Rauði kross Íslands og utanríkisráðuneytið styrkja hjálparstarf á Srí Lanka

Fólk í flóttamannabúðum á Sri Lanka. stækka

Fólk í flóttamannabúðum á Sri Lanka. Reuters

Rauði kross Íslands veitti í dag fimm milljónir króna til hjálparstarfs meðal flóttamanna á Sri Lanka, sem nú hafast við í flóttamannabúðum við afar slæman kost. Féð bætist við fimm milljónir króna sem utanríkisráðuneytið hafði þegar ákveðið að veita í gegnum Rauða krossinn. Framlagið frá Íslandi nemur því tíu milljónum króna.

Framlagið rennur óskipt til hjálparstarfsins á norðurhluta eyjarinnar, skv. tilkynningu frá Rauða krossinum. „Þar ríkir nú gríðarleg neyð meðal almennra borgara sem þurft hafa að yfirgefa heimili sín vegna vopnaðra átaka á svæðinu, sem nú eru yfirstaðin. Nístandi þörf er fyrir matvæli, vatn og læknishjálp í yfirfullum flóttamannabúðum,“ segir í tilkynningunni.

Rauði kross Íslands hefur um árabil veitt aðstoð á Sri Lanka, einkum í kjölfar hamfaraflóðbylgjunnar sem reið yfir strandsvæði eyjarinnar í desember 2004.

Mikilvægustu þarfir flóttafólksins

Rúmlega 250.000 manns hafa flosnað upp af heimilum sínum í norðurhluta landsins og hafast nú við í flóttamannabúðum. Tugir þúsunda flóttamanna voru í sjálfheldu á mjórri ræmu meðfram ströndinni í norðausturhluta landsins á meðan bardagar stóðu yfir og þessi hópur hefur mestu þörfina fyrir aðstoð.

Aðgerðir Rauða krossins á undanförnum dögum

Alþjóða Rauði krossinn leggur áherslu á að skrá alla þá sem færðir eru í fangabúðir á vegum stjórnvalda. Þannig má fylgjast með því að fangar úr röðum Tamíl tigranna fái mannúðlega meðferð.

Á undanförnum dögum hefur Rauði krossinn fengið aðgang að svæðum sem áður voru lokuð vegna átakanna. Þar hefur verið dreift búsáhöldum, fötum og hreinlætisvörum til þúsunda fjölskyldna sem hafast við í flóttamannabúðum. Mannúðarstofnanir anna hins vegar ekki brýnustu þörfum fólksins og því hvetur Rauði krossinn yfirvöld á Srí Lanka til að gera allt sem í þeirra valdi stendur til að hjálpa flóttamönnum og leyfa mannúðarstöfnunum að starfa þar sem þeirra er þörf.

Fangaheimsóknir og sameining fjölskyldna

Frá árinu 1989 hefur Alþjóða Rauða krossinum verið veittur aðgangur að föngum í haldi yfirvalda. Sendifulltrúar fylgjast með því að þeir sem teknir hafa verið fanga í átökunum fái mannúðlega meðferð og eiga samskipti og samstarf við yfirvöld um nauðsynlegar úrbætur. Í maí töluðu sendifulltrúar við um það bið 2.500 Tamíl tigra sem haldið er föngnum. Rauði krossinn heimsótti einnig fanga úr röðum stjórnarhers Srí Lanka sem voru í haldi uppreisnarmanna.

Á hverju ári aðstoðar Rauði krossinn hundruð þúsunda fjölskyldna við að endurheimta samband sitt við ástvini sína eða afla með öðrum hætti upplýsinga um afdrif þeirra. Mikil þörf er á því fyrir flóttafólkið að láta ástvini annars staðar í landinu vita um afdrif sín og hefur Rauði krossinn boðið fram aðstoð sína í því sambandi.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Velta á fasteignamarkaði frá janúar til febrúar í ár var 46,335 milljarðar kr. en var ...

Lántakendur varaðir við

05:30 Grípi Seðlabankinn til þess ráðs að hækka vexti frekar gæti það haft veruleg áhrif á mánaðarlega greiðslubyrði af óverðtryggðum fasteignalánum. Meira »
Rússnesk skip umskipa afla í Hafnarfjarðarhöfn eftir veiðar á Reykjaneshrygg.

Athugasemdir við Rússa

05:30 Íslensk stjórnvöld hafa komið alvarlegum athugasemdum á framfæri við sendiherra Rússlands á Íslandi vegna karfaveiða Rússa á Reykjaneshrygg. Meira »

Flugfarþegi lak plötu á netið

Umslag plötunnar Valtari.
05:30 Áttunda og nýjasta plata Sigur Rósar, Valtari , kom út í gær en hún er fyrsta breiðskífa sveitarinnar frá því Með suð í eyrum við spilum endalaust kom út fyrir fjórum árum. Meira »

Störfum í bönkum fækkað um 2.000

Friðbert Traustason. Formaður Sambands íslenskra bankamanna .
05:30 Störfum hjá fjármálafyrirtækjum hefur fækkað um 2.000 frá því vorið 2008. Útibúum bankanna hefur fækkað um helming á sama tíma. „Þetta hefur verið hreint hörmungarástand,“ segir Friðbert Traustason, formaður Samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja. Meira »

Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi

04:53 Sunnan- og suðvestanátt verður á landinu í dag, yfirleitt 5-15 m/s, hvassast norðan- og vestanlands. Rigning við Breiðafjörð og á Vestfjörðum, léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi, en skýjað og súld með köflum syðra. Meira »

