Hringt í skóginn

mbl.is/Frikki

Í nokkrum þjóðskógum landsins er nú hægt að hringja í ákveðið númer og hlusta á upplýsingar um skóginn. Skógrækt ríkisins stendur fyrir framtakinu sem hófst þann 1. júní. Staurar með símanúmerum eru í skógum í öllum landsfjórðungum.

„Hugmyndin er að veita gestum þjóðskóganna upplýsingar um skóginn sem þeir eru staddir í, án þess að þeir þurfi að fá með sér leiðsögumann eða lesa bækling,“ segir Esther Ösp Gunnarsdóttir, kynningarstjóri Skógræktar ríkisins. Við stíga í skógunum standa nú staurar með símanúmeri sem hægt er að hringja í og hlusta á fróðleik eða skemmtun tengda umhverfinu. „Þegar gengið er fram á staur er hægt að hringja í númerið og fá upplýsingarnar lesnar fyrir sig.“ Hver lestur er um það bil 2-4 mínútur og gjaldið er það sama og í venjuleg símanúmer.

Skógræktin hefur sett nokkra staura af þessu tagi í hverjum landsfjórðungi í sumar en þeim mun svo fjölga strax næsta sumar.


mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert