Norðlingaskóli fékk menntaverðlaun

Forseti Íslands afhenti Íslensku menntaverðlaunin í kvöld.
Forseti Íslands afhenti Íslensku menntaverðlaunin í kvöld.

Forseti Íslands afhenti nú í kvöld Íslensku menntaverðlaunin 2009 í Hofsstaðaskóla í Garðabæ. Verðlaunin eru veitt í fjórum flokkum og voru verðlaunahafar sem hér segir:

1. Í flokknum Skólar sem sinnt hafa vel nýsköpun eða farsælu samhengi í fræðslustarfi: Norðlingaskóli í Reykjavík.

2. Í flokknum Kennari sem hefur skilað merku ævistarfi eða á annan hátt skarað framúr: Þorvaldur Jónasson myndamennta- og skriftarkennari við Réttarholtsskóla í Reykjavík.

3. Í flokknum Ungt fólk sem í upphafi kennsluferils hefur sýnt hæfileika og lagt alúð við starf sitt: Sylvía Pétursdóttir, kennari við Áslandsskóla í Hafnarfirði.

4. Í flokknum Höfundur námsefnis sem stuðlað hefur að nýjungum í skólastarfi: Helgi Grímsson, skólastjóri Sjálandsskóla.

Rökstuðning dómnefnda og upplýsingar um verðlaunin má finna hér.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert