Óku á vegrið og gengu burt

Ekið var á vegrið á umferðareyju þar sem Hringbraut og Miklabraut mætast um klukkan hálf tvö í nótt. Tvennt var í bílnum og höfðu þau yfirgefið vettvang er lögregla kom á staðinn.

Fólkið fannst um klukkan þrjú og hefur annað þeirra viðurkennt að hafa ekið bílnum. Talið er að um hraðakstur hafi verið að ræða og að fólkið hafi verið undir áhrifum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert