„Erum víst orðnir norðurbæingar“
Eftir Sigtrygg Sigtryggsson sisi@mbl.is
Sameining Grímseyjar og Akureyrar tók gildi annan í hvítasunnu, 1. júní. Þetta eru mikil viðbrigði fyrir Grímseyinga, sem hafa ráðið sínum málum sjálfir öldum saman.
„Nú erum við víst orðnir norðurbæingar á Akureyri. Hríseyingar eru þá miðbæingar og allir hinir innbæingar,“ sagði Garðar Ólason, oddviti Grímseyinga, í léttum tón, þegar blaðið sló á þráðinn til hans í gær.
Kosið var um sameininguna samhliða Alþingiskosningunum og samþykktu Akureyringar hana með 69% atkvæða og Grímseyingar með 88% atkvæða. Hinn 1. desember sl. voru Akureyringar 17.552 talsins en Grímseyingar 92, svo Akureyringum hefur nú fjölgað um 0,5%, eða sem nemur íbúafjölda í einni blokk.
Fram að sveitarstjórnarkosningum vorið 2010 verður yfirstjórn hins sameinaða sveitarfélags þannig háttað að bæjarstjórn Akureyrar mun hafa með höndum stjórn þess. Fagnefndir Akureyrar munu hver á sínu sviði fara með málefni sem varða Grímsey og heyra undir þær.
Hreppsnefnd Grímseyjarhrepps verður samráðsnefnd fram að sveitarstjórnarkosningum 2010. Hlutverk hennar er að vera tengiliður fagnefnda og íbúa Grímseyjar og getur hún skipað áheyrnarfulltrúa úr nefndinni til setu á fundum fagnefnda þegar málefni Grímseyjar eru til umfjöllunar.
„Ég veit ekkert hvað ég nefnist núna, kannski að ég verði titlaður héraðsstjóri,“ segir Garðar Ólason. Garðar hefur komið meira og minna að sveitarstjórninni í Grímsey í 40 ár en hyggst hætta afskiptum af þeim málum næsta vor.
Bjarni Magnússon, sem hefur verið hreppstjóri síðastliðin 40 ár, verður það áfram.
Innlent »
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
Svipaðar fréttir
- Þriðjudagur, 27. apríl 2010, Innlent Sæfari slapp úr slipp og sigldi til Grímseyjar
- Fimmtudagur, 16. apríl 2009, Innlent Akureyri teygir sig norður fyrir bauginn
- Föstudagur, 12. desember 2008, Innlent Undirbúa sameiningu sveitarfélaganna
- Fimmtudagur, 18. júní 2009, Innlent Gestafjöld í Grímsey
- Laugardagur, 25. apríl 2009, Innlent Kosið um sameiningu Akureyrar og Grímseyjar
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli



































