Sviptingar í Grindavík
Bæjarfulltrúarnir Björn Haraldsson, bæjarfulltrúi Frjálslynda flokksins og Garðar Páll Vignisson, annar af tveimur bæjarfulltrúum Samfylkingarinnar í Grindavík, hafa sent frá sér sameiginlega yfirlýsingu þar sem fram kemur að þeir hafi báðir ákveðið að ganga til liðs við Vinstrihreyfinguna - grænt framboð (VG).
Björn sagði í samtali við blaðamann mbl.is í dag að honum hafi fundist hann hálf munaðarlaus eftir að Frjálslyndi flokkurinn lognaðist út af. Hann hafi því átt viðræður við bæði Samfylkinguna og Vinstri græna um framhaldið og þær hafi þróast með þeim hætti, að bæði hann og Garðar Páll hafi ákveðið að ganga til liðs við Vinstri græna.
Björn sagðist ætla að verja meirihlutasamstarf Samfylkingar og Framsóknarflokks út kjörtímabilið og gera ráð fyrir að Garðar Páll geri það líka. „Það hefur gengið á ýmsu og meirihlutasamstarfið hefur þegar sprungið einu sinni þannig að okkur finnst ekki réttlætanlegt að hringla meira með það,” sagði hann.
„Það liggja ólíkar forsendur að baki þessum ákvörðunum okkar. Garðar Páll hefur átt erfitt eftir að hann fékk ekki skólastjórastöðu sem hann sóttist eftir. Hann er laskaður eftir það og ég geri ráð fyrir að það spili inn í ákvörðun hans. Hvað mig varðar þá lít ég fyrst og fremst til sjávarútvegsmála. Mér finnst Vinstri grænir einna helst hafa tekið þar upp stefnu sem ég geti unnið að og verið sáttur við."
Yfirlýsingi Björns og Garðars fer hér á eftir:
„Bæjarfulltrúarnir Björn Haraldsson og Garðar Páll Vignisson tilkynna hér með að þeir hafa ákveðið að ganga til liðs við Vinstrihreyfinguna - grænt framboð (VG).
Þegar þessi ákvörðun er tekin teljum við hagsmunum Grindavíkur best borgið með þessum hætti. Það er okkar trú að framtíð ýmissa aðkallandi verkefna séu best tryggð með aðkomu VG. Hér er meðal annars verið að vísa til atvinnuuppbyggingar og að möstrin í nágrenni bæjarins fari burt en þau eru leifar frá veru hersins á Íslandi. Menntaskólinn í Grindavík verði að veruleika og lönd í eigu ríkisins í lögsögu Grindavíkur verði í eigu Grindavíkurbæjar."Innlent »
- Fyrst til að verða meistari í bílasmíði
- Átta umferðarslys á tíu dögum í og við Búðardal
- Þriðja árið í röð í 19. - 20. sæti
- Flestir hlynntir staðgöngumæðrun
- Catalina er í fullu fjöri
- Skjaldborg í skjóli fjalla
- Fisvél brotlenti við Klaustur
- Náttúru, sögu og nytjum gerð skil
- Þóra opnar skrifstofu
- Veðrið leikur við landsmenn
- Lettneska konan enn ófundin
- Við akstur undir áhrifum kannabis
- Gleymdist að slökkva á eldavélinni
- Fjölmennasti hópurinn frá upphafi
- Voru frelsinu fegnar
- Margir sóla sig í sundi í dag
- „Svona sending er ný reynsla“
- „Ég reyni að lifa lífinu til fulls“
- „Lögmál útrásarinnar lifa enn góðu lífi“
- Par villtist á leiðinni í Þórsmörk
- 65 brautskráðir á Sauðárkróki
- „Þú ert númer 44 í röðinni“
- Vatn flæddi yfir veginn
- Bilun í netkerfi Símans
- Krefjast þess að bankinn endurskoði áform sín
- Vissu ekki hver hefði ekið
Laugardagur, 26.5.2012
- Íslenska lagið fékk 46 stig
- Svíar unnu Evróvisjón 2012
- Manni bjargað úr Ölfusá
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
Svipaðar fréttir
- Þriðjudagur, 16. júní 2009, Innlent Nýr forseti bæjarstjórnar í Grindavík
- Mánudagur, 8. júní 2009, Innlent „Meirihlutinn hefur verið lemstraður"
- Sunnudagur, 6. desember 2009, Innlent Nýr meirihluti í Grindavík
- Föstudagur, 4. desember 2009, Innlent Meirihlutinn sprunginn í Grindavík
- Fimmtudagur, 3. desember 2009, Innlent Nýr meirihluti í pípunum?
-
Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju

































