sem hafa lengri vinnutíma eftir síðasta haust sem segir okkur að fólk þarf að vinna meira til að ná endum saman. Það er mjög sérstakt að fyrstu aðgerðir Reykjavíkurborgar sem snúa að borgurunum felist í því að fara beint í vasa barnafjölskyldna. “

Hingað til hafa leikskólagjöld verið niðurgreidd um 87-95% að sögn Þorbjargar Helgu Vigfúsdóttur, formanns leikskólaráðs. Með breytingunni verði kostnaðarþátttaka foreldra hins vegar á bilinu 21-50% fyrsta hálftímann eftir átta stundir og 41-100% fyrir síðasta klukkutímann, þ.e. þegar vistunin er 8,5-9,5 klukkustundir. Þetta þýðir að leikskólagjöld fyrir 9,5 tíma vistun hækka í heildina um 14.794 kr. hjá foreldrum í sambúð, eða 63,3%.

Þorbjörg segir greiningu sýna að foreldrar nýti ekki allan þann tíma sem þeir kaupi fyrir börn sín en innan við 200 börn séu með 9,5 tíma vistun. En er forsvaranlegt að leggja á þá sem þurfa á lengri vistun að halda yfir 60% hækkun leikskólagjalda, þegar verðbólgan mælist 11,6% og árferðið er jafn slæmt og raun ber vitni?

„Það er forsvaranlegt á þeim forsendum að þetta sé ekki grunnþjónusta sem sveitarfélagið og skattgreiðendur þurfa að veita því grunnþjónusta í leikskóla er átta stundir,“ svarar Þorbjörg. „Í staðinn fyrir að hækka hlutdeild allra foreldra finnst okkur sanngjarnara að leggja það á þá sem þurfa á viðbótarþjónustunni að halda, af því að við teljum að það sé svigrúm í kerfinu til að nýta það betur. Að sjálfsögðu munum við mæta foreldrum sem eru mjög illa staddir, velferðarsvið hjálpar þeim. Og ef raunveruleg þörf er á þessu hjá einhverjum munum við að sjálfsögðu skoða það.“

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Velta á fasteignamarkaði frá janúar til febrúar í ár var 46,335 milljarðar kr. en var ...

Lántakendur varaðir við

05:30 Grípi Seðlabankinn til þess ráðs að hækka vexti frekar gæti það haft veruleg áhrif á mánaðarlega greiðslubyrði af óverðtryggðum fasteignalánum. Meira »
Rússnesk skip umskipa afla í Hafnarfjarðarhöfn eftir veiðar á Reykjaneshrygg.

Athugasemdir við Rússa

05:30 Íslensk stjórnvöld hafa komið alvarlegum athugasemdum á framfæri við sendiherra Rússlands á Íslandi vegna karfaveiða Rússa á Reykjaneshrygg. Meira »

Flugfarþegi lak plötu á netið

Umslag plötunnar Valtari.
05:30 Áttunda og nýjasta plata Sigur Rósar, Valtari , kom út í gær en hún er fyrsta breiðskífa sveitarinnar frá því Með suð í eyrum við spilum endalaust kom út fyrir fjórum árum. Meira »

Störfum í bönkum fækkað um 2.000

Friðbert Traustason. Formaður Sambands íslenskra bankamanna .
05:30 Störfum hjá fjármálafyrirtækjum hefur fækkað um 2.000 frá því vorið 2008. Útibúum bankanna hefur fækkað um helming á sama tíma. „Þetta hefur verið hreint hörmungarástand,“ segir Friðbert Traustason, formaður Samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja. Meira »

Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi

04:53 Sunnan- og suðvestanátt verður á landinu í dag, yfirleitt 5-15 m/s, hvassast norðan- og vestanlands. Rigning við Breiðafjörð og á Vestfjörðum, léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi, en skýjað og súld með köflum syðra. Meira »

Kostnaður við komu 4 milljónir

Wen Jiabao og Jóhanna Sigurðardóttir á Geysi
05:30 Ekki hefur verið sótt um aukafjárveitingu vegna kostnaðar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu við heimsókn kínverska forsætisráðherrans Wens Jiabaos. Meira »

Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi

Með batnandi veðri gefst færi til útileikja.
05:30 Vel lítur út með veður víðast hvar á landinu um hvítasunnuhelgina. Reyndar má búast við að rigni á Vestfjörðum í dag, en svo stytti upp og víða verði sólríkt. Hitastig hefur stigið verulega síðustu daga og í dag er búist við að hiti klifri yfir 20 stig á norðaustanverðu landinu. Meira »

Segir stuðning við Kanadadollar

Kanadadollari. Úr myndasafni.
Í gær, 22:15 „Þetta er rætt í alvöru á Íslandi. Efnahagsráðherrann fór til Kanada fyrir sex vikum og fundaði með kanadíska seðlabankanum og með þingmönnum og að ég tel fjármálaráðuneytinu líka. Hann kom síðan aftur til Íslands og sagði opinberlega að þetta væri möguleiki sem væri ekki hægt að útiloka.“ Meira »

