Hugmyndir stjórnarinnar verði birtar

Stíft hefur verið fundað í Karphúsinu síðustu daga. stækka

Stíft hefur verið fundað í Karphúsinu síðustu daga. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Viðsemjendur í Karphúsinu vilja fá nánari upplýsingar frá ríkisstjórninni um forgangsröðun aðgerða sem ráðast á í í ríkisfjármálum. Þeir vilja að ríkisstjórnin opni meira á það ferli sem í gangi er í ráðuneytum. Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, segir að ríkisstjórnin ætti að birta lista yfir hugmyndirnar á vefsíðum ráðuneytanna. 

Viðsemjendur á vinnumarkaði áttu í dag langan fund með fjárlaganefnd um fjárlagagerðina fyrir 2009 og útlitið til næstu ára. Tóku fulltrúar stjórnarandstöðunnar þátt í viðræðunum.

„Við höfum undirbúið okkur undir að sameinast í Karphúsinu um hvað okkur finnst mikilvægast og viðkvæmast,“ segir Gylfi. „Það er víða verið að búa til einhverja lista yfir hvað væri hægt að gera, án þess að það séu beinar tillögur,“ segir hann og bendir á að sumar þessara hugmynda hafi lekið til fjölmiðla þó þar sé ekki um neinar ákveðnar tillögur að ræða.

Mér finnst alveg sjálfsagt að ráðherra kynni þetta fyrir helstu hagsmunaaðilum og þeim sem þessar hugmyndir hafa áhrif á. Þarna er eingöngu sett fram hvað er verið að skoða vegna þess að menn standa frammi fyrir erfiðum ákvörðunum,“ segir Gylfi. Hann bendir á að félags- og tryggingamálaráðherra hafi kynnt viðsemjendum í Karphúsinu ákveðnar hugmyndir um hvað hægt væri að gera án þess að hann hafi gert þær að sínum tillögum.

 „Mér finnst að ríkisstjórnin eða hvert ráðuneyti ætti að vinna svona lista og það eigi einfaldlega að birta þá á heimasíðum þeirra þannig að landsmenn geti séð hvað verið er að skoða. Það er alveg ljóst að sumt er viðkvæmara en annað. Einhverjir fara því í varnarstöðu en aðalatriðið er að mér finnst nauðsynlegt að opna þetta ferli svo þjóðin fái að vita út á hvað þetta gengur, að það geti verið opnari pólitísk forgangsröðun um hvar eigi að grípa niður og hvar ekki,“ segir Gylfi.  

Hann segir að fréttir hafi borist af einstökum hugmyndum af kannski um 250 hugmyndum sem menn séu að skoða og engar tillögur verið gerðar um, eins og t.d. um sparnað hjá Fæðingarorlofssjóði. „Það er mikilvægt að menn átti sig á því að ríkisstjórnin hefur ekki sett neitt af þessu fram sem tillögur,“ segir Gylfi. Á endanum beri þó stjórnarmeirihlutinn ábyrgð á því að draga saman niðurstöður úr þessu öllu.

Fulltrúar launþegasamtakanna óskuðu eftir því á fundi í Karphúsinu í dag að fá að hitta fulltrúa fagráðuneytanna. „Við viljum fá nánari fréttir af forgangsröðun í heilbrigðismálum og menntamálum, í samgöngumálum og fleiri málum. Það er líka gott að fá að vita hvað ríkisstjórnin sér fyrir sér að gert verði í utanríkismálum, gagnvart sendiráðum o.fl.,“ segir Gylfi.

Formenn aðildarfélaga ASÍ hafa verið boðaðir til fundar á morgun til að fara yfir stöðuna í viðræðunum um stöðugleikasáttmála.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Þóra Arnórsdóttir og eiginmaður hennar, Svavar Halldórsson, með dótturina sem fæddist 18. maí sl.

Sé ekki í samkeppni við þingið

18:09 Þóra Arnórsdóttir forsetaframbjóðandi segir að forseti sem rekur eigin stjórnmálastefnu í samkeppni við þjóðkjörið þing geti ekki ræktað sitt meginhlutverk sem er að vera sameiningarafl. Meira »

Bensíngjöfin festist niðri

17:46 Bíll skemmdist þegar henni var ekið stjórnlaust inn í trjágróður við Hvassaleiti í Reykjavík um kl. 13:30 í dag.  Meira »

Kiwanismenn máluðu vitann

Kiwanismaðurinn Björn Viðar mundar rúlluna af fagmennsku.
18:08 Félagar í Kiwansiklúbbnum Skjálfanda á Húsavík notuðu veðurblíðuna í dag til að mála vitann á Húsavíkurhöfða en hann var farinn að láta á sjá. Meira »

Þröstur og Bragi jafnir

17:27 Jafntefli varð í fjórðu og síðustu skák úrslitaeinvígis Braga Þorfinnssonar (2449) og Þrastar Þórhallssonar (2424) um Íslandsmeistaratitilinn í dag en teflt var í Stúkunni við Kópavogsvelli. Meira »

Alsírsku drengirnir áfrýja

Héraðsdómur Suðurlands.
16:25 Alsírsku drengirnir sem sakfelldir voru í héraðsdómi Suðurlands fyrir að framvísa fölsuðum vegabréfum við komu til Íslands hafa áfrýjað dómnum til hæstaréttar. Héraðsdómur dæmdi þá til 30 daga fangelsisvistar þann 30. apríl síðastliðinn. Meira »

Leitarmenn kallaðir til baka

Ligitu Solomenceva
18:03 Búið er að kalla til baka þá sem leitað hafa að lettnesku konunni við Meðalfellsvatn í dag. Ekki hafa borist staðfestar fréttir af örlögum konunnar. Meira »

