Dagmömmur óttast atvinnumissi
„Það hefur aldrei gerst í þau 30 ár sem ég hef verið dagmamma að ég hafi ekki verið með barn á biðlista, fyrr en nú. Núna sé ég fram á að verða með færri börn en venjulega í haust,“ segir Inga Hanna Dagbjartsdóttir.
Hún segir þjónustutryggingarnar, sem eru 35 þúsund króna styrkur sem foreldrar geta ráðstafað að vild vegna gæslu barna sinna, einnig hafa haft þau áhrif að börnum hjá dagforeldrum hafi fækkað.
„Við erum allar að verða atvinnulausar,“ segir Inga Hanna.
Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir, formaður leikskólaráðs Reykjavíkur, minnir á að mikill þrýstingur hafi verið á kerfinu í langan tíma vegna skorts á þjónustuúrræðum. „Við vissum að með fullmannaða leikskóla og fullnýtt dagforeldrakerfi væru um 1.000 börn samt án þjónustu. Þess vegna var þjónustutryggingunum komið á í september. Sumir hafa þá kannski ákveðið að bíða eftir leikskóla í stað þess að fara inn í dagforeldrakerfið.“
Að sögn Þorbjargar Helgu greiðir Reykjavíkurborg þjónustutryggingu fyrir 700 börn. Hún gerir ráð fyrir því að þessi tala eigi eftir að lækka í haust. „Við tökum ekki börn inn í leikskólana fyrr en á haustin. Nú eru um 200 fleiri börn sem þurfa þjónustu heldur en í fyrra. Foreldrar þeirra munu líka sækja inn í dagforeldrakerfið.“ ingibjorg@mbl.is
Innlent »
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
Svipaðar fréttir
- Mánudagur, 8. september 2008, Innlent Dagforeldrar lýsa eftir börnum
- Þriðjudagur, 9. september 2008, Innlent Tugir leikskólaplássa í uppnámi
- Mánudagur, 16. nóvember 2009, Innlent Leikskólar lenda í niðurskurði
- Miðvikudagur, 3. september 2008, Innlent Öllum börnum tryggð dagvistun
- Fimmtudagur, 6. maí 2010, Innlent Tveggja ára börnum tryggð leikskólavist
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli



































