LÍN aðhefst ekki vegna viðskipta við Frjálsa miðlun

stækka

mbl.is/Golli

Stjórn Lánasjóðs íslenskra námsmanna ætlar ekki að aðhafast frekar vegna viðskipta, sem sjóðurinn átti við Frjálsa miðlun, fyrirtæki dóttur Gunnars Birgissonar, þegar Gunnar var stjórnarformaður  sjóðsins.

Ríkisendurskoðun hefur farið yfir viðskipti LÍN við Frjálsa miðlun og kemur fram í skýrslu, sem lögð var fram á stjórnarfundi í dag, að á tímabilinu 1992-1998 námi viðskipti LÍN við fyrirtækið 11,3 milljónum króna. Lagðir voru fram 40 reikningar vegna verka.

Niðurstaða könnunar Ríkisendurskoðunar er, að það sem reikningarnir sýni hafi Frjáls miðlun raunverulega unnið fyrir Lánasjóðinn. Þar sem ekki virðist hafa verið leitað verðtilboða áður en Frjáls miðlun tók verkefnin að sér sé ekki hægt að fullyrða hvort hægt hefði verið að fá þessa þjónustu á hagstæðari kjörum. 

Ríkisendurskoðun vísar í endurskoðunarskýrslu sína um sjóðinn vegna ársins 1997 þar sem talin var ástæða til að gera athugasemd við viðskiptin við Frjálsa miðlun. Athugasemdin var eftirfarandi.

Nokkuð er um að LÍN kaupi auglýsingar í blöð ýmissa stúdentasamtaka. LÍN hefur látið Frjálsa miðlun útbúa auglýsingafilmur í hin ýmsu stúdentablöð. Á árinu 1997 lagði fyrirtækið fram reikninga vegna alls 13 auglýsinga. Nam kostnaðurinn alls tæplega 1,3 milljónum króna. Þar sem ekki er nauðsynlegt að útbúa svo margar auglýsingar, en þær voru margar hverjar nánast eins, telur Ríkisendurskoðun kostnaðinn óþarflega háan.

Í skýrslu Ríkisendurskoðunar, sem lögð var fyrir stjórn LÍN í dag, kemur fram að þáverandi framkvæmdastjóra LÍN var gefinn kostur á að tjá sig um málið. Hann sagðist ekki muna hvernig það bar að, að LÍN skipti við þetta auglýsingafyrirtæki en ekki önnur fyrirtæki enda sé langt um liðið. Hins vegar lagði hann áherslu á að stærstu viðskiptin samfara útgáfu bæklinga hefðu aðeins átt sér stað fyrstu árin en síðan hafi LÍN séð um þann þátt sjálfur.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Kanadadollari. Úr myndasafni.

Segir stuðning við Kanadadollar

Í gær, 22:15 „Þetta er rætt í alvöru á Íslandi. Efnahagsráðherrann fór til Kanada fyrir sex vikum og fundaði með kanadíska seðlabankanum og með þingmönnum og að ég tel fjármálaráðuneytinu líka. Hann kom síðan aftur til Íslands og sagði opinberlega að þetta væri möguleiki sem væri ekki hægt að útiloka.“ Meira »

Brotist inn meðan íbúar skruppu frá

Í gær, 21:09 Tilkynnt var um innbrot í heimahús í Grafarvogi klukkan sjö í kvöld og söknuðu húsráðendur sjónvarps og ýmissa raftækja. Þeir brugðu sér af bæ í rúma klukkustund og þegar þeir komu heim var búið að brjóta rúðu og komust þjófarnir þannig inn. Meira »

Stefnan áframhaldandi lágt gengi

Einar K. Guðfinnsson, alþingismaður.
Í gær, 20:11 „Það er alveg ljóst mál að þetta kosningaplagg ríkisstjórnarinnar sem kallað hefur verið framkvæmdaáætlun er byggð á þeirri forsendu að gengi íslensku krónunnar haldist álíka veikt og það er í dag,“ segir Einar Kr. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, í samtali við mbl.is. Meira »

Tryggja að allir komist heilir heim

Í gær, 18:59 Haldið verður úti auknu umferðareftirliti í sumar á Vesturlandsvegi, Suðurlandsvegi og Reykjanesbraut af hálfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í samvinnu við embætti ríkislögreglustjóra. Meira »

Fundur Háskólalestarinnar fellur niður

Frá Ísafirði. Úr myndasafni.
Í gær, 18:22 Fram kemur í tilkynningu frá Háskólalestinni að fyrirlestur um forsetaframboðið sem fara átti fram á Ísafirði í kvöld klukkan 20:00 falli niður vegna þess að öllu flugi frá Reykjavíkur til Ísafjarðar í dag hafi verið aflýst. Meira »

Meintar falsanir til lögreglunnar

Ástþór Magnússon, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 19:39 Tekin var ákvörðun um það í dag af yfirkjörstjórnum í Reykjavík að vísa meintum fölsunum á undirskriftum á meðmælendalistum Ástþórs Magnússonar, forsetaframbjóðanda, til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Meira »

