„Horfurnar eru ekki bjartar“
Eftir Jón Pétur Jónsson„Horfurnar eru ekki bjartar,“ segir Ingólfur Birgir Sigurgeirsson, sem á sæti í stjórn Lánasjóðs íslenskra námsmanna fyrir hönd Stúdentaráðs Háskóla Íslands, þegar hann var spurður út í úthlutunarmál sjóðsins fyrir næsta ár. Stúdentar boða til samstöðufundar á Austurvelli á fimmtudag.
„Við [í stjórn LÍN] erum að funda þessa dagana og reiknum með að klára þetta ferli á næstu dögum,“ segir Ingólfur og bætir við að fulltrúar stúdenta í stjórn LÍN eigi fund með menntamálaráðherra kl. 16 í dag. Þar verður farið yfir stöðuna.
Námsmenn fara fram á að upphæðir framfærslulána verði hækkaðar töluvert. „Það var hægt að hækka atvinnuleysisbæturnar í nóvember, held ég. Okkur finnst óeðlilegt að það skuli ekki vera hægt að hækka námsmenn - allavega nær því og helst í samræmi við það,“ segir hann og bætir við að lágmarkskrafan sé sú að lánin haldi í við verðbólguna. Lánin þurfa því að hækka um þriðjung eigi það að takast.
Ingólfur segist vera bundinn trúnaði og því geti hann ekki gefið nánari upplýsingar um stöðu mála sem stendur.
Hann segir að verði ekki brugðist við kröfum stúdenta þá setji hann spurningarmerki við það hvort sjóðurinn sé að uppfylla lagalegt gildi sitt. „Fólk þarf að geta framfleytt sér á þessum lánum,“ segir Ingólfur og bendir á að markmið sjóðsins sé að „tryggja þeim sem falla undir lögin um sjóðinn tækifæri til náms án tillits til efnahags.“
Mótmæla á Austurvelli
„Við erum í samstarfi við hinar námsmannahreyfingarnar og ætlum að standa fyrir samstöðufundi námsmanna, eins og við köllum það, á fimmtudaginn,“ segir Hildur Björnsdóttir, formaður SHÍ. Hún segir að námsmenn ætli að safnast saman á Austurvelli kl. 16 þegar stjórn LÍN muni koma saman til að afgreiða samkomulagið.
„Þar ætlum við að reyna hóa saman öllum námsmönnum saman og mótmæla þeim samningum sem við búumst við að fá,“ segir Hildur og bætir við að námsmenn sjái fram á engar hækkanir heldur verði kjör þeirra skert.
„Ég held að fólk sé aðeins bjartsýnna en það megi raunverulega vera miðað við útlitið í dag. Ég held að mönnum verði mjög brugðið þegar í ljós kemur að það verða engar hækkanir og í raun bara skerðingar. Miðað við verðlagið í landinu í dag þá er þetta náttúrulega bara hrikalegt. Ég veit eiginlega ekki hvernig við eigum að ná endum saman,“ segir Hildur sem hvetur sem flesta til að mæta á samstöðufundinn á fimmtudag.





