Kostnaður við komu 4 milljónir

Wen Jiabao og Jóhanna Sigurðardóttir á Geysi
05:30 Ekki hefur verið sótt um aukafjárveitingu vegna kostnaðar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu við heimsókn kínverska forsætisráðherrans Wens Jiabaos. Meira »

Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi

Með batnandi veðri gefst færi til útileikja.
05:30 Vel lítur út með veður víðast hvar á landinu um hvítasunnuhelgina. Reyndar má búast við að rigni á Vestfjörðum í dag, en svo stytti upp og víða verði sólríkt. Hitastig hefur stigið verulega síðustu daga og í dag er búist við að hiti klifri yfir 20 stig á norðaustanverðu landinu. Meira »

Segir stuðning við Kanadadollar

Kanadadollari. Úr myndasafni.
Í gær, 22:15 „Þetta er rætt í alvöru á Íslandi. Efnahagsráðherrann fór til Kanada fyrir sex vikum og fundaði með kanadíska seðlabankanum og með þingmönnum og að ég tel fjármálaráðuneytinu líka. Hann kom síðan aftur til Íslands og sagði opinberlega að þetta væri möguleiki sem væri ekki hægt að útiloka.“ Meira »

Brotist inn meðan íbúar skruppu frá

Í gær, 21:09 Tilkynnt var um innbrot í heimahús í Grafarvogi klukkan sjö í kvöld og söknuðu húsráðendur sjónvarps og ýmissa raftækja. Þeir brugðu sér af bæ í rúma klukkustund og þegar þeir komu heim var búið að brjóta rúðu og komust þjófarnir þannig inn. Meira »

Meintar falsanir til lögreglunnar

Ástþór Magnússon, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 19:39 Tekin var ákvörðun um það í dag af yfirkjörstjórnum í Reykjavík að vísa meintum fölsunum á undirskriftum á meðmælendalistum Ástþórs Magnússonar, forsetaframbjóðanda, til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Meira »

Stefnan áframhaldandi lágt gengi

Einar K. Guðfinnsson, alþingismaður.
Í gær, 20:11 „Það er alveg ljóst mál að þetta kosningaplagg ríkisstjórnarinnar sem kallað hefur verið framkvæmdaáætlun er byggð á þeirri forsendu að gengi íslensku krónunnar haldist álíka veikt og það er í dag,“ segir Einar Kr. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, í samtali við mbl.is. Meira »

Tryggja að allir komist heilir heim

Í gær, 18:59 Haldið verður úti auknu umferðareftirliti í sumar á Vesturlandsvegi, Suðurlandsvegi og Reykjanesbraut af hálfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í samvinnu við embætti ríkislögreglustjóra. Meira »

Gæsluvarðhaldið staðfest

Í gær, 18:29 Hæstiréttur hefur staðfest gæsluvarðhaldsúrskurð yfir tveimur karlmönnum sem grunaðir eru um að hafa valdið dauða samfanga síns í fangelsinu á Litla-Hrauni fyrir rúmri viku. Héraðsdómur hafði áður úrskurðað mennina í gæsluvarðhald til 13. júní. Meira »

Húsbíll fauk af vegi

Í gær, 18:09 Húsbíll fauk í Fljótum, skammt frá Ketilási um hádegisbilið í dag. Tvennt var í bílnum og voru þau flutt á heilsugæsluna á Siglufirði til aðhlynningar. Meira »

Yfirheyrslur héldu áfram í dag

Fangelsið á Litla-Hrauni.
Í gær, 18:00 Yfirheyrslur vegna láts fanga á Litla-Hrauni, sem talið er hafa borið að með sviplegum hætti, héldu áfram í dag og var nokkur fjöldi vitna yfirheyrður, þar á meðal fólk sem tengist fangelsinu. Meira »

Fundur Háskólalestarinnar fellur niður

Frá Ísafirði. Úr myndasafni.
Í gær, 18:22 Fram kemur í tilkynningu frá Háskólalestinni að fyrirlestur um forsetaframboðið sem fara átti fram á Ísafirði í kvöld klukkan 20:00 falli niður vegna þess að öllu flugi frá Reykjavíkur til Ísafjarðar í dag hafi verið aflýst. Meira »

Ólafur mælist með mest fylgi

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands.
Í gær, 18:09 Mikill viðsnúningur hefur orðið í fylgi við forsetaframbjóðendurna Ólaf Ragnar Grímsson og Þóru Arnórsdóttur ef marka niðurstöður nýrrar skoðanakönnunar Capacent Gallup sem greint var frá í fréttum Ríkisútvarpsins. Meira »

Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð

Í gær, 17:49 Talsvert magn af fíkniefnum fannst við húsleit lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í kjallaraíbúð í miðborginni í gær.   Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Til leigu
Til leigu í sumar 3 herbergja íbúð í Grafarvogi GSM 8940458...
Veglegur kaupauki með Herbalife
Er með 3 pakka með MJÖG veglegum kaupauka. Startpakka á 13.800 kr., Brennslupak...
Tjaldvagnaleiga
www.123.is/tjaldvagnaleiga...
SÖLUSKOÐUN
Söluskoðanir bifreiða. Ertu að kaupa bíl? Láttu fagmenn greina ástand hans áður ...
 
Aðalfundur alliance

Aðalfundur 2012 Aðalfundur Alliance...
Auglýsing byggðakvóti

Auglýsing vegna úthlutunar byggðakvó...
Sýslumaðurinn á selfosi - framhald uppboðs

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....
Sýslumaðurinn í hafnarfirði - framhald uppboð

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....