Fagna 60 ára afmæli bensínstöðvar

Skeljungsstöðin við Laugaveg.
Skeljungsstöðin við Laugaveg.

Sextíu ár eru í dag liðin frá því Skeljungsstöðin við Laugaveg 180  var opnuð. Til þess að fagna tímamótunum er m.a. veittur 10 krónu afsláttur af verði hvers lítra af eldsneyti og 20% afsláttur af smurþjónustu. Að auki verða afmælistilboð og gestum boðið upp á heitt kaffi og meðlæti.

Í tilefni tímamótanna hefur verið sköpuð stemmning frá miðri síðustu öld og tónlist frá þeim tíma hljómar jafnt utan dyra sem innan. Starfsmenn verða prúðbúnir og fornbílar verða til sýnis og skrauts við stöðina.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert