Brottvikning afturkölluð

Morgunblaðinu hefur borist eftirfarandi yfirlýsing frá Albínu Huldu Pálsdóttur vegna umfjöllunar blaðsins um málefni Fornleifastofnunar Íslands og samskipti stofnunarinnar við bandarískan háskóla.

„Í kjölfar umfjöllunar Morgunblaðsins miðvikudaginn 20. maí, athugasemdar við þá umfjöllun frá Thomas McGovern sem birt var föstudaginn 22. maí og bréfs til blaðsins frá Árna Einarssyni, forstöðumanni Náttúrurannsóknarstöðvarinnar við Mývatn, sem birtist laugardaginn 23. maí vil ég koma eftirfarandi á framfæri.

Fyrst vil ég geta þess að umfjöllun Morgunblaðsins er ekki runnin undan mínum rifjum, enda gaf ég ekki kost á viðtali við blaðið þegar eftir því var leitað. Ég er þolandi í flóknu máli en ekki gerandi.

Í Morgunblaðinu kom fram að mér hefði verið vikið formlega úr doktorsnámi við The Graduate Center, The City University of New York með bréfi dagsettu 4. ágúst 2008. Þetta er rétt, en lögfræðingur minn kærði brottvikninguna því engin rök voru fyrir henni. Það kom á daginn enda afturkallaði deildarráð mannfræðideildarinnar brottvikninguna. Ráðið samþykkti einnig að ég gæti haldið áfram námi mínu við skólann undir handleiðslu annarra leiðbeinenda en prófessors McGoverns og prófessors Perdikaris sem ég hafði áður unnið með.

Í yfirlýsingu sinni sem birtist í Morgunblaðinu sá prófessor Thomas McGovern ástæðu til þess að kalla mig „lélegan námsmann“, væntanlega mér til minnkunar. Mér finnst því ástæða til þess að taka fram að ég lauk BA-prófi í fornleifafræði frá Háskóla Íslands í júní 2005 með meðaleinkunnina 8,77. Strax um haustið fór ég í doktorsnám við The Graduate Center, CUNY, með prófessor McGovern sem leiðbeinanda. Í náminu lagði ég áherslu á dýrabeinafornleifafræði og var ætlunin að stunda rannsóknir á Íslandi og í Norður-Evrópu. Þau þrjú ár sem ég var við The Graduate Center var ég með meðaleinkunnina 3,90 af 4 mögulegum, sem er 9,75 samkvæmt íslenskum einkunnaskala. Þegar ég tók svokallað First Exam í nóvember 2007, sem er fyrsti áfangi í átt að doktorsgráðu, fékk ég einróma „high pass“ frá prófnefnd innan fornleifafræðideildarinnar. Ég hef hlotið fjölda náms- og rannsóknarstyrkja bæði á Íslandi og í Bandaríkjunum, nú síðast þriggja ára styrk úr rannsóknarnámssjóði Rannís sem ég hef ekki getað nýtt vegna þessa máls. Auk framúrskarandi námsárangurs hef ég þegar fengið birtar eftir mig fræðigreinar, tekið þátt í ráðstefnum og skrifað skýrslur um rannsóknir mínar. Ummæli prófessors McGoverns um „lélegan námsmann“ dæma sig því sjálf.

Innan The Graduate Center eru aðeins tveir prófessorar sem sérhæfa sig í dýrabeinafornleifafræði og stunda fornleifarannsóknir í Evrópu, McGovern og Perdikaris. Þessi flókna atburðarás er þess valdandi að þó að brottrekstur minn hafi verið afturkallaður er mér ókleift að halda áfram námi mínu í sama skóla nema breyta algjörlega um fræðasvið, þótt ég þyki fyrirmyndarnámsmaður í The Graduate Center.

