Tók lögin í eigin hendur
„Þeir snertu ekki strákinn," segir tvítugur karlmaður, sem lét vini sína endurheimta bifreið sem 16 ára piltur hafði keypt af honum. Eigandi bílsins segist ítrekað hafa reynt að láta kaupin ganga til baka eftir að í ljós kom að kaupandinn hafi hvorki haft aldur til að eiga slíkan bíl né aka honum.
Fram kom á mbl.is í morgun að kært hafi verið til lögreglu að BMW-bíl hafi verið stolið í Kópavogi í nótt, eigandanum hent út úr bílnum og bíllinn síðan tekinn traustataki. Sagði lögregla að málið yrði rannsakað sem bílrán.
Maður, sem segist vera skráður eigandi bílsins, segir aðra sögu af málsatvikum. Hann sagðist hafa uppgötvað að pilturinn hafði ekki aldur til að eiga bíl þegar hann ætlaði að skrá eigendaskiptin fyrir nokkrum mánuðum. Ekki tókst honum að hafa upp kaupandanum í kjölfarið og segir að þegar rukkanir fóru að berast fyrir hinum ýmsu gjöldum og sektum, sem hlóðust upp á bílinn í hans nafni, hafi vinir hans boðist til að mæla sér mót við handhafa bílsins og endurheimta hann.
„Hefur ekki upp á sig að tala við lögregluna"
En datt þeim ekki í hug að láta lögregluna annast málið? „Ég hef talað við lögregluna í svona máli og þeir gera ekki neitt ef maður tilkynnir bíl stolinn. Það var stolið bíl af félaga mínum og hann er ekki fundinn enn. Ég vissi að það myndi ekki hafa neitt upp á sig," sagði bíleigandinn, sem vildi ekki að nafn hans kæmi fram.
Óttast hann ekki að drengurinn reyni sömu aðferð við að ná bílnum aftur? „Nei, bíllinn er á góðum stað, hann finnur hann ekki," sagði maðurinn og bætti við, að hann hygðist selja bílinn aftur ef hann fengi ekki þessar skuldir borgaðar.
„Svona gera menn ekki"
Málið er rannsakað sem rán hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. „Við erum með 17 ára dreng og föður hans hér í yfirheyrslu vegna þessa máls," sagði Gylfi Sigurðsson aðalvarðstjóri á lögreglustöð 3 á höfuðborgarsvæðinu.
Var ólögmætt að endurheimta bílinn með þessum hætti? „Já, það eru einhverjar deilur þarna í gangi og ljóst er að svona gera menn ekki, það má ekki hirða af fólki það sem þeir hafa selt," sagði Gylfi.
Innlent »
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 19. nóvember 2008, Innlent Grái Golfinn fannst í Borgarnesi
- Fimmtudagur, 4. júní 2009, Innlent Audi-bíllinn fundinn
- Þriðjudagur, 30. mars 2010, Innlent Ákvörðun S&P í samræmi við væntingar
- Mánudagur, 10. ágúst 2009, Innlent Fartölvu stolið úr bíl
- Fimmtudagur, 24. júlí 2008, Innlent Hótaði lögreglumanni barsmíðum
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli



































