„Fullkomin óvissa um Icesave-samninginn"

Einar Kr. Guðfinnsson. stækka

Einar Kr. Guðfinnsson. Þorkell

Einar K. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks, segir á heimasíðu sinni í dag að staða Icesave-samningsins við Breta og Hollendinga sé mun alvarlegri en nokkurn gat órað fyrir. Fullkomin óvissa virðist ríkja um hvort samningurinn verði yfir höfuð staðfestur á Alþingi.

Einar sagði á heimasíðu sinni í gær, að engin vafi léki á að samningurinn hlyti staðfestingu þings og forseta Íslands. Segist hann bókstaflega hafa gengið út frá því, að forystumenn ríkisstjórnarflokkanna hefðu gengið úr skugga um það að samningurinn nyti stuðnings meirihluta Alþingis áður en hann var undirritaður.

Nú sé það fullkomlega óvíst. „Ég spurði nefnilega Guðfríði Lilju Grétarsdóttur, formann þingsflokks Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs í gær á Alþingi um þetta í gær á Alþingi. Svarið var áhugavert. Meirihluti þingflokksins styður málið. Ekkert um það hvort málið nyti nægjanlegs stuðnings á Alþingi. Því hefur enn ekki verið svarað.

Þessi stóri samningur; fjárskuldbinding um heila 650 milljarða er í hífandi óvissu. Það liggur ekki fyrir hvort ríkisstjórnin geti fullnustað samning sem hún hefur gert.

Það dugir auðvitað ekki að vísa til þess að málið sé í höndum Alþingis að lokum. Málið var unnið á forræði ríkisstjórnarinnar og er á hennar ábyrgð. Samninganefndin var skipuð af ráðherrunum. Stjórnarandstaðan var ekki kölluð til. Eftir hennar stuðningi hefur ekki verið leitað.

Gleymum því ekki að það er búið að undirskrifa samninginn. Í svona máli ber ríkisstjórn að ganga úr skugga um stuðning við hann. Það er forkastanlegt að ekki sé full vissa um stöðu málsins; máls af þessari stærðargráðu. Hér er enn eitt málið á ferðinni þar sem ríkisstjórnin er á furðulegri ferð," segir Einar.

Fram kom á mbl.is í gær, að Guðfríður Lilja, Lilja Mósesdóttir og Ögmundur Jónasson greiddu atkvæði gegn því á þingflokksfundi VG á föstudag, að ríkisstjórnin fengi umboð til að ganga frá Icesave-samningunum eins og þeir lágu þá fyrir.

Heimasíða Einars K. Guðfinnssonar

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent »

Kanadadollari. Úr myndasafni.

Segir stuðning við Kanadadollar

Í gær, 22:15 „Þetta er rætt í alvöru á Íslandi. Efnahagsráðherrann fór til Kanada fyrir sex vikum og fundaði með kanadíska seðlabankanum og með þingmönnum og að ég tel fjármálaráðuneytinu líka. Hann kom síðan aftur til Íslands og sagði opinberlega að þetta væri möguleiki sem væri ekki hægt að útiloka.“ Meira »

Brotist inn meðan íbúar skruppu frá

Í gær, 21:09 Tilkynnt var um innbrot í heimahús í Grafarvogi klukkan sjö í kvöld og söknuðu húsráðendur sjónvarps og ýmissa raftækja. Þeir brugðu sér af bæ í rúma klukkustund og þegar þeir komu heim var búið að brjóta rúðu og komust þjófarnir þannig inn. Meira »

Stefnan áframhaldandi lágt gengi

Einar K. Guðfinnsson, alþingismaður.
Í gær, 20:11 „Það er alveg ljóst mál að þetta kosningaplagg ríkisstjórnarinnar sem kallað hefur verið framkvæmdaáætlun er byggð á þeirri forsendu að gengi íslensku krónunnar haldist álíka veikt og það er í dag,“ segir Einar Kr. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, í samtali við mbl.is. Meira »

Tryggja að allir komist heilir heim

Í gær, 18:59 Haldið verður úti auknu umferðareftirliti í sumar á Vesturlandsvegi, Suðurlandsvegi og Reykjanesbraut af hálfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í samvinnu við embætti ríkislögreglustjóra. Meira »

Fundur Háskólalestarinnar fellur niður

Frá Ísafirði. Úr myndasafni.
Í gær, 18:22 Fram kemur í tilkynningu frá Háskólalestinni að fyrirlestur um forsetaframboðið sem fara átti fram á Ísafirði í kvöld klukkan 20:00 falli niður vegna þess að öllu flugi frá Reykjavíkur til Ísafjarðar í dag hafi verið aflýst. Meira »

Meintar falsanir til lögreglunnar

Ástþór Magnússon, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 19:39 Tekin var ákvörðun um það í dag af yfirkjörstjórnum í Reykjavík að vísa meintum fölsunum á undirskriftum á meðmælendalistum Ástþórs Magnússonar, forsetaframbjóðanda, til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Meira »