Þetta mál hefur verið mér afar erfitt en síðan ég hóf nám í fornleifafræði haustið 2002 hefur fagið átt hug minn allan. Ég vil vinna í íslenskri fornleifafræði áfram og til þess þarf ég að fá tækifæri til að ljúka námi í þeirri sérgrein sem ég hef valið mér, sem ég vona svo sannarlega að verði.“

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Velta á fasteignamarkaði frá janúar til febrúar í ár var 46,335 milljarðar kr. en var ...

Lántakendur varaðir við

05:30 Grípi Seðlabankinn til þess ráðs að hækka vexti frekar gæti það haft veruleg áhrif á mánaðarlega greiðslubyrði af óverðtryggðum fasteignalánum. Meira »
Rússnesk skip umskipa afla í Hafnarfjarðarhöfn eftir veiðar á Reykjaneshrygg.

Athugasemdir við Rússa

05:30 Íslensk stjórnvöld hafa komið alvarlegum athugasemdum á framfæri við sendiherra Rússlands á Íslandi vegna karfaveiða Rússa á Reykjaneshrygg. Meira »

Flugfarþegi lak plötu á netið

Umslag plötunnar Valtari.
05:30 Áttunda og nýjasta plata Sigur Rósar, Valtari , kom út í gær en hún er fyrsta breiðskífa sveitarinnar frá því Með suð í eyrum við spilum endalaust kom út fyrir fjórum árum. Meira »

Störfum í bönkum fækkað um 2.000

Friðbert Traustason. Formaður Sambands íslenskra bankamanna .
05:30 Störfum hjá fjármálafyrirtækjum hefur fækkað um 2.000 frá því vorið 2008. Útibúum bankanna hefur fækkað um helming á sama tíma. „Þetta hefur verið hreint hörmungarástand,“ segir Friðbert Traustason, formaður Samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja. Meira »

Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi

04:53 Sunnan- og suðvestanátt verður á landinu í dag, yfirleitt 5-15 m/s, hvassast norðan- og vestanlands. Rigning við Breiðafjörð og á Vestfjörðum, léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi, en skýjað og súld með köflum syðra. Meira »

Kostnaður við komu 4 milljónir

Wen Jiabao og Jóhanna Sigurðardóttir á Geysi
05:30 Ekki hefur verið sótt um aukafjárveitingu vegna kostnaðar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu við heimsókn kínverska forsætisráðherrans Wens Jiabaos. Meira »

Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi

Með batnandi veðri gefst færi til útileikja.
05:30 Vel lítur út með veður víðast hvar á landinu um hvítasunnuhelgina. Reyndar má búast við að rigni á Vestfjörðum í dag, en svo stytti upp og víða verði sólríkt. Hitastig hefur stigið verulega síðustu daga og í dag er búist við að hiti klifri yfir 20 stig á norðaustanverðu landinu. Meira »

Segir stuðning við Kanadadollar

Kanadadollari. Úr myndasafni.
Í gær, 22:15 „Þetta er rætt í alvöru á Íslandi. Efnahagsráðherrann fór til Kanada fyrir sex vikum og fundaði með kanadíska seðlabankanum og með þingmönnum og að ég tel fjármálaráðuneytinu líka. Hann kom síðan aftur til Íslands og sagði opinberlega að þetta væri möguleiki sem væri ekki hægt að útiloka.“ Meira »

Brotist inn meðan íbúar skruppu frá

Í gær, 21:09 Tilkynnt var um innbrot í heimahús í Grafarvogi klukkan sjö í kvöld og söknuðu húsráðendur sjónvarps og ýmissa raftækja. Þeir brugðu sér af bæ í rúma klukkustund og þegar þeir komu heim var búið að brjóta rúðu og komust þjófarnir þannig inn. Meira »

Meintar falsanir til lögreglunnar

Ástþór Magnússon, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 19:39 Tekin var ákvörðun um það í dag af yfirkjörstjórnum í Reykjavík að vísa meintum fölsunum á undirskriftum á meðmælendalistum Ástþórs Magnússonar, forsetaframbjóðanda, til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Meira »

