Stærsta svikamál frá stríðinu
Business.dk fjallar ítarlega um efnahagshrunið á Íslandi og hvernig Jón Ásgeir Jóhannesson er þar í forgrunni. Ómar Óskarsson
Þótt ekki nema tíundi hluti ásakana á hendur útrásarvíkingum Íslands standist, er sennilega um að ræða stærsta svikamál Evrópu frá seinni heimstyrjöld. Þetta segir í grein, sem hefur yfirskriftina „Leitin að milljörðum útrásarvíkinganna" og birtist í vefútgáfu viðskiptablaðs Berlingske Tidende í dag, Business.dk.
Í greininni er rakið hvernig rannsókn á efnahagshruninu á Íslandi sé hafin og að erlendir sérfræðingar hafi verið fengnir hingað til lands. M.a. hafi Glitnir ráðið til sín erlenda einkaspæjarafyrirtækið Kroll sem m.a. er þekkt fyrir að hafa grafið upp fúlgur fjár sem einræðisherrar á borð við Saddam Hussein, Baby Doc og Ferdinand og Imelda Marcos höfðu komið undan. Verkefni fyrirtækisins nú sé að rannsaka hvort eitthvað hafi verið athugavert við útlán Glitnis og reyna að endurheimta eitthvað af fénu.
Segir í greininni að sem stendur séu margar rannsóknir í gangi samhliða á málum tengdum þekktu banka- og viðskiptafólki á Íslandi, sem stýrði fyrirtækjum í eigu útrásarvíkingsins Jóns Ásgeirs Jóhannessonar.
„Umfangið, kerfisbundin svik og grunur um mögulegt ólöglegt athæfi þar sem skuggamenn, umboðssvik, leynileg og ólögleg hlutabréfalán og ólögleg áhrif á markaði eru í forgrunni sem og fjárhæðir, sem eru geymdar í skattaskjólum, taka engan endi. Enn eru aðeins stöku mál nokkurn veginn upplýst."
Blaðið reifar málefni flugfélagsins Sterling í þessu sambandi og hvernig það tengist FL Group. Málið sé ekki eina dæmið um viðskipti þar sem fyrirtæki Jóns Ásgeirs á hlutabréfamarkaði gerðu óvenjulega lélega samninga en Jón Ásgeir sjálfur eða einhver í hans nánasta hring græddi stórfellt.
Málefni Stíms sé annað dæmi, þar sem eina hlutverk félagsins var að kaupa hlutabréf fyrir peninga sem það fékk að láni hjá Glitni.
Þá er í greininni haft eftir Gylfa Magnússyni viðskiptaráðherra að efnahagshruninu á Íslandi megi líkja við Enronhneykslið í Bandaríkjunum. Það hefði verið staðhæft að íslenskir bankar hefðu búið til frábært viðskiptamódel sem gæti skýrt hvernig bankarnir uxu hraðar og sýndu meiri hagnað en nokkrir aðrir. En sú hafi auðvitað ekki verið raunin.
Niðurstaða greinarhöfundar er að samlíkingin við Enron sé nærtæk. „Það færir okkur aftur til spurningarinnar um hvað einkaspæjarafyrirtæki, sem venjulega eltist við fjársjóði einræðisherra, er að gera í norrænum banka? Einkaspæjararnir eru þar sennilega vegna þess að það er þörf fyrir þá."
Bloggað um fréttina
-
Kristján G. Arngrímsson Til Nurnberg -
Heimir Hilmarsson Fáum Davíð aftur! -
Morten Lange Rannsókn á fjárglæframenn vekur vonir -
-
Jenný Anna Baldursdóttir Af hverju? -
Guðmundur Andri Skúlason Þið... íslensku "Blaðamenn" !! -
Brosveitan - Pétur Reynisson Hrikaleg bíómyndin er á leiðinni... "The Inconveniant Truth" fjallar um ... -
Björn Finnbogason Danskan -tunga réttlætis á Íslandi!!! -
Baldvin Björgvinsson Europol - Interpol -
-
Sigurður Þór Guðjónsson Fjársvik og flugvélabrak -
Jóna Kolbrún Garðarsdóttir Hvernig væri að fyrirbyggja að svona geti komið fyrir aftur. -
Ólafur Gíslason Öfund! -
Björg F VÉR MÓTMÆLUM ÖLL !! -
Páll Vilhjálmsson Og Baugsfylkingin í ríkisstjórn -
Andri Geir Arinbjarnarson Svartur sauður Norðurlandanna
Innlent »
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
Svipaðar fréttir
- Laugardagur, 9. maí 2009, Innlent Neikvæðar horfur hjá Landsvirkjun að mati S&P
- Laugardagur, 2. maí 2009, Innlent Amma á Facebook
- Þriðjudagur, 30. mars 2010, Innlent Ákvörðun S&P í samræmi við væntingar
- Þriðjudagur, 8. júní 2010, Innlent Launakröfur Kaupþingsstjóra fyrir dóm
- Laugardagur, 5. september 2009, Innlent Krefst heiðarleika af hálfu stjórnvalda
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli



