Stöðvaður eftir ofsaakstur

17:23 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði í dag ofsaakstur fólksbíls sem ók á miklum hraða eftir Miklubraut. Hann ók m.a. utan í bíl. Ökumaður grunaður um ölvun og vímuefnaneyslu. Meira »

Listflug við Reykjavíkurflugvöll

Á sýningunni var hægt að skoða flugvélar af öllum stærðum og gerðum.
15:54 Fjöldi fólks hefur í dag fylgst með flugvélum sýna listflug á Reykjavíkurflugvelli, en Flugmálafélags Íslands stóð fyrir flugsýningu þar sem hægt var að skoða flugvélar af öllum stærðum og gerðum. Meira »

Ákærður fyrir að stinga mann

Guðgeir Guðmundsson var úrskurðaður í gæsluvarðhald eftir árásina.
14:26 Ákæra gegn Guðgeiri Guðmundssyni, sem sakaður er að hafa 5. mars. sl. stungið tvo starfsmenn lögmannsstofnunnar Lagastoða, verður þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur á morgun. Annar mannanna særðist lífshættulega og lá í marga daga á gjörgæsludeild. Meira »

Klára kvótamálin í vikunni

Atvinnuveganefnd stefnir að því að klára umfjöllun um frumvarp um veiðigjald í vikunni.
14:05 Boðaður hefur verið fundur í atvinnuveganefnd Alþingis á morgun til að ræða um kvótafrumvörpin. Lilja Rafney Magnúsdóttir, varaformaður nefndarinnar, segir að frumvörpin verði ekki afgreidd úr nefndinni á morgun, en það verði gert síðar í vikunni. Meira »

Landsbjörg leitar enn að Ligitu

Ligitu Solomenceva
14:22 Landsbjörg leitar í dag að hinni 42 ára Ligitu Solomenceva frá Lettlandi. En til hennar hefur ekkert spurst síðan 13 maí. Hún var í sumarbústað við Meðalfellsvatn og var ein á ferð. Meira »

Hreint hjarta besta myndin

Grímur Hákonarson.
13:34 Heimildamynd Gríms Hákonarsonar Hreint hjarta var valinn besta heimildamyndin á Skjaldborg, hátíð íslenskra heimildamynda sem haldin var í sjötta sinn á Patreksfirði um helgina. Meira »

Mætti innbrotsþjófum í forstofunni

12:05 Húsráðanda í Reykjanesbæ brá töluvert þegar hann kom heim til sín aðfaranótt laugardagsins en í forstofunni mættu honum tveir bláókunnugir karlmenn. Þeir tóku báðir til fótanna og hurfu út í nóttina. Meira »

Ölvaður ökumaður reyndi að stinga af

11:08 Sautján ökumenn óku yfir leyfilegum hámarkshraða við umferðareftirlit lögreglunnar á Suðurnesjum um helgina. Ellefu gerðust brotlegir með þeim hætti á aðeins þremur klukkustundum í kringum miðnætti í gær. Meira »

Ferry heillaði í Hörpu

Bryan Ferry í grænum bjarma á tónleikunum í Hörpu í gærkvöldi.
00:43 Bryan Ferry vakti stormandi lukku þegar hann kom fram í Hörpu í gærkvöldi. Ferry lék mörg af sínum þekktustu lögum, jafnt frá sólóferli sínum sem af plötum sínum með hljómsveitinni Roxy Music. Ferry kemur aftur fram í Hörpu í kvöld. Meira »

Veðurblíða víða um land

Búast má við fjölda fólks í sundi í dag.
11:35 Hiti fer allt upp í 20 gráður á Norðurlandi í dag en að sögn veðurfræðings hjá Veðurstofu Íslands verður mjög gott veður um allt land í dag og næstu daga. Meira »

Kosningamiðstöð Þóru opnuð

Þóra Arnórsdóttir.
10:48 Kosningamiðstöð forsetaframboðs Þóru Arnórsdóttur verður opnuð í gömlu Heilsuverndarstöðinni við Barónsstíg í dag.   Meira »

Peningar ekki rót alls ills myndskeið

Peningar ekki rót alls ills
Í gær, 21:46 Framhaldsskólanemar eyða almennt mestum pening í mat, áfengi og bensín. Þeim gengur misvel að spara og fæstir hafa fengið nokkra fjármálafræðslu, en finnst þörf á því. Þetta kom í ljós þegar mbl.is spjallaði við ungmenni um fjármálalæsi, en í því hafa Íslendingar ítrekað fengið falleinkunn. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
TIL SÖLU ROCKWOOD 1904 ÁRGERÐ 2008 10 FE
Til sölu Rockwood 1904, árgerð 2008, 10 fet. Ýmis aukab...
Bayliner Trophy 5.6m uppl. 861-8050
Bayliner Trophy stöðugur og flottur bátur. báturinn selst með kerru og án mótors...
Landskiki óskast
Óska eftir 2-20 ha landskika við sjó,á eða vatn með leyfi fyrir 2 heilsárshús í ...
ORLOFSÍBÚÐIR
Orlofsíbúðir - Hótel Sandafell Njótið n...
 
12836 fellahverfi - útboð

út­boð Reykja­víkur­bor­g Innka­upa­...
Samkoma
Félagsstarf
Safnaðarheimilið Grens...
Aðstoðarskólastjóri
Leikskólakennsla
Aðstoðarskólastj...
Skólastjóri hrafnatilsskóla
Sérfræðistörf
Mynd af auglýsingu ...