Stefnan áframhaldandi lágt gengi

Einar K. Guðfinnsson, alþingismaður.
Í gær, 20:11 „Það er alveg ljóst mál að þetta kosningaplagg ríkisstjórnarinnar sem kallað hefur verið framkvæmdaáætlun er byggð á þeirri forsendu að gengi íslensku krónunnar haldist álíka veikt og það er í dag,“ segir Einar Kr. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, í samtali við mbl.is. Meira »

Tryggja að allir komist heilir heim

Í gær, 18:59 Haldið verður úti auknu umferðareftirliti í sumar á Vesturlandsvegi, Suðurlandsvegi og Reykjanesbraut af hálfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í samvinnu við embætti ríkislögreglustjóra. Meira »

Gæsluvarðhaldið staðfest

Í gær, 18:29 Hæstiréttur hefur staðfest gæsluvarðhaldsúrskurð yfir tveimur karlmönnum sem grunaðir eru um að hafa valdið dauða samfanga síns í fangelsinu á Litla-Hrauni fyrir rúmri viku. Héraðsdómur hafði áður úrskurðað mennina í gæsluvarðhald til 13. júní. Meira »

Húsbíll fauk af vegi

Í gær, 18:09 Húsbíll fauk í Fljótum, skammt frá Ketilási um hádegisbilið í dag. Tvennt var í bílnum og voru þau flutt á heilsugæsluna á Siglufirði til aðhlynningar. Meira »

Yfirheyrslur héldu áfram í dag

Fangelsið á Litla-Hrauni.
Í gær, 18:00 Yfirheyrslur vegna láts fanga á Litla-Hrauni, sem talið er hafa borið að með sviplegum hætti, héldu áfram í dag og var nokkur fjöldi vitna yfirheyrður, þar á meðal fólk sem tengist fangelsinu. Meira »

Fundur Háskólalestarinnar fellur niður

Frá Ísafirði. Úr myndasafni.
Í gær, 18:22 Fram kemur í tilkynningu frá Háskólalestinni að fyrirlestur um forsetaframboðið sem fara átti fram á Ísafirði í kvöld klukkan 20:00 falli niður vegna þess að öllu flugi frá Reykjavíkur til Ísafjarðar í dag hafi verið aflýst. Meira »

Ólafur mælist með mest fylgi

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands.
Í gær, 18:09 Mikill viðsnúningur hefur orðið í fylgi við forsetaframbjóðendurna Ólaf Ragnar Grímsson og Þóru Arnórsdóttur ef marka niðurstöður nýrrar skoðanakönnunar Capacent Gallup sem greint var frá í fréttum Ríkisútvarpsins. Meira »

Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð

Í gær, 17:49 Talsvert magn af fíkniefnum fannst við húsleit lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í kjallaraíbúð í miðborginni í gær.   Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Sumarhúsasmíði Sveins.
Íslensk hágæða framleiðsla. Löggiltur húsasmíðameistari. Smíðum eftir þínum teik...
Æfingabekkur
Æfingabekkur til sölu. Upplýsingar í síma : 8935005...
Hæðarkíkir - þrífótur - stika
Til sölu hæðarkíkir Leica Runner 20, þrífótur og stika. Verð 40000...
KAUPUM GULL
KAUPUM GULL - JÓN & ÓSKAR Kaupum allt gull. Kaupum silfurborðb...
 
Breyting á aðalskipulagi norðurþings

Norðurþing Skipulags- og byggingarfullt...
Auglýsing byggðakvóti

Auglýsing vegna úthlutunar byggðakvó...
Aðstoðarskólastjóri
Grunn-/framhaldsskóla
Blönduskóli Aðstoðarskólastjóri Staða...
Deiliskipulag á grundartanga

Deiliskipulag á Grundartanga Austur...