Gæsluvarðhaldið staðfest

Í gær, 18:29 Hæstiréttur hefur staðfest gæsluvarðhaldsúrskurð yfir tveimur karlmönnum sem grunaðir eru um að hafa valdið dauða samfanga síns í fangelsinu á Litla-Hrauni fyrir rúmri viku. Héraðsdómur hafði áður úrskurðað mennina í gæsluvarðhald til 13. júní. Meira »

Húsbíll fauk af vegi

Í gær, 18:09 Húsbíll fauk í Fljótum, skammt frá Ketilási um hádegisbilið í dag. Tvennt var í bílnum og voru þau flutt á heilsugæsluna á Siglufirði til aðhlynningar. Meira »

Ólafur mælist með mest fylgi

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands.
Í gær, 18:09 Mikill viðsnúningur hefur orðið í fylgi við forsetaframbjóðendurna Ólaf Ragnar Grímsson og Þóru Arnórsdóttur ef marka niðurstöður nýrrar skoðanakönnunar Capacent Gallup sem greint var frá í fréttum Ríkisútvarpsins. Meira »

Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð

Í gær, 17:49 Talsvert magn af fíkniefnum fannst við húsleit lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í kjallaraíbúð í miðborginni í gær.   Meira »

Yfirheyrslur héldu áfram í dag

Fangelsið á Litla-Hrauni.
Í gær, 18:00 Yfirheyrslur vegna láts fanga á Litla-Hrauni, sem talið er hafa borið að með sviplegum hætti, héldu áfram í dag og var nokkur fjöldi vitna yfirheyrður, þar á meðal fólk sem tengist fangelsinu. Meira »

Bátur fauk á annan bát

Hvasst hefur verið á Suðurnesjunum í dag.
Í gær, 17:49 Afar hvasst hefur verið á Suðurnesjunum í allan dag og í morgun fauk bátur á annan bát í Grindavíkurhöfn.  Meira »

Harður árekstur í Engidal

Í gær, 17:42 Harður árekstur tveggja fólksbíla varð í Engidal í Hafnarfirði, til móts við hús Actavis, skömmu eftir klukkan hálf sex í kvöld. Annar bílinn valt á hliðina við áreksturinn. Meira »

Fylgjast þarf með Krýsuvík

Frá Krýsuvík.
Í gær, 17:01 Sprungugos í norðurhluta þess sprungukerfis, sem liggur frá megineldstöðinni í Krýsuvík, geta hugsanlega komið upp í Heiðmörk eða í grennd við Elliðavatn og því er full ástæða til að fylgjast náið með því sem gerist á Krýsuvíkursvæðinu. Meira »

Harma óvæginn fréttaflutning

Í gær, 16:49 Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur leggur ríka áherslu á að mótuð verði vöktunar- og viðbragðsáætlun vegna umhverfismála á svæðinu í grennd við Hellisheiðarvirkjun. Stjórnin harmar jafnframt óvæginn fréttaflutning um tjarnarmyndun í grennd við svæðið. Meira »

33 brotlegir ökumenn myndaðir

Í gær, 17:36 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu myndaði brot 33 ökumanna í Langarima í Reykjavík í dag en fylgst var með ökutækjum sem ekið var í suðurátt að Rósarima. Meira »

Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru

Í gær, 16:51 Fylgi Ólafs Ragnars Grímssonar og Þóru Arnórsdóttur er jafnt samkvæmt niðurstöðum nýrrar skoðanakönnunar MMR sem birtar voru í dag. Samtals sögðust 41,2% ætla að kjósa hvorn forsetaframbjóðandann. Meira »

Farinn frá Landsbankanum

Jens Garðar Helgason
Í gær, 16:12 „Ég tek ekki ákvörðun fyrir aðra, en ég stofnaði í dag reikning í Sparisjóði Norðfjarðar og ætla að flytja öll mín viðskipti frá Landsbankanum.“ Þetta segir Jens Garðar Helgason, formaður bæjarráðs í Fjarðabyggð, í samtali við mbl.is. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Til sölu Benzhou vespa
Ég er 50 cc vespa silvurgrá og svört árg. 2010 ekinn 1.300 km eins og ný, alltaf...
BLEKHYLKI
Blekhylki og tónerar í flestar gerðir prentara, 50-70% ...
Toyota Hilux 2006
Hvítur Toyota Hilux árgerð 2006 til sölu. Ekinn 116.000 km, beinskiptur, dráttar...
TOYOTA LAND CRUISER
Toyota Land Cruiser 120 VX Nýskr. 9/2005, ekinn 153 þ. km, d...
 
Sýslumaðurinn í vík - framhald uppboðs

Uppboð www.naudungarsolur.is Framhald up...
Kristniboðssambandið samkoma
Félagsstarf
Háaleitisbraut 58-60 Samkoma í kvöld kl....
Trjáplöntusala bjarkarholti mosfellsbæ

Trjáplöntusala Bjarkarholti 1, Mosfellsb...
Sýslumaðurinn á selfossi - framhald uppboðs

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....