Skoðar yfirtöku Fengs á Iceland Express
Eftir Önund Pál Ragnarsson onundur@mbl.is
Á meðal þess sem til skoðunar er í þrotabúi Eignarhaldsfélagsins Fons er hvort hlutafjáraukning í flugfélaginu Iceland Express síðasta haust hafi verið eðlileg. Að sögn Óskars Sigurðssonar skiptastjóra hefur þó engin ákvörðun verið tekin um að rifta kaupunum, málið sé einfaldlega í skoðun eins og aðrar ráðstafanir Fons allt að tvö ár aftur í tímann. Óskar hefur kallað eftir gögnum málsins og segir að þau séu komin í hús.
Landsbanki Íslands, sem átti hagsmuna að gæta í flugfélaginu, skoðaði hlutafjáraukninguna síðasta haust og gerði þá ekki athugasemdir við hana. Í fréttatilkynningu sem Iceland Express sendi frá sér í gærkvöldi, eftir að fjallað var um málið í fréttum Stöðvar 2, kom fram að í haust eftir bankahrunið hefði verið ljóst að nýtt fjármagn vantaði í rekstur félagsins. „Ekki var í mörg hús að venda því rekstrarfé lá ekki á lausu. Var því gripið til þess ráðs að auka hlutafé með framlagi frá eignarhaldsfélaginu Feng,“ segir í tilkynningunni. Þar sagði einnig að félagið harmaði að reynt væri að ala á tortryggni í viðskiptalífinu með fréttaflutningnum.
Heildarverðmætið 326 milljónir í nóvember
Fons hefur verið í eigu athafnamannsins Pálma Haraldssonar. 24. nóvember síðastliðinn eignaðist Eignarhaldsfélagið Fengur, annað félag sem tengist Pálma, 92% hlut í Iceland Express eftir 300 milljóna króna hlutafjáraukningu. Fyrir átti Fengur ekkert í Iceland Express, en Fons átti það alfarið. Eftir hlutafjáraukninguna var hlutur Fons í flugfélaginu því 8%.Innlent »
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 28. janúar 2010, Innlent Stór krafa á Jón Ásgeir
- Fimmtudagur, 19. júní 2008, Innlent Hæstiréttur staðfestir sýknu Fons
- Laugardagur, 10. apríl 2010, Innlent Gjöfin í Útsvari tæpast óviðeigandi
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli



