Brotist inn meðan íbúar skruppu frá

Í gær, 21:09 Tilkynnt var um innbrot í heimahús í Grafarvogi klukkan sjö í kvöld og söknuðu húsráðendur sjónvarps og ýmissa raftækja. Þeir brugðu sér af bæ í rúma klukkustund og þegar þeir komu heim var búið að brjóta rúðu og komust þjófarnir þannig inn. Meira »

Meintar falsanir til lögreglunnar

Ástþór Magnússon, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 19:39 Tekin var ákvörðun um það í dag af yfirkjörstjórnum í Reykjavík að vísa meintum fölsunum á undirskriftum á meðmælendalistum Ástþórs Magnússonar, forsetaframbjóðanda, til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Meira »

Stefnan áframhaldandi lágt gengi

Einar K. Guðfinnsson, alþingismaður.
Í gær, 20:11 „Það er alveg ljóst mál að þetta kosningaplagg ríkisstjórnarinnar sem kallað hefur verið framkvæmdaáætlun er byggð á þeirri forsendu að gengi íslensku krónunnar haldist álíka veikt og það er í dag,“ segir Einar Kr. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, í samtali við mbl.is. Meira »

Tryggja að allir komist heilir heim

Í gær, 18:59 Haldið verður úti auknu umferðareftirliti í sumar á Vesturlandsvegi, Suðurlandsvegi og Reykjanesbraut af hálfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í samvinnu við embætti ríkislögreglustjóra. Meira »

Gæsluvarðhaldið staðfest

Í gær, 18:29 Hæstiréttur hefur staðfest gæsluvarðhaldsúrskurð yfir tveimur karlmönnum sem grunaðir eru um að hafa valdið dauða samfanga síns í fangelsinu á Litla-Hrauni fyrir rúmri viku. Héraðsdómur hafði áður úrskurðað mennina í gæsluvarðhald til 13. júní. Meira »

Húsbíll fauk af vegi

Í gær, 18:09 Húsbíll fauk í Fljótum, skammt frá Ketilási um hádegisbilið í dag. Tvennt var í bílnum og voru þau flutt á heilsugæsluna á Siglufirði til aðhlynningar. Meira »

Yfirheyrslur héldu áfram í dag

Fangelsið á Litla-Hrauni.
Í gær, 18:00 Yfirheyrslur vegna láts fanga á Litla-Hrauni, sem talið er hafa borið að með sviplegum hætti, héldu áfram í dag og var nokkur fjöldi vitna yfirheyrður, þar á meðal fólk sem tengist fangelsinu. Meira »

Fundur Háskólalestarinnar fellur niður

Frá Ísafirði. Úr myndasafni.
Í gær, 18:22 Fram kemur í tilkynningu frá Háskólalestinni að fyrirlestur um forsetaframboðið sem fara átti fram á Ísafirði í kvöld klukkan 20:00 falli niður vegna þess að öllu flugi frá Reykjavíkur til Ísafjarðar í dag hafi verið aflýst. Meira »

Ólafur mælist með mest fylgi

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands.
Í gær, 18:09 Mikill viðsnúningur hefur orðið í fylgi við forsetaframbjóðendurna Ólaf Ragnar Grímsson og Þóru Arnórsdóttur ef marka niðurstöður nýrrar skoðanakönnunar Capacent Gallup sem greint var frá í fréttum Ríkisútvarpsins. Meira »

Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð

Í gær, 17:49 Talsvert magn af fíkniefnum fannst við húsleit lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í kjallaraíbúð í miðborginni í gær.   Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
HYMER FEELING 430 - Létt og meðfærilegt hjólhýsi
HYMER Feeling 430 eru með fullkomnustu smá-hjólhýsum á markaði. Hymer eru eins...
Lyngborgir.is. Sumarhúsalóðir
Til sölu eignarlóðir í Grímsnesi. Stærðir 5800 fm-8700 fm gott verð. 75 km frá ...
Handunnar vörur úr íslensku roði & leðri
Armbönd, símaveski, servíettuhringir, töskur o.fl. unnið úr íslensku roði og leð...
Hvítur dvergschnauzer.
Eigum 2 yndislega rakka ólofaða úr spennandi goti undan innfluttum margföldum me...
 
12836 fellahverfi - útboð

út­boð Reykja­víkur­bor­g Innka­upa­...
Ársfundur vina vatnajökuls

Ársfundur Vina Vatnajökuls, hollvinasamt...
Aðalfundur félags háskólakvenna

Félag háskólakvenna og kvenstúdenta Aðal...
Kynning skipulagsmála í rangárþingi eystra

Kynning skipulagstillöguí Rangárþin...