Gæsluvarðhaldið staðfest

Í gær, 18:29 Hæstiréttur hefur staðfest gæsluvarðhaldsúrskurð yfir tveimur karlmönnum sem grunaðir eru um að hafa valdið dauða samfanga síns í fangelsinu á Litla-Hrauni fyrir rúmri viku. Héraðsdómur hafði áður úrskurðað mennina í gæsluvarðhald til 13. júní. Meira »

Húsbíll fauk af vegi

Í gær, 18:09 Húsbíll fauk í Fljótum, skammt frá Ketilási um hádegisbilið í dag. Tvennt var í bílnum og voru þau flutt á heilsugæsluna á Siglufirði til aðhlynningar. Meira »

Ólafur mælist með mest fylgi

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands.
Í gær, 18:09 Mikill viðsnúningur hefur orðið í fylgi við forsetaframbjóðendurna Ólaf Ragnar Grímsson og Þóru Arnórsdóttur ef marka niðurstöður nýrrar skoðanakönnunar Capacent Gallup sem greint var frá í fréttum Ríkisútvarpsins. Meira »

Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð

Í gær, 17:49 Talsvert magn af fíkniefnum fannst við húsleit lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í kjallaraíbúð í miðborginni í gær.   Meira »

Yfirheyrslur héldu áfram í dag

Fangelsið á Litla-Hrauni.
Í gær, 18:00 Yfirheyrslur vegna láts fanga á Litla-Hrauni, sem talið er hafa borið að með sviplegum hætti, héldu áfram í dag og var nokkur fjöldi vitna yfirheyrður, þar á meðal fólk sem tengist fangelsinu. Meira »

Bátur fauk á annan bát

Hvasst hefur verið á Suðurnesjunum í dag.
Í gær, 17:49 Afar hvasst hefur verið á Suðurnesjunum í allan dag og í morgun fauk bátur á annan bát í Grindavíkurhöfn.  Meira »

Harður árekstur í Engidal

Í gær, 17:42 Harður árekstur tveggja fólksbíla varð í Engidal í Hafnarfirði, til móts við hús Actavis, skömmu eftir klukkan hálf sex í kvöld. Annar bílinn valt á hliðina við áreksturinn. Meira »

Fylgjast þarf með Krýsuvík

Frá Krýsuvík.
Í gær, 17:01 Sprungugos í norðurhluta þess sprungukerfis, sem liggur frá megineldstöðinni í Krýsuvík, geta hugsanlega komið upp í Heiðmörk eða í grennd við Elliðavatn og því er full ástæða til að fylgjast náið með því sem gerist á Krýsuvíkursvæðinu. Meira »

Harma óvæginn fréttaflutning

Í gær, 16:49 Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur leggur ríka áherslu á að mótuð verði vöktunar- og viðbragðsáætlun vegna umhverfismála á svæðinu í grennd við Hellisheiðarvirkjun. Stjórnin harmar jafnframt óvæginn fréttaflutning um tjarnarmyndun í grennd við svæðið. Meira »

33 brotlegir ökumenn myndaðir

Í gær, 17:36 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu myndaði brot 33 ökumanna í Langarima í Reykjavík í dag en fylgst var með ökutækjum sem ekið var í suðurátt að Rósarima. Meira »

Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru

Í gær, 16:51 Fylgi Ólafs Ragnars Grímssonar og Þóru Arnórsdóttur er jafnt samkvæmt niðurstöðum nýrrar skoðanakönnunar MMR sem birtar voru í dag. Samtals sögðust 41,2% ætla að kjósa hvorn forsetaframbjóðandann. Meira »

Farinn frá Landsbankanum

Jens Garðar Helgason
Í gær, 16:12 „Ég tek ekki ákvörðun fyrir aðra, en ég stofnaði í dag reikning í Sparisjóði Norðfjarðar og ætla að flytja öll mín viðskipti frá Landsbankanum.“ Þetta segir Jens Garðar Helgason, formaður bæjarráðs í Fjarðabyggð, í samtali við mbl.is. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Múrvél
Til sölu Múrvél lítið notuð verð 700.000 kr sími 8919193...
Hvítur dvergschnauzer.
Eigum 2 yndislega rakka ólofaða úr spennandi goti undan innfluttum margföldum me...
Yaris T-Sport 2007!!!!
Ek. 64 þús. 17'' felgur. Filmur. Xenon. Nýir diskar og klossar. Eins og nýr! Mjö...
Húsbíll til sölu - Fiat, Sharky L7
2007 árgerð af Sharky L7 til sölu. Keyrður 24þ km. Vel viðhaldið og þjónustubók ...
 
Deiliskipulagstillaga á grundartanga

Deiliskipulagstillaga á Grundartang...
Sýslumaðurinn í hafnarfirði - framhald uppboð

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....
Opinn fundur
Félagsstarf
Félag sjálfstæð...
12834 stofnstígur - reykjavíkurborg

út­boð Reykja­víkur­bor­g Innka­upa­...